„Engar raunverulegar breytingar sem hafa átt sér stað“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. maí 2026 13:28 Tótla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. vísir/egill „Ég held að þetta hafi verið tilraun dómsmálaráðuneytisins til að koma málinu í gegn af því að fólki fannst þetta ekki þægileg tilhugsun, að börn yrðu vistuð í lokuðu úrræði með alls konar hópum af fólki. En þetta er klárlega ekki boðlegt, sama hvað, að frelsissvipta börn.“
Þetta segir framkvæmdastjóri Barnaheilla sem gagnrýnir frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð harðlega. Hún segir boðaðar breytingar á frumvarpinu í raun ekki breyta neinu. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi í nóvember og hefur verið til meðferðar síðan. Samkvæmt frumvarpinu verður heimilt að frelsissvipta börn fólks á flótta sem á að senda úr landi og koma þeim fyrir í fóstri á meðan fjölskyldur þeirra yrðu vistaðar í brottfararmiðstöð. Undirskriftarlisti var stofnaður til að mótmæla áformunum en eins og stendur hafa um 2.400 manns skrifað undir. Segir þingið í raun ekki breyta neinu Allsherjar- og menntamálanefnd sem hefur frumvarpið til meðferðar hefur lagt fram breytingartillögu sem segir til um að börn verði vistuð með fjölskyldum sínum á öðrum stað en brottfararstöðinni. Vonast er til að frumvarpið verði að lögum fyrir þinglok. Tótla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, segir að þrátt fyrir umræddar breytingar fari lögin gegn barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Börn á flótta eiga bara ekki að vera frelsissvipt, alveg sama hvað þú kallar það. Það eru alls konar úrræði sem er hægt að gera annað en að frelsissvipta fólk og börn. Það er hægt að láta fólk tjékka inn, það er hægt að fylgjast með hópnum, það er hægt að leyfa fólki bara að vera í sínu nærumhverfi þar til það er komið að því að því verði brottvísað.“ Óboðlegt að frelsissvipta börn Hún segir það ekki koma til greina að frelsissvipta börn nema það sé gert til að tryggja öryggi þeirra eða annarra. Aðferðin geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. „Við eigum skýr gögn um það að það getur haft víðtæk andleg áhrif á börn þegar þau eru frelsissvipt. Þegar við erum að fara í svona aðgerðir eins og að brottvísa fólki úr landi og við erum að taka þau úr örygginu sínu, þá þarf fyrst að taka þau og loka þau af. Það hljóta allir að sjá hvaða skaða það veldur.“ Hún vonast til að það verði fallið frá áformunum. „Ég er náttúrulega almennt á móti því að fólk sé frelsissvipt fyrir engar sakir. Að setja börn inn í þessa summu, finnst mér algjörlega óboðlegt. Við finnum það alveg á fólkinu í nefndinni að því finnst það ekki þægilegt. Ég skil ekki af hverju það er verið að halda þessu til streitu. Ég vona náttúrulega að fólk sjái að sér. Þessi framsetning að það sé ekki verið að vista börn í brottfararmiðstöðinni er bara ekki rétt. Þótt þú færir það í annað hús og kallir það öðru nafni þá er þetta nákvæmlega sami hluturinn,“ segir hún og bætir við: „Mér fannst þessi skilaboð sem komu fyrir helgim á föstudaginn, fyrirsögn eftir fyrirsögn um að börn yrðu ekki vistuð í brottfararstöðinni. Auðvitað vonuðum við að það þýddi að þau hefðu fallið frá því að frelsissvipta börn. En miðað við viðtölin við fólkið úr nefndinni þá er alveg skýrt að það eru engar raunverulegar breytingar sem hafa orðið.“
Brottfararstöð fyrir útlendinga Börn og uppeldi Réttindi barna Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira