Munu „dauðu“ atkvæðin leiða Sjálfstæðisflokk og Miðflokk til valda? Bolli Héðinsson skrifar 12. maí 2026 11:40 Okkur Reykvíkingum standa óvenju mörg framboð að velja úr í kosningunum á laugardag. Öllum er ljóst að mörg þessara framboða munu ekki ná inn manni í borgarstjórn og því falla „dauð“. - Yfir okkur vofa a.m.k. tveir flokkar sem vilja ekki sjá borgina okkar verða alvöru nútímalega borg með öflugum almenningssamgöngum og fjölbýlishúsum miðsvæðis. Þessir flokkar sjá fyrir sér allt aðra borg heldur en við höfum séð lifna á síðustu árum. Þeirra fyrirmyndir eru sóttar til Bandaríkjanna þar sem breiðir vegir liggja þvers og kruss um borgir og bjóða ekki upp á annan valkost en þann að komast allra leiða sinn á eigin bíl. Er þetta sú Reykjavík, sem okkur er svo annt um, sem við viljum sjá? Sjálfstæðis- og Miðflokkur tala líkt og fleiri vegir og fleiri akreinar taki ekki pláss og kosti ekkert á meðan þeir telja almenningssamgöngur sóun þó það sé sú leið sem flestar nágrannaþjóða okkar hafa valið fyrir borgir á stærð við Reykjavík. Ég á erfitt með að trúa því að við Reykvíkingar viljum sjá borgina okkar verða hugmyndum Sjálfstæðis- og Miðflokks að bráð, um borg undirlagða einkabílnum? Eini raunhæfi valkosturinn til að koma í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur komist til valda í borginni okkar er Samfylkingin. Hjá Samfylkingunni nýtast atkvæði þeirra sem eru andsnúnir hugmyndum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks best og því skiptir máli að hún fái góða kosningu á laugardag. Höfundur er borinn og barnfæddur Reykvíkingur með reynslu af búsetu bæði austan hafs og vestan. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bolli Héðinsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Okkur Reykvíkingum standa óvenju mörg framboð að velja úr í kosningunum á laugardag. Öllum er ljóst að mörg þessara framboða munu ekki ná inn manni í borgarstjórn og því falla „dauð“. - Yfir okkur vofa a.m.k. tveir flokkar sem vilja ekki sjá borgina okkar verða alvöru nútímalega borg með öflugum almenningssamgöngum og fjölbýlishúsum miðsvæðis. Þessir flokkar sjá fyrir sér allt aðra borg heldur en við höfum séð lifna á síðustu árum. Þeirra fyrirmyndir eru sóttar til Bandaríkjanna þar sem breiðir vegir liggja þvers og kruss um borgir og bjóða ekki upp á annan valkost en þann að komast allra leiða sinn á eigin bíl. Er þetta sú Reykjavík, sem okkur er svo annt um, sem við viljum sjá? Sjálfstæðis- og Miðflokkur tala líkt og fleiri vegir og fleiri akreinar taki ekki pláss og kosti ekkert á meðan þeir telja almenningssamgöngur sóun þó það sé sú leið sem flestar nágrannaþjóða okkar hafa valið fyrir borgir á stærð við Reykjavík. Ég á erfitt með að trúa því að við Reykvíkingar viljum sjá borgina okkar verða hugmyndum Sjálfstæðis- og Miðflokks að bráð, um borg undirlagða einkabílnum? Eini raunhæfi valkosturinn til að koma í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur komist til valda í borginni okkar er Samfylkingin. Hjá Samfylkingunni nýtast atkvæði þeirra sem eru andsnúnir hugmyndum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks best og því skiptir máli að hún fái góða kosningu á laugardag. Höfundur er borinn og barnfæddur Reykvíkingur með reynslu af búsetu bæði austan hafs og vestan.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar