X- B Minnkum matarsóun í borginni okkar - fleiri frískápar fyrir samfélagið Inga Þyrí Kjartansdóttir skrifar 10. maí 2026 17:48 Að loknum kosningunum 16 maí nk. munum við framsóknarmenn beita okkur markvisst fyrir aðgerðum til að draga úr sóun með því að styðja heimilin og efla samfélagslega ábyrgð. Þar vegur minnkun matarsóunar þungt. Á hverju ári fer gríðarlegt magn af fullgóðum mat til spillis, mat sem hefði getað nýst fjölskyldum, námsmönnum, eldri borgurum og öðrum sem vilja nýta þessa auðlind betur. Þetta er ekki aðeins umhverfismál heldur líka samfélagsmál og réttlætismál. Þetta er unnið í sjálfboðavinnu af ótrúlega duglegu fólki sem er tilbúið til að fara hvenær sem verslanir láta vita af neysluhæfum mat sem þær kjósa að gefa í stað þess að henda í ruslagáma. Þetta er vinningsstaða fyrir alla þar sem verslanirnar geta sparað förgunarkostnað og margir munnar mettast. Heimili og félagsamtök hafa líka verið dugleg að láta neysluhæfa matarafganga í skápana. Allir frískáparnir hafa verið gefins, skýli hafa verið byggð utan um þá í sjálfboðavinnu. Við viljum fjölga þessum skápum í borginni þar sem núna er komin fjögurra ára reynsla af þessu verkefni. Frískáparnir eru nú þegar á átta stöðum í borginni og eru allir á Face book undir Freedge/frískápur 101, 104 (tveir), 107, 108, 111 (tveir) og 112. Alls skipta fylgjendur skápanna þúsundum. Sjá www.friskapur.is. Reynslan sem komin er á þetta verkefni sýnir að þetta hefur margháttuð jákvæð áhrif. ✅ Dregur úr matarsóun. ✅ Styrkir tengsl bæði þeirra sem gefa og þyggja. ✅ Hjálpar fólki að halda niðri útgjöldum og stuðlar þar með að ábyrgari nýtingu auðlinda. Við viljum vinna með íbúum, félagasamtökum, verslunum og fyrirtækjum að því að finna hentugar staðsetningar og tryggja að framkvæmdin sé bæði örugg og skilvirk. En við ætlum ekki að stoppa þar. Framsókn vill einnig skoða leiðir til að efla fræðslu um matarsóun, bæta samstarf við matvöruverslanir og stuðla að nýsköpun í meðhöndlun umframfæðis. Borg sem nýtir betur það sem fyrir er verður bæði sjálfbærari og réttlátari. Við trúum því að litlar aðgerðir geti skipt miklu máli, þegar þær eru framkvæmdar af metnaði og í samstarfi við samfélagið. Með fleiri frískápum getum við tekið raunveruleg skref í átt að minni sóun og betri velferð okkar borgaranna. Einn okkar ötulustu baráttumanna og stofnandi frískápsins í Breiðholti Freedge/Frískápur í 111 (Freedge in 111 Breiðholt) er hann Þorvaldur Daníelsson sem er í þriðja sæti framboðslistans okkar í Reykjavík. Hann hefur verið óþreytandi stuðningur við frískápinn í Breiðholti auk margs annars stuðnings við samfélagið sem margir þekkja. Með hann í borgarstjórn höfum við stuðningsmann sem áfram gæti látið þessa drauma okkar rætast. Þann 16. maí kjósum við um lausnir sem skipta máli - fyrir heimilin, samfélagið og framtíðina. X-B. Höfundur er á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar