Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar 9. maí 2026 16:32 Nú þegar styttist í bæjarstjórnarkosningar langar mig að rifja upp hvernig núverandi meirihluti í Garðabæ hefur komið fram við þá sem mest þurfa á samfélaginu að halda. Dóttir mín er fötluð og hefur búið í Garðabæ nær alla sína ævi — í 32 ár. Allan þann tíma höfum við foreldrarnir þurft að berjast linnulaust fyrir sjálfsögðum réttindum hennar. Sú barátta hefur tekið gríðarlegan toll af heilsu okkar og lífi. Það segir sitt þegar starfsfólk sem hefur starfað með dóttur okkar bregst við með samúð þegar það heyrir að við búum í Garðabæ og segir „Þjónustan í Garðabæ er alltaf verst varðandi fatlaða.“ Þetta er ekki tilviljun. Þetta er afleiðing pólitískrar stefnu. Í Garðabæ hefur þjónusta við fatlað fólk verið markvisst útvistuð árum saman. Það er hugmyndafræði hægriaflanna: að færa ábyrgðina frá samfélaginu yfir á verktaka, félög og einkafyrirtæki. Sveitarfélagið losar sig þannig undan beinni ábyrgð á lögbundinni þjónustu við sitt eigið fólk. Þegar byggður var íbúðarkjarni fyrir fatlað fólk og rekstri hans útvistað. Töldum við foreldrarnir að loksins væri komin örugg framtíð fyrir dóttur okkar. Okkur fannst við hafa unnið lottóið. Sú von lifði stutt. Tveimur árum síðar var dóttur okkar vísað úr búsetunni vegna fötlunar sinnar. Hún þótti „of erfið“. Sveitarfélagið gat þá einfaldlega vísað á þjónustuaðilann og sagt að ekkert væri hægt að gera — ábyrgðin hafði verið útvistuð með þjónustunni. Þetta er kjarni vandans. Þegar grunnþjónusta er sett á markað verður fólk í viðkvæmri stöðu kostnaðarliður. Þegar rekstur ræður ferðinni verður mannúðin undir. Og þegar sveitarfélag afsalar sér ábyrgð er enginn eftir til að standa vörð um réttindi fólksins sem þarf mest á stuðningi að halda. Í dag býr dóttir mín í ófullnægjandi leiguhúsnæði í elliblokk á vegum Garðabæjar. Þjónustan við hana er útvistuð til einkafyrirtækis. Hún er nú komin í hjólastól og þarf nauðsynlega aðgengilega íbúð — en Garðabær á enga slíka íbúð tiltæka. Hvernig getur eitt ríkasta sveitarfélag landsins staðið svona illa að málum gagnvart fötluðu fólki? Þetta snýst ekki bara um dóttur mína. Þetta snýst um hvers konar samfélag við viljum byggja. Samfélag þar sem fólk fær að tilheyra, óháð fötlun og aðstæðum — eða samfélag þar sem þeir sem þurfa mest á hjálp að halda eru faldir í kerfum útvistunar og ábyrgðarleysis. Nú er komið nóg. Við þurfum sveitarfélag sem tekur ábyrgð. Sveitarfélag sem lítur á þjónustu við fatlað fólk sem mannréttindamál, ekki útgjaldalið. Sveitarfélag sem setur umhyggju framar hugmyndafræði markaðsvæðingar. Í þessum kosningum getum við valið aðra leið. Kjósum gegn útvistun.Kjósum samfélag þar sem pláss er fyrir okkur öll.Kjósum réttlátara og mannlegra samfélag. Höfundur er Þuríður Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og móðir fatlaðrar konu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar