Veljum grænni og manneskjulegri Kópavog. Gefum þeim frí sem bera ábyrgð á mistökunum María Júlía Rafnsdóttir skrifar 10. maí 2026 14:15 Frá árinu 2018 hefur rödd umhverfis- og náttúruverndar ekki átt sæti í bæjarstjórn Kópavogs. Þá náði Vinstri hreyfingin grænt framboð ekki tilskyldu fylgi til að halda sæti í bæjarstjórn. Síðan þá hefur frjálshyggjan ráðið ríkjum, þar sem markaðsöflin eru látin ráða för. Þessu þarf að breyta. Hvar er gróðurinn? Hvar er umhverfisverndin í Kópavogi? VG og óháðir bjóða nú fram frábæran lista í Kópavogi með það að markmiði að gera bæinn grænni, umhverfisvænni og manneskjulegri. Bærinn hefur til þessa verið skipulagður sem amerísk bílaborg, þar sem fólk á erfitt með að komast á milli hverfa gangandi eða hjólandi án þess að vera í mengunarskýi bíla og í stórri hættu. Dæmi um slíkt er leiðin frá Smárahverfi í Lindahverfi fram hjá Smáralind, þar sem gengið er í mengun og umferðargný. Leikskólar eru margir við umferðargötur og börn geta ekki farið út að leika þegar svifryksmengun er mikil. Hálsatorgið í Hamraborginni er gróðursnautt og mannlaust og flestum óar við því skipulagi sem er að verða að veruleika á Fannborgareit. Nýjasta útspilið er svo að flytja menninguna í verslanamiðstöð. Hamraborgina ætti að vera hlýleg og græn. Ég efa ekki að þá myndi Hamraborgin verða fögur og iðandi af mannlífi. Allir íbúar ættu jafnframt að hafa útivistarsvæði eða hverfisgarð í göngufæri frá heimilum sínum. Það þarf að tryggja jöfnuð meðal íbúa og að börnum og fjölskyldum þeirra sé ekki mismunað vegna stöðu þeirra, enda er það brot á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kópavogsmódelið svokallaða í leikskólum bæjarins stuðlar að misrétti meðal barna svo sem vegna mismunandi baklands fjölskyldna og er jafnframt afturhvarf um áratugi hvað varðar jafnrétti og kvenfrelsi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við stjórnvölinn nánast óslitið í Kópavogi frá 1990 og ber því ábyrgð á öllum þeim mistökum í skipulagsmálum sem gerð hafa verið frá þeim tíma. Gefum þeim frí. Kjósum mennskuna, hlýjuna og með umhverfinu. Veljum grænni og manneskjulegri Kópavog. Merkjum við V á kjörseðlinum. Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi VG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Frá árinu 2018 hefur rödd umhverfis- og náttúruverndar ekki átt sæti í bæjarstjórn Kópavogs. Þá náði Vinstri hreyfingin grænt framboð ekki tilskyldu fylgi til að halda sæti í bæjarstjórn. Síðan þá hefur frjálshyggjan ráðið ríkjum, þar sem markaðsöflin eru látin ráða för. Þessu þarf að breyta. Hvar er gróðurinn? Hvar er umhverfisverndin í Kópavogi? VG og óháðir bjóða nú fram frábæran lista í Kópavogi með það að markmiði að gera bæinn grænni, umhverfisvænni og manneskjulegri. Bærinn hefur til þessa verið skipulagður sem amerísk bílaborg, þar sem fólk á erfitt með að komast á milli hverfa gangandi eða hjólandi án þess að vera í mengunarskýi bíla og í stórri hættu. Dæmi um slíkt er leiðin frá Smárahverfi í Lindahverfi fram hjá Smáralind, þar sem gengið er í mengun og umferðargný. Leikskólar eru margir við umferðargötur og börn geta ekki farið út að leika þegar svifryksmengun er mikil. Hálsatorgið í Hamraborginni er gróðursnautt og mannlaust og flestum óar við því skipulagi sem er að verða að veruleika á Fannborgareit. Nýjasta útspilið er svo að flytja menninguna í verslanamiðstöð. Hamraborgina ætti að vera hlýleg og græn. Ég efa ekki að þá myndi Hamraborgin verða fögur og iðandi af mannlífi. Allir íbúar ættu jafnframt að hafa útivistarsvæði eða hverfisgarð í göngufæri frá heimilum sínum. Það þarf að tryggja jöfnuð meðal íbúa og að börnum og fjölskyldum þeirra sé ekki mismunað vegna stöðu þeirra, enda er það brot á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kópavogsmódelið svokallaða í leikskólum bæjarins stuðlar að misrétti meðal barna svo sem vegna mismunandi baklands fjölskyldna og er jafnframt afturhvarf um áratugi hvað varðar jafnrétti og kvenfrelsi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við stjórnvölinn nánast óslitið í Kópavogi frá 1990 og ber því ábyrgð á öllum þeim mistökum í skipulagsmálum sem gerð hafa verið frá þeim tíma. Gefum þeim frí. Kjósum mennskuna, hlýjuna og með umhverfinu. Veljum grænni og manneskjulegri Kópavog. Merkjum við V á kjörseðlinum. Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi VG.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar