Byggjum af skynsemi á Keldnalandi Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar 11. maí 2026 06:01 Keldnalandið svokallaða er mögulega besta byggingaland á höfuðborgarsvæðinu. Hvern dreymir ekki um að eignast hús í fallegri suðurhlíð með náttúrufegurð Grafarvogs í túnfætinum? Golfvöllur og göngustígar í næsta nágrenni. Skjólsæll sælureitur með útsýni yfir haf og borg. Samkvæmt nýlegri könnun HMS vilja um 6% borgarbúa búa í fjölbýlishúsi og aðeins tíundi hver íbúi í fimm hæða húsum eða hærri. Íbúar leggja áherslu á góða birtu, og næg bílastæði. Um 90% svarenda sagðist dreyma um að eignast eigið húsnæði. Gölluð söluvara Salan á Keldnalandi er framlag ríkisins til að standa undir þeim stórkostlegu útgjöldum sem fylgja samgöngusáttmálanum. Gallinn er bara sá að skipulagið hefur verið þannig úr garði gert að það tekur ekki mið af því sem fólk raunverulega vill. Er því gölluð söluvara. Morgunljóst er að engar samgöngubætur verða fjármagnaðar með peningum sem aldrei koma. Öll áhersla í Keldnalandi er á fjölbýlishús og mjög þétta byggð. Á svæðinu eiga að búa 12 þúsund manns og þar eiga 6 þúsund til viðbótar að starfa. Þó er einungis gert ráð fyrir 2.230 bílastæðum. Bílastæðin verða í 8 samnýttum bílastæðahúsum. Er venjulegt fólk að fara að þramma um hverfið með börn og innkaupapoka? Alveg örugglega ekki. Skipulagið er því miður byggt á hugmyndum stjórnmálamanna um hvernig hverfi eigi að vera, en ekki staðreyndum um vilja og venjur fólks í borginni. Endurskoðum skipulagið Kannanir HMS sýna að fólk í borginni vill ekki ofurþéttingu. Langflesta dreymir um að búa í eigin húsnæði. Fólk vill birtu, græn svæði, næg bílastæði og blandaða byggð. Endurskoðum skipulagið á Keldnalandi þannig það taki mið af óskum fólks. Byggjum blandaða byggð í samræmi við það sem tíðkast í nálægum hverfum, og búum til enn eitt frábært úthverfi í Reykjavík. Höfundur skipar 9. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sigrún Ásta Einarsdóttir Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Keldnalandið svokallaða er mögulega besta byggingaland á höfuðborgarsvæðinu. Hvern dreymir ekki um að eignast hús í fallegri suðurhlíð með náttúrufegurð Grafarvogs í túnfætinum? Golfvöllur og göngustígar í næsta nágrenni. Skjólsæll sælureitur með útsýni yfir haf og borg. Samkvæmt nýlegri könnun HMS vilja um 6% borgarbúa búa í fjölbýlishúsi og aðeins tíundi hver íbúi í fimm hæða húsum eða hærri. Íbúar leggja áherslu á góða birtu, og næg bílastæði. Um 90% svarenda sagðist dreyma um að eignast eigið húsnæði. Gölluð söluvara Salan á Keldnalandi er framlag ríkisins til að standa undir þeim stórkostlegu útgjöldum sem fylgja samgöngusáttmálanum. Gallinn er bara sá að skipulagið hefur verið þannig úr garði gert að það tekur ekki mið af því sem fólk raunverulega vill. Er því gölluð söluvara. Morgunljóst er að engar samgöngubætur verða fjármagnaðar með peningum sem aldrei koma. Öll áhersla í Keldnalandi er á fjölbýlishús og mjög þétta byggð. Á svæðinu eiga að búa 12 þúsund manns og þar eiga 6 þúsund til viðbótar að starfa. Þó er einungis gert ráð fyrir 2.230 bílastæðum. Bílastæðin verða í 8 samnýttum bílastæðahúsum. Er venjulegt fólk að fara að þramma um hverfið með börn og innkaupapoka? Alveg örugglega ekki. Skipulagið er því miður byggt á hugmyndum stjórnmálamanna um hvernig hverfi eigi að vera, en ekki staðreyndum um vilja og venjur fólks í borginni. Endurskoðum skipulagið Kannanir HMS sýna að fólk í borginni vill ekki ofurþéttingu. Langflesta dreymir um að búa í eigin húsnæði. Fólk vill birtu, græn svæði, næg bílastæði og blandaða byggð. Endurskoðum skipulagið á Keldnalandi þannig það taki mið af óskum fólks. Byggjum blandaða byggð í samræmi við það sem tíðkast í nálægum hverfum, og búum til enn eitt frábært úthverfi í Reykjavík. Höfundur skipar 9. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar