Framsækin Framsókn Halldór Bachmann skrifar 9. maí 2026 20:46 Borgarstjórn á að vera vettvangur athafna og framsækni. Við verðum að velja rétta fólkið til starfa, það er meginmálið. Fólki sem við treystum til að koma málum áfram og hefur þarfir og óskir borgarbúa að leiðarljósi – á grænu ljósi. Við búum svo vel að vera með frábæra fulltrúa til setu í borgarstjórn. Einar Þorsteinsson sannaði getu til fjármálastjórnunnar með því m.a.að snúa við taprekstri borgarinnar í jákvæða niðurstöðu. Einar hefur kraftinn og reynsluna umfram flesta frambjóðendur til að stýra borginni að loknum kosningum. Magnea Gná er öflugur fulltrúi unga fólksins sem er að reyna að fóta sig í frumskógi reglna og reglugerða t.d. varðandi íbúðakaup. Hjarta Magneu slær einnig mjög gagnvart þeim sem minna mega sín og vill efla virkni og velferð þeirra. Borg með sögu og sál. Menning hefur ekki fyrirferðarmikil í þessari kosningabaráttu. Hvað er borg ef við hugum ekki líka menningu hennar – sögunni. Gott dæmi er tillaga flutt í borgarstjórn sem nær flugi og verður að veruleika í höndum réttra aðila. Sigrún Magnúsdóttir fyrrv. borgarfulltrúi fékk í hendurnar nokkur orð á blaði um að reynt yrði að koma á laggirnar Sjóminjasafni í Reykjavík í samvinnu við hagsmunaaðila, við lok setu hennar í borgarstjórn. Þriggja manna undirbúningsnefnd undir forystu hennar vann vel og á sjómannadaginn 5. júní 2005 opnaði Ólafur Ragnar Grímsson fyrrv. forseti fyrstu sýninguna í Víkinni-Sjóminjasafninu í Reykjavík um 100 ára sögu togara í borginni. Togaraútgerðin breytti ekki síst bæ í borg. Gegnum tíðina höfðu hugmyndir komið fram um Sjóminjasafn, en ekkert orðið af framkvæmdum. T.d. var tvennt meginmál við stofnun Sjómannadagsráðs 1937, að koma á fót dvalarheimili fyrir eldri sjómenn og sjóminjasafni. Vel að verki staðið með fyrra málið, en hinu var ekki hrundið í framkvæmd fyrr en ákveðinni konu var falið verkið. Ótrúlegt afrek að ná á þremur árum að opna sjálfseignarmenningarstofnun í Reykjavík. Reykjavíkurhöfn var dyggur stuðningsaðili safnsins, en einnig voru þrjú fyrirtæki máttarstólpar, Eimskip, HB-Grandi og Íslandsbanki, auk fjölmargra annarra er lögðu hönd á plóg til að gera safnið að veruleika. Loksins var Sjóminjasafni komið á laggirnar í borg, sem byggði ekki síst vöxt sinn á sjósókn og lífæðinni Reykjavíkurhöfn. Það er mikil gróska í menningarlífi Reykjavíkurborgar, hvort sem við lítum til sviðslistamanna þar sem smærri og stærri hópar hafa komið saman og staðið fyrir öflugu starfi yfir sumarið þegar leikhúsin eru í fríi, s.br. það sem við höfum séð með leikfélaginu „Aftur á móti.“ Djasskvöld á borð við Mánudjass og Herma, sem er sjálfstætt rekið listasafn á Hverfisgötunni, hafa komið inn að krafti og þetta viljum við Framsóknarmenn efla í öllum hverfum borgarinnar. Því hvað er borg ef við hugum ekki að menningu hennar? Höfundur skipar 4. sæti Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar