Frá sveit í borg á hálfri mannsævi Hildur Einarsdóttir skrifar 10. maí 2026 20:31 Þótt ég telji mig ekki aldna þá þekki ég tímana tvenna í Kópavogi. Á ævi minni hefur íbúafjöldi hartnær þrefaldast og bærinn tekið stakkaskiptum, úr sveit í borg. Frístundum uppvaxtaráranna var að stórum hluta varið í Smáranum, hvar UBK hafði aðstöðu í litlum vinnuskúr. Æfingar í hinum ýmsu íþróttum fóru fram til skiptis á misgóðum malar- og grasvöllum og ekki óþekkt að einhver barnanna kæmu hrófluð heim af æfingu eftir byltur á þeim fyrrnefnda. Það vill svo skemmtilega til, eftir lok eigin knattspyrnuferils, að stórum hluta fullorðinsáranna hefur líka verið varið í Smáranum sem stuðningsmaður makans og barnanna. Öllum sem horfa yfir svæðið nú er ljóst hve mikið hefur breyst, þótt gervigrasið búi enn til sár í hörðustu tæklingunum. Uppbygging Fífunnar, gervigras á Fífuvöllum bakvið Smárann, lagning gervigrass á Kópavogsvelli og athugun á fýsileika þess að hann verði alþjóðlega viðurkenndur keppnisvöllur. Þótt það sé ekki laust við að maður öfundi iðkendur af því að þurfa ekki að láta bjóða sér gamla vinnuskúrinn, þá er jafnframt ljóst að lappa þarf upp á ýmislegt, til að mynda að skoða sterkari lýsingu á Kópavogsvelli. Það hyggjumst við í Sjálfstæðisflokknum gera. Okkur er treystandi til að halda áfram Ýmislegt við svæðið, Smárann, Lindirnar og Salina, ber þess þó merki að áður hafi öldin verið önnur. Dæmi um slíkt er Reykjanesbrautin, sem lengi hefur verið Þrándur í Götu fyrir gangandi og hjólandi. Á komandi kjörtímabili hyggst Sjálfstæðisflokkurinn stefna að því að brúa þann tálma í bókstaflegri merkingu, með byggingu hjóla- og göngubrúar yfir brautina. Á kjörtímabilinu hefur verið byggt upp í Glaðheimum og við hyggjumst reka smiðshöggið á þá uppbyggingu. Fyrstu skrefin hafa jafnframt verið stigin við nýja sýn Smáralindar – úr verslunarsmiðstöð í menningarmiðstöð – með nýrri mathöll, auk þess að fyrirhugað er að þar rísi bókasafn. Og þótt hún standi nærri Smárahverfinu þá hefur þar verið vöntun á hverfiskjarna. Þar hyggjumst við gera bragarbót á. Perla hverfisins er að svo að sjálfsögðu Kópavogsdalurinn. Varla líður dagur án þess að ég, líkt og svo margir Kópavogsbúar, njóti hans, hvort sem það er á göngu, hlaupum eða hjóli. Á teikniborðinu eru ýmsar hugmyndir til nýtingar á nærumhverfi dalsins, án þess að það komi niður á nýtingu hans til útivistar, til að mynda með uppsetningu listaverka, fleiri söguskiltum og aðskildum göngu- og hjólastígum þar sem því verður við komið. Við hvarf Sorpu af Dalvegi skapast svo miklir möguleikar en þar sjáum við fyrir okkur ýmsar verslanir, rými fyrir útimarkað og skapandi greinar, matsölustaði og mögulega tjörn, sem á veturna gæti nýst til skautaiðkunar. Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi hefur sýnt það að honum er treystandi fyrir uppbyggingu án þess að það komi niður á bæjarsjóði eða þjónustu og lögbundnum gjöldum á íbúa. Á kjördag er valið því skýrt. Höfundur er sölu- og markaðsstjóri og skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar