Uppbygging sem skilar sér heim Helgi Karl Guðmundsson skrifar 11. maí 2026 13:41 Flest okkar þekkja biðina eftir iðnaðarmanni á heimilið til að sinna “litlu” verkunum. Vandamálið er að það er of lítið af iðnaðarmönnum og verkefnin of mörg. Eftirspurn eftir kröftum þeirra er mikil í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og fiskeldi. Sem er náttúrlega jákvætt vandamál en engu að síður vandamál sem kallar á skýrar aðgerðir. Uppbygging nýs verknámshúss við Menntaskólann á Ísafirði er stórt og mikilvægt skref. Með bættri aðstöðu skapast raunhæf tækifæri til að efla verknám, fjölga nemendum og styrkja faglega menntun á svæðinu. En húsnæði eitt og sér dugar ekki. Við verðum jafnframt að tryggja sterkt samstarf við atvinnulífið svo nemendur komist á samning og ljúki námi með raunverulega færni sem nýtist strax á vinnumarkaði. Að námi loknu fara einhverjir suður eða annað í frekara nám og einhverjir verða áfram á svæðinu, hefja starfsferil sinn og stofna fjölskyldur. Fyrir báða hópana skiptir máli að húsnæði sem hentar sé í boði, hvort sem er til leigu eða sölu. Þess vegna leggjum við í Samfylkingunni í Ísafjarðarbæ höfuðáherslu á uppbyggingu húsnæðis fyrir bæði ungt og eldra fólk. Við teljum að besta leiðin til þess sé í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög, því að öflugur leigumarkaður styrkir grunninn að heilbrigðum og stöðugum sölumarkaði. Framtíðin krefst skýrra ákvarðana. Við þurfum að nýta þau tækifæri sem felast í nýrri aðstöðu, efla tengsl milli skóla, sveitarfélags og atvinnulífs og byggja upp samfélag þar sem menntun, atvinna og húsnæði haldast í hendur. Þannig tryggjum við að verknám í Ísafjarðarbæ verði enn öflugri stoð í samfélaginu og grunnur að sjálfbærri þróun til framtíðar. Höfundur er rafmagnstæknifræðingur og skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Flest okkar þekkja biðina eftir iðnaðarmanni á heimilið til að sinna “litlu” verkunum. Vandamálið er að það er of lítið af iðnaðarmönnum og verkefnin of mörg. Eftirspurn eftir kröftum þeirra er mikil í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og fiskeldi. Sem er náttúrlega jákvætt vandamál en engu að síður vandamál sem kallar á skýrar aðgerðir. Uppbygging nýs verknámshúss við Menntaskólann á Ísafirði er stórt og mikilvægt skref. Með bættri aðstöðu skapast raunhæf tækifæri til að efla verknám, fjölga nemendum og styrkja faglega menntun á svæðinu. En húsnæði eitt og sér dugar ekki. Við verðum jafnframt að tryggja sterkt samstarf við atvinnulífið svo nemendur komist á samning og ljúki námi með raunverulega færni sem nýtist strax á vinnumarkaði. Að námi loknu fara einhverjir suður eða annað í frekara nám og einhverjir verða áfram á svæðinu, hefja starfsferil sinn og stofna fjölskyldur. Fyrir báða hópana skiptir máli að húsnæði sem hentar sé í boði, hvort sem er til leigu eða sölu. Þess vegna leggjum við í Samfylkingunni í Ísafjarðarbæ höfuðáherslu á uppbyggingu húsnæðis fyrir bæði ungt og eldra fólk. Við teljum að besta leiðin til þess sé í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög, því að öflugur leigumarkaður styrkir grunninn að heilbrigðum og stöðugum sölumarkaði. Framtíðin krefst skýrra ákvarðana. Við þurfum að nýta þau tækifæri sem felast í nýrri aðstöðu, efla tengsl milli skóla, sveitarfélags og atvinnulífs og byggja upp samfélag þar sem menntun, atvinna og húsnæði haldast í hendur. Þannig tryggjum við að verknám í Ísafjarðarbæ verði enn öflugri stoð í samfélaginu og grunnur að sjálfbærri þróun til framtíðar. Höfundur er rafmagnstæknifræðingur og skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar