Unga fólkið heim aftur Adam Ingi Guðlaugsson skrifar 12. maí 2026 22:30 Ég er uppalinn á Eskifirði og þar liggja mínar rætur. Þar gekk ég í skóla, stundaði íþróttir og eignaðist mína bestu vini. Eftir útskrift frá Verkmenntaskóla Austurlands lá leið mín og kærustu minnar suður, eins og hjá svo mörgum ungum Austfirðingum. Þegar náminu lauk fórum við að velta fyrir okkur framtíðinni. Hvar vildum við búa og stefna á að byggja upp okkar framtíð? Hvar vildum við eignast heimili og ala upp börnin okkar? Fyrir okkur var svarið skýrt – við vildum koma heim aftur. Í dag erum við flutt heim á ný, búin að festa kaup á fasteign og eigum von á okkar fyrsta barni í sumar. Það er stór ákvörðun fyrir ungt fólk að velja sér framtíð í heimabyggð og sú ákvörðun þarf að vera raunhæfur kostur. Við þurfum samfélag þar sem ungt fólk sér tækifæri. Þar sem hægt er að stunda gott nám og finna störf við hæfi, svo fólk sjái sér fært að koma heim aftur að loknu framhaldsnámi. Það þarf að vera hægt að byggja upp gott líf hér í Fjarðabyggð. Til þess þurfum við að horfa á heildina. Við þurfum fjölbreytt atvinnulíf og störf sem skapa öryggi og fyrirsjáanleika fyrir ungt fólk og fjölskyldur þeirra. Við þurfum sterka innviði, öruggar samgöngur og öfluga þjónustu. Við þurfum að standa vörð um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla svo fjölskyldur geti treyst því að börn þeirra hafi góð tækifæri frá fyrstu árum. Við þurfum líka samfélag þar sem fólk hefur gaman. Þar sem íþróttir, tómstundir og menning blómstra og skapa lífsgæði fyrir alla aldurshópa. Það eru nefnilega ekki bara störfin sem fá fólk til að setjast að, það er samfélagið í heild sinni. Ég vil sjá fleiri unga Austfirðinga koma heim aftur. Fólk sem hefur farið í nám eða öðlast reynslu annars staðar, en sér framtíðina hér. Við eigum að skapa samfélag þar sem unga fólkið okkar getur byggt upp gott líf, fundið öryggi og átt bjarta framtíð. Það er mikilvægt verkefni sem skiptir máli, það á ekki bara við fyrir okkur í dag heldur líka fyrir næstu kynslóðir. Til þess þarf skýra sýn, öfluga innviði og samfélag sem setur fólk í fyrsta sæti. Nú sem aldrei fyrr skiptir máli að unga fólkið láti rödd sína heyrast. Nýtum kosningaréttinn laugardaginn 16. maí og tökum þátt í að móta það samfélag sem við viljum búa í, fyrir okkur sjálf og öll hin sem eftir okkur koma. Ef við viljum tryggja að unga fólkið fái skýra rödd í samfélaginu okkar þá er X við S, Samfylkinguna og annað félagshyggjufólk í Fjarðabyggð, eini raunverulegi kosturinn. Höfundur er í 4. sæti á lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjarðabyggð Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar