„Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 11. maí 2026 20:44 Ian Jeffs tók við þjálfun Breiðabliks í vetur. vísir/vilhelm Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með stigin þrjú eftir dramatískan 3-2 sigur gegn Val í 4. umferð Bestu deildar kvenna en viðurkenndi að frammistaða liðsins hefði ekki verið nógu góð.
Breiðablik komst snemma yfir á Kópavogsvelli en Valur svaraði með tveimur mörkum áður en Hrafnhildur Salka Pálmadóttir fékk rautt spjald. Blikar voru því manni fleiri stóran hluta leiksins en þurftu tvö mörk í uppbótartíma til að tryggja sigurinn. „Nei, ekki eftir rauða spjaldið,“ sagði Ian þegar hann var spurður hvort Blikar hefðu mögulega haldið að hlutirnir kæmu af sjálfu sér eftir að Valur missti mann af velli. „Mér fannst bara eftir markið sem við skoruðum þá hættum við. Við hættum að gera það sem var lagt upp með. Það var allt of hægt spil hjá okkur, við vorum að klappa boltanum of mikið og vorum ekki að nýta tækifærin til að setja boltann fyrir aftan línuna þegar þær voru að stíga á okkur.“ Ian sagði vindinn vissulega hafa haft áhrif en vildi ekki fela sig á bak við það. „Það var smá vindur sem var að blása á móti en mér fannst þetta bara ákveðin vonbrigði. Þetta var bara ekki gott í dag.“ Þrátt fyrir það fögnuðu Blikar dýrmætum þremur stigum, en sigurmarkið kom nánast með síðustu spyrnu leiksins. „Við fögnum þessum þremur stigum. Þetta er mjög sætt, að skora flautumark og ná þremur stigum,“ sagði Ian. Hann var þó skýr á því að sigurinn hefði ekki verið sannfærandi. „Ég er oft búinn að koma í viðtal eftir leik og segja að þetta hafi verið sannfærandi sigur og að við höfum átt þetta skilið. En ég get ekki sagt það í dag.“ Ian hrósaði Valsliðinu fyrir frammistöðuna og sagði gestina eiga hrós skilið þrátt fyrir sárt tap. „Valsliðið átti bara mjög góðan leik. Heilt yfir var þetta mjög góð frammistaða hjá Val í dag og þær eru örugglega bara svekktar með niðurstöðuna.“ Að lokum sagði Ian að frammistaða hans eigin liðs hefði komið sér á óvart. „Frammistaðan hjá mínu liði var ekki alveg nógu góð í dag og ég veit ekki alveg af hverju. Undirbúningurinn gekk vel, það hefur verið mikið sjálfstraust og við höfum spilað vel hingað til. En mér fannst við hiksta mjög oft í dag.“
Besta deild kvenna Breiðablik Valur Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira