Skólamál á Seltjarnarnesi í fyrsta sæti Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar 12. maí 2026 10:02 Á Seltjarnarnesi á skólasamfélagið að vera öruggt, framsækið og manneskjulegt. Það krefst heilnæms húsnæðis, skýrrar sýnar, snemmtæks stuðnings og sveitarfélags sem setur hagsmuni barna ofar bið, vanhaldi og síhækkandi álögum á fjölskyldur. Það er ekkert verkefni mikilvægara en að tryggja börnum öryggi, menntun og aðstæður til að vaxa og dafna. Þar ræðst ekki aðeins líðan barna í núinu heldur líka framtíð samfélagsins. Þess vegna skiptir máli að tala skýrt: skólamál eru ekki málaflokkur sem má reka á hálfum afköstum, með sífelldum töfum, óvissu og viðbragðsstjórnun. Heilnæmt húsnæði er lágmark, ekki lúxus Mikið verk er enn óunnið þegar kemur að heilnæmu skólahúsnæði á Seltjarnarnesi. Unnið hefur verið að því að bregðast við myglu og vanhaldi, en það dugar ekki að hálfklára verkefnin með tilheyrandi óvissu. Börn og starfsfólk eiga að geta treyst því að umhverfið sem þau dvelja í daglega sé heilnæmt, öruggt og vel við haldið. Við viljum því ráðast í heildstæðar endurbætur á öllu skólahúsnæði með tímasettri og birtri framkvæmdaáætlun svo allir geti séð hvað á að gera, hvenær það gerist og hvernig framkvæmdum vindur fram. Slík áætlun á að vera aðgengileg íbúum og henni á að fylgja eftir af festu. Gagnsæi er ekki aukaatriði þegar traust hefur beðið hnekki. Það er forsenda þess að foreldrar og starfsfólk geti treyst því að við tökum verkefnið alvarlega. Við viljum einnig flýta endurbótum á skólalóðum í virku samráði við nemendur, starfsfólk og foreldra. Skólalóðir eru ekki aukahlutur heldur hluti af daglegu lærdóms- og félagsumhverfi barna. Þær eiga að vera öruggar, aðgengilegar, upplífgandi og hvetjandi, ekki vanrækt jaðarsvæði sem bíða betri tíma. Öflugt fagfólk er lykillinn að öflugum skólum og farsæld barna Farsæld barna ræðst af því hvort þau fá nauðsynlegan stuðning, þegar á reynir. Strax og fyrstu vísbendingar koma fram um mögulegan vanda barns skiptir tíminn máli. Seinkun getur þýtt að vandinn verði þyngri bæði fyrir barnið, fjölskylduna og skólakerfið og slíkt er ekki ásættanlegt. Við leggjum því áherslu á snemmtæka íhlutun og öfluga lágþröskuldaþjónustu. Við viljum stytta viðbragðstíma og bæta aðgengi starfsfólks skóla að ráðgjöf og stuðningi með beinum boðleiðum til fagaðila. Fyrir þau börn sem glíma við stærri áskoranir viljum við tryggja aðgengi að öflugum stuðningi fagfólks, eins og sérkennurum og sálfræðingum og nauðsynlegum úrræðum eins og geðheilbrigðisteymi barna. Á það ekki aðeins við börn í leik- og grunnskólum bæjarins heldur einnig við ungmenni á fyrstu árum framhaldsskólans. Enda hefur verið sýnt fram á að slík nálgun á farsæld fækki þeim sem þurfi á aðstoð félagsþjónustu að halda síðar á lífsleiðinni eða þjónustu heilbrigðisstofnana. Enginn skóli verður þó betri en það fagfólk sem þar starfar. Þess vegna verður að skapa starfsumhverfi þar sem kennarar og annað fagfólk fær svigrúm, stuðning og raunveruleg tækifæri til að þróast í starfi. Það er ekki nóg að tala um mikilvægi kennara og fagfólks, það þarf að fjárfesta í þeim, hlusta á þá og skapa aðstæður sem gera þeim kleift að sinna starfi sínu af metnaði og öryggi. Þar verður ekki slakað á. Skólinn á að draga úr streitu, ekki auka hana Daglegt skipulag skiptir miklu meira máli en oft er viðurkennt. Það á sérstaklega við um barnafjölskyldur þar sem hver morgunn getur verið viðkvæmur tími. Við viljum því seinka upphafi skóladags um 20 mínútur og endurvekja morgunstund með hafragraut fyrir nemendur og foreldra. Slík breyting kann að virðast lítil á blaði, en hún getur skipt miklu máli í daglegu lífi. Hún dregur úr streitu og stuðlar að rólegri byrjun dagsins fyrir alla aðila. Sveitarfélagið á að horfa til lausna sem bæta raunverulega upplifun barna af skólanum, ekki aðeins formlega umgjörð. Umferðaröryggi skólabarna þarf einnig að vera forgangsmál. Foreldrar eiga ekki að þurfa að senda börn sín af stað með áhyggjur af hraðakstri, ófullnægjandi gönguleiðum eða hættulegum gatnamótum. Við viljum ráðast í markvissar aðgerðir til að auka umferðaröryggi barna og bæta leiðir þeirra til og frá skóla meðal annars með því að draga úr umferðarhraða við leiðir til og frá skóla. Brúum bilið fyrir barnafjölskyldur Eitt af því sem veldur fjölskyldum hvað mestri streitu er óvissan á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Þessi óvissa hefur raunveruleg áhrif á fjárhag, skipulag og andlega líðan foreldra. En það dugir ekki bara að slökkva elda. Sveitarfélag sem vill vera fjölskylduvænt í verki verður að bregðast við þessu með skýrum og fyrirsjáanlegum lausnum. Við viljum einsetja okkur brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með kerfisbundinni inntöku barna í leikskóla tvisvar á ári, í september og janúar. Með því skapast meiri fyrirsjáanleiki, minna álag og betri yfirsýn fyrir fjölskyldur sem þurfa að skipuleggja líf sitt langt fram í tímann. Við viljum ljúka byggingu nýs leikskóla og hefjast handa við að móta framtíðarsýn fyrir uppbyggingu og starfsemi Mánabrekku og Sólbrekku til að mæta þörfum til lengri framtíðar. Samhliða því viljum við leggja mat á ný leikskólamódel með árangur að leiðarljósi, þar sem hagsmunir barna, foreldra og starfsfólks eru settir í forgang. Í slíkri vinnu á ekki að horfa fyrst og fremst á kerfið sjálft, heldur hvort fyrirkomulagið sé í raun að skila betri þjónustu, meiri stöðugleika og bættum lífsgæðum. Að lokum Öruggt og framsækið skólasamfélag verður ekki til af sjálfu sér. Sterkt skólasamfélag byggist á góðu samstarfi milli skóla og foreldra, en það byggist líka á því að fagfólkið finni að sveitarfélagið standi raunverulega með því. Höfundur er ráðgjafi, teymisþjálfi og stjórnarkona UN Women og Klappa grænna lausna. Höfundur er móðir tveggja barna og skipar sjötta sæti á lista Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun