Nokkrar staðreyndir um fjármál Kópavogsbæjar Hákon Gunnarsson og Kristján B. Ólafsson skrifa 12. maí 2026 11:33 Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga er eðlilega mikið rætt um rekstur og fjárhagsstöðu viðkomandi sveitarfélaga. Meirihlutinn í Kópavogi hefur verið duglegur að koma á framfæri upplýsingum um góða stöðu, að reksturinn haldi áfram að styrkjast, að skuldir og skuldbindingar lækki að raunverði og að árin 2024 og 2025 séu bestu rekstrarár bæjarinus í 18 ár. Þetta eru stór orð og margir eru farnir að trúa þessum lýsingum. En hverjum þykir sinn fugl fagur og það er aldrei gott að vera dómari í eigin sök. Í stað þess að eltast við fagurlýsingar meirihlutans um að allt sé í góðu standi í fjármálum Kópavogs eru hér dregar fram nokkrar lýsandi tölur úr ársreikningum og Kópavogsbúar geta þá sjálfir metið hver staðan er í samanburði við lýsingarnar. Mynd A sýnir rekstrarafkomuna 2022 til 2025. Ef tekin er út sala lóða 2025 er tapið alls 405 milljónir í stað þess að vera hagnaður 4.650 milljónir. Sala lóða er takmörkuð auðlind og á næstu árum munu tekjur af lóðasölu lækka. Hver verða áhrifin á fjárhagsstöðu bæjarins? Meirihlutinn leggur áherslu á lækkandi skuldir bæjarsjóðs. Mynd B sýnir stöðu langtímaskuldbindingar Kópavogs árin 2010 til 2025 skv. tölum ársreikninga á verðlagi hvers árs. Sjá má að langtímaskuldir hafa einungis lækkað um 1,7 milljarða á 15 árum en hagnaður af sölu lóða síðustu þrjú árin var 8,5 milljarðar. Meirihlutinn talar ekki um að samtals hafa fjármunatekjur og fjármagnsgjöld eða vaxtagjöld bæjarins síðustu 15 árin verið alls 26,2 milljarðar eða 1,75 milljarðar að meðaltali á ári. Mynd C sýnir þetta nánar. Samandregið er það sala lóða úr takmarkaðri auðlind sem bjargar afkomu og greiðslustöðu bæjarins til skamms tíma. En hver verður staðan þegar búið verður að þurrausa þessa takmörkuðu auðlind? Kópavogur þarf að grynnka á skuldastöðu og nota rekstrarafgang til uppbyggingar og rekstrar í stað þess að hafa yfirhangandi gríðarlega snjóhengju uppsafnaðra skulda. Meirihlutinn talar um lægstu fsteignagjöldin á höfuðborgarsvæðinu. Mynd D sýnir rauntölur skv. gjaldskrám í apríl 2026 fyrir íbúðarhúsnæði. Kópavogur með 0,262% þegar meðaltalið er 0,278%. Að flestra mati telst mismunurinn óverulegur. Höfundar eru hagfræðingar. Hákon skipar 3. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Kópavogi og Kristján 13. sæti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar