Samgöngur í Hafnarfirði þurfa ferska vinda Hjördís Hlíðberg skrifar 12. maí 2026 16:22 Umræðan um samgöngur í Hafnarfirði snýst oftar en ekki um einstök gatnamót eða hringtorg. Stóra spurningin er þó einfaldari: hvernig bæ viljum við byggja til framtíðar? Brautin sem klýfur bæinn Reykjanesbrautin er stærsta áskorun okkar í dag. Hún er mikilvæg tenging höfuðborgarsvæðisins við Suðurnesin en sker Hafnarfjörð í sundur og skapar gjá í miðjum bænum. N1 hringtorgið er á forgangslista samgöngusáttmálans og mikilvægt er að halda málinu á dagskrá á sama tíma og metnaðarfullir en reynslulitlir stjórnmálamenn vilja frysta sáttmálann í mörg ár með tilheyrandi framkvæmdastoppi. Stuttu ferðirnar skipta máli Samhliða því þurfum við að hugsa betur um innanbæjarumferðina. Stór hluti daglegra ferða Hafnfirðinga eru stuttar ferðir í skóla, vinnu, verslun eða þjónustu innanbæjar en ef allt er byggt fyrir bílinn, þá fyllast göturnar af bílum. Þess vegna þarf að styrkja göngu- og hjólastíga milli hverfa og þjónustu þannig að fleiri hafi raunhæft val um hvernig þeir ferðast. Þannig bætum við líka umferðina fyrir þá sem áfram þurfa að nota bílinn. Hafnarfjarðarbær má ekki sitja eftir Loks viljum við efla almenningssamgöngur sem raunhæfan valkost. Það gerist bara ef þær fá sínar sérakreinar. Við viljum sjá Borgarlínuna byggjast fyrr upp í bænum og sættum okkur ekki við að fara aftast í röðina eins og núverandi meirihluti hefur hingað til gert í samningum. Tími fyrir ferska vinda Við hvetjum kjósendur til þess að kynna sér málin og velta fyrir sér hvort stjórnmálafólk sem boði ófjármagnaðar hálflausnir við raunverulegum vandamálum sé í alvörunni að fara að leysa þessi vandamál með sömu hugmyndafræði og skapaði þau. Hafnarfjörður á skilið ferska vinda í samgöngumálum - og tíminn fyrir þá er núna. Göngum í verkin! Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Umræðan um samgöngur í Hafnarfirði snýst oftar en ekki um einstök gatnamót eða hringtorg. Stóra spurningin er þó einfaldari: hvernig bæ viljum við byggja til framtíðar? Brautin sem klýfur bæinn Reykjanesbrautin er stærsta áskorun okkar í dag. Hún er mikilvæg tenging höfuðborgarsvæðisins við Suðurnesin en sker Hafnarfjörð í sundur og skapar gjá í miðjum bænum. N1 hringtorgið er á forgangslista samgöngusáttmálans og mikilvægt er að halda málinu á dagskrá á sama tíma og metnaðarfullir en reynslulitlir stjórnmálamenn vilja frysta sáttmálann í mörg ár með tilheyrandi framkvæmdastoppi. Stuttu ferðirnar skipta máli Samhliða því þurfum við að hugsa betur um innanbæjarumferðina. Stór hluti daglegra ferða Hafnfirðinga eru stuttar ferðir í skóla, vinnu, verslun eða þjónustu innanbæjar en ef allt er byggt fyrir bílinn, þá fyllast göturnar af bílum. Þess vegna þarf að styrkja göngu- og hjólastíga milli hverfa og þjónustu þannig að fleiri hafi raunhæft val um hvernig þeir ferðast. Þannig bætum við líka umferðina fyrir þá sem áfram þurfa að nota bílinn. Hafnarfjarðarbær má ekki sitja eftir Loks viljum við efla almenningssamgöngur sem raunhæfan valkost. Það gerist bara ef þær fá sínar sérakreinar. Við viljum sjá Borgarlínuna byggjast fyrr upp í bænum og sættum okkur ekki við að fara aftast í röðina eins og núverandi meirihluti hefur hingað til gert í samningum. Tími fyrir ferska vinda Við hvetjum kjósendur til þess að kynna sér málin og velta fyrir sér hvort stjórnmálafólk sem boði ófjármagnaðar hálflausnir við raunverulegum vandamálum sé í alvörunni að fara að leysa þessi vandamál með sömu hugmyndafræði og skapaði þau. Hafnarfjörður á skilið ferska vinda í samgöngumálum - og tíminn fyrir þá er núna. Göngum í verkin! Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar