Vex Árborg hraðar en skipulagið ræður við? Guðný Björk Pálmadóttir skrifar 10. maí 2026 12:46 Árborg er það sveitarfélag sem hefur vaxið hvað hraðast á undanförnum árum og íbúum fjölgað langt umfram þær spár sem stuðst var við í skipulagsmálum. Og örum vexti fylgja vaxtaverkir. Við höfum lengi verið að bregðast við stöðunni, en nú er tími til að snúa við blaðinu, hætta að elta og byrja að stýra. Skipulag byggðar er ekki aukaatriði sem reddað verður eftir á. Hverfaskipulag mótar daglegt líf fólks langt inn í framtíðina og þarf að vera unnið af fagmennsku með skýra framtíðarsýn. Það er á ábyrgð sveitarfélaga að hafa skýrt aðalskipulag, vel unnið deiliskipulag og sjá til þess að því sé framfylgt í virku samráði við íbúa. Tíðar breytingar á deiliskipulagi þar sem skammtímahugsun og einkahagsmunir ganga fyrir almannahagsmunum eru ekki ásættanlegar. Viðreisn beitir sér fyrir sterkri sýn í skipulagsmálum þar sem lífsgæði íbúa eru forsenda ákvarðanatöku. Útivistarsvæði eru ekki jaðarmál Árborg býr að miklum tækifærum þegar kemur að náttúru, opnum svæðum og útivist, tækifærum sem hafa ekki verið nýtt sem skyldi í uppbyggingu nýrra hverfa. Smærri grænir blettir eru nauðsynlegir, en þeir leysa ekki af hólmi samfelld og vel hönnuð útivistarsvæði sem tengja saman hverfi og skapa raunveruleg tækifæri til útivistar í daglegu lífi. Útivist er lýðheilsumál. Við í Viðreisn viljum hefja uppbyggingu nýrra útivistarsvæða og leggja áherslu á góða umhirðu á þeim görðum sem við eigum nú þegar. Græn svæði þurfa að þróast samhliða nýjum hverfum, vera aðgengileg íbúum og staðsett þannig að skólar og leikskólar geti nýtt þau. Aðalskipulagsbreyting í Grænumörk Undanfarið hefur verið rætt um fyrirhugaðar breytingar í Grænumörk, en erfitt hefur reynst að nálgast frekari upplýsingar um hvert stefnir. Nú liggja fyrir tillögur í skipulagsgátt að breytingum á aðalskipulagi, þar sem gert er ráð fyrir allt að fjögurra hæða byggingum og leyfi fyrir verulegri þéttingu byggðar, eða úr 16 í 55 íbúðir á hektara. Jákvætt er að gert sé ráð fyrir þjónustu, góðu aðgengi og skjólgóðum svæðum sem geta stuðlað að auknum lífsgæðum. Hér er gott tækifæri og mikilvægt að vanda til verka. Tryggja þarf virkt og raunverulegt samráð við íbúa svæðisins og vinna grenndarkynningar vel. Við í Viðreisn höfum að gefnu tilefni verulegar áhyggjur af því að afsláttur verði veittur á kröfum aðalskipulags, passi sveitarfélagið ekki uppá að framfylgja þessum forsendum. Viðreisn mun ekki gefa neinn afslátt í þessu máli enda er það okkar hjarta mál að byggja bæ sem styður við daglegt líf fólks. Vöxturinn er í sjálfu sér ekki stærsta áskorunin, heldur hvernig við viljum stýra honum. Við þurfum sterka framtíðarsýn og vinna markvisst að henni og stýra fjölgun íbúa í takt við getu innviða. Höldum áfram að byggja bæinn okkar og gera hann sterkari, ekki bara stærri. Höfundur skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar