Þegar sannleikur er sagður lygi Húnbogi Sólon Gunnþórsson skrifar 12. maí 2026 09:43 Í Neskaupstað gengur sá orðrómur að verið sé að ljúga því að verið sé að loka hjúkrunardeildinni í Neskaupstað, eða að hún sé á förum. Hér er þó enginn að ljúga. Þvert á móti liggja staðreyndirnar fyrir á prenti og þær koma beint frá Heilbrigðisstofnun Austurlands. Í ársskýrslu HSA fyrir árið 2025, á bls. 1–3 í ávarpi forstjóra, kemur skýrt fram að unnið hafi verið að því að styrkja göngudeildarstarfsemi HSA og að til þess þurfi göngudeildin húsnæði. Þar segir orðrétt: „Unnið hefur verið að því að göngudeildin fái það húsnæði sem nú hýsir hjúkrunarheimilið í Neskaupstað.“ Í sama kafla segir jafnframt: „Við vitum jú öll að það hjúkrunarheimili þrátt fyrir góða starfsemi uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til húsnæðis hjúkrunarheimila en myndi nýtast vel annarri starfsemi sjúkrahússins.“ Og áfram: „Vegna þessa var unnið að því í samvinnu við Fjarðabyggð að klára samkomulagið um ,,Gott að eldast“.“ Hlekkur á frétt: https://www.fjardabyggd.is/frettir/fr%C3%A9ttatilkynning-fjar%C3%B0abygg%C3%B0ar-vegna-uppbyggingar-og-eflingar-%C3%BEj%C3%B3nustu-vi%C3%B0-eldri-borgara Þetta eru því ekki hugmyndir sem við höfum fundið upp í pólitískum tilgangi. Þetta er stefnumótun og vinna sem HSA hefur sjálft kynnt opinberlega í sinni eigin ársskýrslu. Ársskýrsla HSA 2025: Ársskýrsla HSA 2025 Svo liggja einnig fyrir orð ráðherra sjálfrar, Ingu Sæland, þegar kynnt var uppbygging 20 nýrra hjúkrunarrýma við Hulduhlíð. Í þeirri kynningu kom skýrt fram að hjúkrunarrýmum í Fjarðabyggð myndi fjölga um tíu, en ekki 20. Sá mismunur segir meira en mörg orð. Sem endurspeglast líka í því að ekki er tekið nýtt heimilisfólk inn á hjúkrunarheimilið í Neskaupstað þrátt fyrir að þar séu nokkur laus rými. Frétt RÚV um málið: Ætla að tæma biðlista í hjúkrunarrými fyrir lok 2029 – RÚV Þeir sem kjósa að horfa fram hjá þessum staðreyndum eða kalla þetta „lygar“ eru í raun að afvegaleiða umræðuna. Þetta snýst ekki um pólitísk stig. Þetta snýst um að standa vörð um þjónustu við eldra fólk í Fjarðabyggð og tryggja að hjúkrunarrými verði áfram hluti af samfélaginu okkar. Við í Sjálfstæðisflokknum í Fjarðabyggð styðjum heilshugar uppbyggingu sjúkrahússins og göngudeildarinnar. Öflug göngudeild er mikilvægt framfaraskref fyrir heilbrigðisþjónustu á Austurlandi. Á sama tíma verðum við að tryggja að hjúkrunarrými verði áfram til staðar í Neskaupstað. Það er ekki áróður eða hræðsluáróður heldur ábyrg hagsmunagæsla fyrir samfélagið okkar. Í stefnuskránni okkar er þetta alveg skýrt, við erum ekki að hugsa um að gera eitthvað í þessum málum heldur leggjum við þar til aðgerðir sem við ætlum að hrinda í framkvæmd. Atkvæði til Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð er trygging fyrir því að þessum málum verði sinnt af fullum þunga. Stefnuskrá: https://xdfjb.is/stefnan/ Höfundur skipar 4. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar