Af góðum hug koma góð ráð Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar 11. maí 2026 21:17 Þótt ég búi yfir reynslu víða að er ég í fyrsta skipti virkur þátttakandi í kosningabaráttu í Kópavogi. Það er skemmtileg lífsreynsla að taka þátt í viðburðum í tengslum við baráttuna, hringja í bæjarbúa, banka upp á og fá íbúa í stutt spjall. Ekki veit ég hvort það er bundið við lífið í Kópavogi en það kemur mér á óvart – og þó ekki – hversu ánægðir og stoltir íbúar eru með bæinn sinn. Að sjálfsögðu eru einhver álitamál til staðar og verkefni sem betur má sinna. Þannig er það almennt í samfélögum, það má jafnan gera betur á einhverjum sviðum og að sumra mati forgangsraða með öðrum hætti. Lífssýn okkar er misjöfn. Á undanförnum vikum hef ég heyrt í hundruðum bæjarbúa, ungum, eldri, fólki í efri byggðum, á Kársnesi og allt þar á milli. Fólk er ánægt og stolt af því að búa og tilheyra Kópavogi. Það er almenn gleði hjá eldra fólki með Virkni og vellíðan. Ekki ein óánægjurödd í hópi þeirra sem ég hef heyrt í, ekki ein. Það er greinilegt að verið er að gera vel á þessu sviðinu og ekki annað í boði en að halda áfram á sömu braut, efla og auka starfsemina enn frekar. Þjóðin er að eldast og við þurfum að bregðast við og svara kallinu, leggja áherslu á andlega og líkamlega heilsu eldri sem yngri. Við viljum og ætlum að leggja okkar af mörkum í Kópavogi. Staðráðin í að sinna okkar eldri íbúum vel. Þá eru bæjarbúar almennt ánægðir með grunnþjónustu bæjarins, sorphirðu, snjómokstur, gatnaþrif og þess háttar. Það má í þessu sambandi geta þess í að í þjónustukönnun meðal íbúa mældist ánægja með veitta þjónustu gríðarlega há eða 88%. Ábyrgð og ráðdeild við hlið góðrar þjónustu Í samtali okkar við íþróttafélögin á síðustu vikum er ánægja með aðstöðu og annað almennt mikil. Það þrengir sums staðar að, félögin eru stækkandi og því eru einhverjir vaxtaverkir til staðar. Þá eru allir að sjálfsögðu með sína óskalista. Eins og hjá heimilum þarf bærinn að forgangsraða, þó viljinn sé til staðar verður aldrei allt gert á sama tíma. Fram undan eru stórframkvæmdir hjá HK upp í Kórahverfi en fljótlega verður hafist handa við að reisa stúku við knattspyrnuvöll félagsins. Leikskólamálin hafa verið í deiglunni. Á því sviði hefur núverandi meirihluta tekist að skapa stöðu sem önnur sveitfélög vilja innleiða hjá sér. Kópavogsmódelið svokallaða virkar vel, það er almenn ánægja hjá foreldrum barna sem eru á leikskólum bæjarins sem og hjá starfsfólki. Við höldum áfram að hlusta á foreldra og starfsfólk leikskólanna, þróa módelið áfram og gera enn betur. Grundvöllur þess að hægt sé að framkvæma og byggja upp enn betra bæjarfélag er að rekstur og fjármál séu á góðum stað. Núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur verið samstíga þegar kemur að rekstri bæjarins. Hann hefur sýnt ábyrgð og aðhald, skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu á sama tíma og þjónusta við heimili og fyrirtæki hefur verið aukin og bætt. Við viljum halda áfram á sömu braut. Sumir tala um valdþreytu hjá núverandi meirihluta. Það er öðru nær, við hlustum á íbúa og höfum mikla löngun til að þróa Kópavog áfram í þágu íbúa og fyrirtækja sem rekin eru innan marka bæjarfélagsins. Margir viðmælenda minna enda símtölin við mig með orðunum „það er gott að búa í Kópavogi.“ Hvað sem hver segir þá eru þau orð í fullu gildi, íbúar eru heilt yfir stoltir og glaðir með bæinn sinn. Fáum við til þess stuðning munum við ekki hvika frá þeirri stefnu að reka bæinn af ábyrgð og ráðdeild og á sama tíma höldum við höldum við áfram að byggja upp blómlegt mannlíf í Kópavogi. Markmið okkar er einfalt, að það sé hvergi betra búa en í Kópavogi. Höfundur er fyrrverandi forstjóri og skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar