Brotin loforð – uppbygging íþróttamannvirkja í Hveragerði María Rún Þorsteinsdóttir skrifar 10. maí 2026 17:01 Staða íþróttamála í Hveragerði er alvarleg og kallar á hreinskilna umræðu. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna vorið 2022 var uppbygging íþróttaaðstöðu eitt stærsta kosningamálið. Núverandi meirihluti gaf þá skýr fyrirheit um skjóta og hagkvæma uppbyggingu eftir fall Hamarshallarinnar. Áformað var að reisa íþróttahús úr föstum efnum á grunni hennar, taka það í notkun haustið 2023 og halda kostnaði í 260 milljónum króna, sem nam um fimmtungi af þeirri áætlun sem Verkís lagði fram árið 2022 fyrir stálgrindarhús á sama grunni. Tímalínan 2022-2026 Í janúar 2023, átta mánuðum eftir kosningar, var fyrsti áfangi verksins boðinn út. Þremur mánuðum síðar var öllum tilboðum hafnað þar sem þau fóru öll fram úr kostnaðaráætlun, sem var upp á 1,1 milljarð króna. Kostnaður sem féll til vegna þessa útboðs nam rúmum 17 milljónum króna. Í ágúst sama ár tilkynnti bæjarstjórn að uppbyggingu Hamarshallarinnar yrði frestað og að leigja ætti iðnaðarhúsnæði í Vorsabæ fyrir tímabundna íþróttaaðstöðu. Tæpum tveimur milljónum króna var varið í þá vinnu áður en horfið var frá áformunum í desember 2023, í kjölfar mikillar óánægju íbúa, meðal annars vegna gagnrýni sem sneri að öryggi barna. Í framhaldinu var ákveðið að ráðast í viðbyggingu við íþróttahúsið við Skólamörk. Samkvæmt áætlunum áttu framkvæmdir að hefjast árið 2024 og húsið að vera tilbúið til notkunar árið 2025. Fyrsti áfangi verkefnisins, nýr íþróttasalur með möguleika á keppnishaldi og áhorfendaaðstöðu síðar meir, var samkvæmt fundargerð bæjarstjórnar 14. desember 2023, áætlaður um 605 milljónir króna, auk hönnunarkostnaðar. Upphafleg heildarkostnaðaráætlun verkefnisins nam rúmlega 900 milljónum króna. Nú þegar er kostnaður samþykktra reikninga orðinn um 161% af upphaflegri samningsfjárhæð. Engin skýr tímaáætlun liggur fyrir um verklok og ljóst er að heildarkostnaður mun fara verulega fram úr upphaflegum áætlunum, en á bæjarstjórnarfundi í febrúar sl. kom fram í máli bæjarstjóra að uppfærð kostnaðaráætlun nemi 1.2 milljörðum. Í maí 2024 var jafnframt tilkynnt um uppbyggingu gervigrasvallar uppi í Dal. Samkvæmt svörum við fyrirspurn bæjarfulltrúa D-lista er kostnaður verkefnisins orðinn um 357 milljónir króna, án kostnaðar við vallarlýsingu. Samþykkt tilboð í lýsingu nemur rúmum 99 milljónum króna. Framkvæmdir hafa tafist verulega og enn liggur ekki fyrir hvenær völlurinn verður tekinn í notkun, en upphaflega stóð til að æfingar myndu hefjast á vellinum „snemmvetrar 2024“. Nýjustu kostnaðaráætlanir gera þannig ráð fyrir að uppbygging íþróttamannvirkja í Hveragerði kosti tæplega 1.7 milljarða, ekki 260 milljónir eins og loforðin sögðu til um. Svörin vekja spurningar Á fundi bæjarstjórnar nú í apríl var lögð fram fyrirspurn fulltrúa D-lista þar sem óskað var eftir skýrum og uppfærðum upplýsingum um stöðu uppbyggingar íþróttamannvirkja í Hveragerði. Fyrirspurnin laut annars vegar að gervigrasvellinum og hins vegar að viðbyggingu við íþróttahúsið við Skólamörk. Sérstaklega var kallað eftir sundurliðuðum kostnaði, uppfærðum kostnaðaráætlunum og skýrum tímaáætlunum um verklok. Svör bárust í formi minnisblaðs frá sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, þar sem farið er yfir stöðu verkefnanna í heild. Þrátt fyrir að svör hafi borist við fyrirspurninni er ljóst að mörgum lykilspurningum er ekki svarað með skýrum hætti. Sérstaklega vantar nákvæmar tímaáætlanir og heildstæðar, uppfærðar kostnaðaráætlanir fyrir bæði verkefnin. Það er mikilvægt að upplýsingar um stórar fjárfestingar sveitarfélagsins séu settar fram með gagnsæjum og aðgengilegum hætti. Í þessu tilviki eru svörin sett þannig fram að þau krefjast frekari úrvinnslu til að bæjarfulltrúar og íbúar geti áttað sig á stöðu og umfangi verkefnanna. Tjónið er raunverulegt Á meðan verkefnin dragast á langinn og kostnaður hækkar, sitja iðkendur eftir. Íþróttafélagið Hamar og aðrir notendur hafa þurft að búa við skertar aðstæður alltof lengi. Það hefur haft bein áhrif á starfsemi, þátttöku og uppbyggingu. Iðkendur á öllum aldri, frá börnum til eldri borgara, hafa þurft að leita í önnur sveitarfélög eftir aðstöðu sem ætti að vera sjálfsögð í þeirra heimabyggð. Þetta er ekki aðeins spurning um óþægindi, þetta hefur raunverulegar afleiðingar. Æfingatímar skerðast, ferðatími eykst og kostnaður leggst á fjölskyldur sem þurfa að keyra börn sín milli bæjarfélaga. Fyrir suma þýðir þetta einfaldlega að þátttaka minnkar eða fellur niður. Óvissan hefur einnig áhrif á íþróttafélagið sjálft. Erfiðara er að skipuleggja starf, halda úti metnaðarfullu barna- og unglingastarfi og byggja upp öfluga flokka þegar aðstaða er hvorki trygg né fyrirsjáanleg. Þetta getur haft langtímaáhrif á þróun íþróttastarfs í bænum. Þá má ekki gleyma félagslega þættinum. Íþróttir eru ekki aðeins æfingar og keppni, þær eru vettvangur fyrir samfélag, tengslamyndun og forvarnir. Þegar aðstöðu skortir veikist þessi mikilvægi hluti samfélagsins. Á sama tíma líður tíminn. Börn sem voru á grunnskólaaldri þegar loforðin voru gefin eru að eldast upp úr íþróttastarfinu án þess að hafa notið þeirrar aðstöðu sem þeim var lofað. Það er tjón sem verður ekki bætt upp síðar.Þrátt fyrir þetta hefur íþróttafélagið Hamar, ásamt þjálfurum og sjálfboðaliðum, unnið frábært starf við mjög erfiðar aðstæður. Það er í raun til marks um þann metnað og dugnað sem býr í starfinu að það skuli hafa haldist gangandi. En það er ekki hlutverk sjálfboðaliða að bæta upp fyrir skort á grunninnviðum, þar liggur ábyrgðin hjá sveitarfélaginu. Ábyrgð og leiðin áfram Svörin sem bárust við fyrirspurn bæjarfulltrúa D-listans draga upp skýra mynd:Kostnaður hefur hækkað verulega, tímaáætlanir eru óljósar og heildarsýn skortir. Loforð um „mikið fyrir lítið“ hafa í reynd orðið að miklum kostnaði með litlum árangri. Nú er brýnt að breyta um stefnu: Setja fram raunhæfar og gagnsæjar kostnaðaráætlanir Forgangsraða verkefnum skýrt Ljúka því sem hafið er áður en farið er í nýjar og stærri framkvæmdir Setja þarfir iðkenda og íþróttafélagsins í fyrsta sæti Íþróttaaðstaða er ekki munaður, hún er grunnþjónusta. Hún á ekki að vera tilraunaverkefni eða pólitískt loforð sem gleymist eftir kosningar. Íbúar Hveragerðis eiga betra skilið.Höfundur skipar 2. sæti D-listans í Hveragerði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Sjá meira
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun