Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir skrifar 9. maí 2026 20:18 Á síðustu árum hefur atvinnulíf vaxið og dafnað í Kópavogi. Byggst hafa upp glæsileg hverfi með blöndu af verslun, þjónustu og iðnaði. Þetta er engin tilviljun. Þegar fyrirtæki velja sér framtíðarhúsnæði er mikilvægt að staðsetning sé hentug fyrir starfsfólk með tilliti til samgangna, greitt aðgengi að helstu birgjum og þjónustuaðilum, stutt sé í allar áttir og auðvelt að sækja fundi, ráðstefnur, sýningar og annað sem tilheyrir starfseminni. Þá skiptir einnig máli að mál tefjist ekki að óþörfu og ferill leyfisveitinga sé einfaldur og skilvirkur. Í Kópavogi hafa verið byggð upp svæði sem henta afar vel til atvinnustarfsemi af ýmsu tagi. Má nefna Hvörfin sem dæmi. Þar er einnig verið að stórbæta samgöngur bæði fyrir akandi og hjólandi með tilkomu nýs Arnarnesvegar. Fyrirtæki gera sífellt meiri kröfur til húsnæðis bæði hvað varðar staðsetningu, aðbúnað og aðstöðu fyrir starfsfólk og snyrtilegt umhverfi. Við gerð nýbygginga í Kópavogi hefur verið tekið mið af þessum þörfum. Skipulag svæðanna skiptir miklu máli í þessu samhengi. Verslun, þjónusta og léttur iðnaður geta starfað hlið við hlið án árekstra. Þessi nýju hverfi hafa einnig allt aðra áferð en iðnaðarhverfi síðustu aldar, sem fáir hefðu líklega kosið að búa nálægt. Sem er líklega ástæða þess að í sumum bæjarfélögum var ákveðið að byggja upp slík hverfi eins langt í burtu og hugsast getur. Hindrunum rutt úr vegi Á árum áður var gantast með að fólk byggi í Kópavogi en ynni í Reykjavík. Nú er öldin önnur og rými fyrir þjónustu og starfsemi í sátt og samlyndi við íbúðir og íbúa. Við finnum að fyrirtæki velja í sumum tilfellum Kópavog til að bjóða sínum starfsmönnum upp á betri lífsgæði, styttri tíma í samgöngur, að hafa raunverulegt val um samgöngumáta, draga úr flutningskostnaði og styrkja tengslanet fyrirtækja innan þessara hverfa. Fyrir vikið verður Kópavogur sífellt meira aðlaðandi kostur fyrir bæði ný og rótgróin fyrirtæki, sem leita að hagkvæmu og vel staðsettu húsnæði fyrir sína starfsemi. Framangreint er engin tilviljun. Svæði og hverfi hafa verið skipulögð með það að marki að atvinnustarfsemi og fjölskyldulíf geti blómstrað, án þess að rekast hvort á annars horn. Til viðbótar skal nefnt að styrk stjórn á rekstri bæjarsjóðs hefur skapað svigrúm til að unnt sé að lækka álagningarhlutfall fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði og er það nú hið næstlægsta meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Leiðin frá starfsleyfisumsókn til útgáfu leyfis hefur einnig verið einfölduð frá því sem áður var. Kópavogur er í sókn. Við viljum að svo verði áfram. Höfundur er lögfræðingur og skipar 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar