Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar 9. maí 2026 19:46 Reykjavík hefur stundum verið kölluð borg óttans af fólki af landsbyggðinni, yfirleitt í léttum tón. En því miður þá er staðan sú að þessi lýsing á Reykjavík er smátt og smátt að stefna í að vera réttnefni. Aukning á ofbeldisverkum í Reykjavík er verulegt áhyggjuefni og er það staðreynd að fólk er farið að forðast að ferðast um ákveðna staði í borginni, jafnvel um hábjartan dag. Margar ábendingar hafa borist frá almenningi um aukið ofbeldi í skólum og á almannafæri. Þá er kvartað er yfir því að unglingagengi vaði uppi á ýmsum stöðum og jafnvel innan einstakra grunnskóla. Í fréttum er til dæmis oft fjallað um skiptistöðina í Mjódd og nágrenni hennar þar sem fólk hefur ítrekað orðið fyrir líkamsárásum. Þá hafa einnig borist fregnir af fólki, sem þorir ekki lengur að ferðast með strætisvögnum vegna árása og ofbeldishótana. Þetta er óheillaþróun sem lögreglan og Reykjavíkurborg verða að bregðast hart við. Lengi vel var öryggisvarsla í skiptistöðinni en henni var hætt fyrir um áratug í sparnaðarskyni. Miðflokkurinn mun sjá til þess að öryggisgæslu verði án tafar komið á við skiptistöðina í Mjódd, komist hann til áhrifa í kosningunum 16. maí. Einnig þarf að auka öryggisgæslu í strætisvögnum og sjá til þess að tekið sé strax á málum þegar öryggi fólks er ógnað. Í ákveðnum tilvikum gæti þurft að hafa öryggisverði í strætisvögnum til varnar farþegum og vagnstjórum. Staðan er það alvarleg. Sérstaka áherslu þarf að leggja á að auka öryggi í grunnskólum borgarinnar. Víða þarf að efla gangavörslu og taka upp skýrt verklag í tilvikum þegar nemendur og/eða kennarar verða fyrir ofbeldi af hendi einstaklinga eða hópa. Auka þarf aga í grunnskólum og sjá til þess að ofbeldismenn innan þeirra verði gerðir ábyrgir verka sinna. Miðflokkurinn vill að Reykjavíkurborg óski eftir samstarfi við dómsmálaráðuneytið um að hverfislögreglustöð verði opnuð í Breiðholti að nýju. Stöðin verði rekin í anda svokallaðrar samfélagsþjónustu. Hverfislögreglustöð var áður starfrækt um tuttugu ára skeið í Breiðholti og skilaði þá miklum og góðum árangri. Við starfsemi stöðvarinnar var mikil áhersla lögð á forvarnir og gott samstarf við skólana í hverfinu. Með tilkomu stöðvarinnar fjölgaði upplýstum glæpamálum verulega í Breiðholti frá því sem áður var. Gatnalýsingu í borginni hefur verið mjög ábótavant undanfarna vetur vegna ónógs viðhalds. Fjölmargir ljósastaurar hafa verið óvirkir vikum, mánuðum og jafnvel árum saman. Ótal kvartanir hafa borist frá íbúum vegna óvirkra ljósastaura og lélegrar gatnalýsingar af þeim sökum. Slík vanræksla á viðhaldi götulýsingar hefur óþægindi og hættur í för með sér fyrir alla vegfarendur. Óviðunandi er að lýsing sé slæm þegar kvörtunum fjölgar um kynbundna áreitni og ofbeldi á götum úti. Slæm götulýsing gefur misindismönnum tækifæri til myrkraverka. Frumskylda hvers stjórnvalds er að halda uppi lögum og reglu. Löggæslumál eru á hendi ríkisins en Reykjavíkurborg þarf einnig að leggja sitt af mörkum til að tryggja öryggi borgaranna. Góð samvinna lögreglu og borgarinnar er nauðsynleg ef hámarksárangur á að nást í löggæslumálum. Öryggi heyrir til mikilvægra lífsgæða og allt of margir Reykvíkingar hafa orðið fyrir ógnunum eða ofbeldisverkum sem gerir það að verkum að almenningi í borginni telji öryggi sínu ógnað. Slíkt ástand er óviðunandi og mikilvægt er að lögreglan og Reykjavíkurborg taki höndum saman um að stemma stigu við ofbeldisógninni sem að okkur steðjar. Þarna vill Miðflokkurinn snúa vörn í sókn. Reykjavík á að vera örugg höfuðborg, ekki borg óttans. Höfundur er í þriðja sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Lárus Blöndal Sigurðsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar