Jafnrétti í Reykjavík Steinunn Gyðu-og Guðjónsdóttir skrifar 12. maí 2026 09:01 Í borgarstjórnarkosningunum sem fram fara á laugardaginn er tekist á um það hvort við eigum að styrkja þá innviði sem hafa fært konum aukið frelsi og öryggi – eða veikja þá með niðurskurði, markaðsvæðingu og tillögum sem ýta konum aftur inn á heimilin. Jafnrétti verður ekki til af sjálfu sér. Það krefst pólitískrar forystu og fjárfestingar í þeirri þjónustu sem gerir fólki kleift að lifa öruggu og sjálfstæðu lífi. Þess vegna leggur Samfylkingin áherslu á öfluga leikskóla, sterka skólaþjónustu, húsnæðisöryggi og mannréttindastarf. Leikskólar Leikskólar eru eitt mikilvægasta jafnréttismál sveitarfélaga. Leikskólar gera foreldrum, og þá sérstaklega mæðrum, kleift að stunda fulla vinnu og sjá þannig fjölskyldu sinni farborða. Þegar heilsdagsleikskólar urðu að veruleika á tíunda áratugnum, þökk sé R-listanum, markaði það tímamót varðandi stöðu kvenna á vinnumarkaði. Það að geta unnið fulla vinnu er grundvöllurinn að efnahagslegu sjálfstæði, frelsi og öryggi kvenna í samfélaginu. Sveitarfélög um land allt hafa undanfarin misseri lagt fram aðgerðir í þeim tilgangi að stytta vistunartíma barna vegna erfiðleika í rekstri og mönnun leikskólanna. Við vitum að það mun bitna frekar á vinnandi konum en vinnandi körlum. Á leikskólunum starfa einnig stórar kvennastéttir en ófaglært starfsfólk leikskólanna nær margt vart endum saman og býr sumt við fátækt. Þessum jafnréttisáskorunum þarf að mæta. Lausnin felst í því að styrkja leikskólann sem grunnstoð samfélagsins. Samfylkingin er með skýrar tillögur um fjárfestingu í mönnun, starfsaðstæðum og viðhaldi húsnæðis á komandi misserum. Þá viljum við vinna með ríkinu að því að lögfesta rétt barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi, líkt og þekkist annars staðar á Norðurlöndunum. Þannig aukum við veg og virðingu leikskólastarfsins, fáum inn aukið fjármagn og styrkjum forsendur fyrir betri starfsaðstæðum, bættum kjörum og því að fleiri menntaðir kennarar velji að starfa í leikskólum. Í stað þess að verja opinberu fé í heimgreiðslur og fyrirtækjaleikskóla viljum við styrkja sameiginlegt leikskólakerfi sem stendur öllum börnum og fjölskyldum til boða. Geðheilsa, forvarnir og fræðsla Íslenskar rannsóknir sýna að kvíði og vanlíðan er faraldur meðal unglingsstúlkna. Það er hlutverk okkar á sveitarstjórnarstiginu að mæta þessum vanda, en ekki bara setja hann í hendur heilbrigðiskerfisins þegar vandinn stækkar. Við höfum einstakt tækifæri til að ná til barna og ungmenna þar sem þau eru á hverjum degi því öll börn ganga í skóla. Ef við færum sálfræði- og ráðgjafaþjónustuna nær þeim getum við gripið fyrr inn í þegar börn glíma við kvíða, vanlíðan eða erfiðar aðstæður. Við getum líka auðveldað börnum sem búa við ofbeldi heima eða verða fyrir ofbeldi í nánum samböndum að leita sér hjálpar áður en vandinn verður enn alvarlegri. Jafn mikilvægt er að halda áfram að efla hinsegin fræðslu, kynfræðslu og kynjafræði. Slík fræðsla styrkir sjálfsmynd barna og ungmenna, stuðlar að heilbrigðum samskiptum og eykur þekkingu á mörkum, samþykki og virðingu fyrir fjölbreytileikanum. Hún er einnig mikilvæg vörn gegn skaðlegum staðalmyndum og bakslagi í jafnréttismálum. Þetta viljum við gera bæði í leik- og grunnskólum Reykjavíkur og í frístundastarfi borgarinnar, þar sem hæft fagfólk gegnir lykilhlutverki í forvörnum og stuðningi við ungmenni. Óhagnaðardrifið húsnæði Án húsnæðisöryggis er erfitt að ala upp börn, mennta sig og taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf. Óhagnaðardrifin uppbygging leiguhúsnæðis nýtist tekjulægstu hópunum á vinnumarkaði – og ekki síst einstæðum mæðrum. Húsnæðisöryggið sem þessi leigufélög skapa getur dregið verulega úr þeirri fátæktargildru sem margar konur lenda í við skilnað og þá sérstaklega fyrir þær sem eru að losa sig úr ofbeldissambandi. Á meðan hægriöflin í borginni vilja setja húsnæðismálin aftur alfarið í hendur markaðarins leggur Samfylkingin áherslu á áframhaldandi uppbyggingu óhagnaðardrifins húsnæðis, af því öruggt húsnæði er ein af grunnforsendum jafnréttis. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar Við lifum á tímum þar sem mannréttindi eiga undir högg að sækja. Við sjáum bakslag í réttindum kvenna, aukna andúð á hinsegin fólki, vaxandi kynþáttafordóma og innflutt menningarstríð. Þetta hefur skaðleg áhrif á öryggi, heilsu og daglegt líf fólks. Við þessar aðstæður er mikilvægt að Reykjavíkurborg hafi öfluga miðlæga einingu sem tryggir að mannréttindasjónarmið séu höfð að leiðarljósi í starfsemi borgarinnar. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar gegnir þar lykilhlutverki með því að halda utan um mannréttinda- og jafnréttismál borgarinnar og styðja við starfsfólk í þessum mikilvægu málaflokkum. Samfylkingin hafnar öllum hugmyndum um að leggja Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar niður. Þvert á móti viljum við styrkja þessa mikilvægu starfsemi og standa áfram afdráttarlaust með mannréttindum og jaðarsettu fólki. Jafnrétti verður ekki tryggt með orðum einum saman, heldur með sterkri opinberri þjónustu sem veitir konum, börnum og jaðarsettum hópum raunverulegt frelsi og öryggi. Höfum það í huga þegar við göngum til kosninga. Samfylkingin leggur til raunhæfar og úthugsaðar aðgerðir í þágu jafnréttis og hafnar harðri hægri beygju í borginni sem myndi hafa alvarlegar afleiðingar fyrir jafnrétti. Höfundur er frambjóðandi í 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Mest lesið Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar