Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar 9. maí 2026 15:30 Maímánuður er genginn í garð, sólin skín og sumarleyfið nálgast. Fram undan eru bjartir dagar sem flestir munu vonandi njóta í faðmi fjölskyldu og vina. Fyrir barnafjölskyldur og þá sérstaklega fjölskyldur ungra barna getur þessi árstími þó einnig verið streituvaldandi. Um þessar mundir keppast foreldrar við að skipuleggja sumarið og skrá börnin sín á hinu ýmsu sumarnámskeið til þess að brúa bilið milli þeirra orlofsdaga sem þeir eiga rétt á og sumarleyfis barnanna þeirra. Aðstæður fólks eru mismunandi en líklega er þó nokkuð óhætt að fullyrða að flestir foreldrar myndu kjósa það að verja sem mestum tíma með börnunum sínum. Staðreyndin er hins vegar sú að foreldrar þurfa einnig að tryggja afkomu fjölskyldunnar og er mikilvægt að tekið mikið af raunveruleika fólks og ólíkum aðstæðum þess við skipulag þeirrar þjónustu sem því stendur til boða. Í Garðabæ er ekki starfrækt sumarfrístund líkt og víða er boðið upp á í nágrannasveitarfélögunum. Garðabæjarlistinn hefur frá upphafi beitt sér fyrir því að sumarfrístund á vegum frístundaheimila skólanna verði einn af þeim valkostum sem fjölskyldum býðst yfir sumartímann - til viðbótar við þau námskeið sem eru í boði á vegum félaganna í bænum. Á því kjörtímabili sem nú er að líða undir lok hefur Garðabæjarlistinn í nokkrum ræðum og fyrirspurnum í bæjarstjórn vakið athygli á málinu og lagt fram tillögur þess efnis að skipulögð verði sumarfrístund á vegum frístundaheimilanna við grunnskóla Garðabæjar. Bókun þess efnis var m.a. lögð fram á fundi bæjarstjórnar í september 2025. Garðabæjarlistinn hefur frá upphafi staðið með barnafjölskyldum og hefur ítrekað sýnt það í verki. Að mati Garðabæjarlistans ætti að vera sjálfsagt að litið sé á starf frístundaheimila bæjarins yfir sumartímann sem grunnþjónustu sem stendur þeim sem á þurfa að halda til boða. Garðabær á að vera fjölskylduvænt sveitarfélag þar sem málefni barna og fjölskyldna eru forgangsmál. Höfundur skipar 4. sæti á lista Garðabæjarlistans í Garðabæ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Maímánuður er genginn í garð, sólin skín og sumarleyfið nálgast. Fram undan eru bjartir dagar sem flestir munu vonandi njóta í faðmi fjölskyldu og vina. Fyrir barnafjölskyldur og þá sérstaklega fjölskyldur ungra barna getur þessi árstími þó einnig verið streituvaldandi. Um þessar mundir keppast foreldrar við að skipuleggja sumarið og skrá börnin sín á hinu ýmsu sumarnámskeið til þess að brúa bilið milli þeirra orlofsdaga sem þeir eiga rétt á og sumarleyfis barnanna þeirra. Aðstæður fólks eru mismunandi en líklega er þó nokkuð óhætt að fullyrða að flestir foreldrar myndu kjósa það að verja sem mestum tíma með börnunum sínum. Staðreyndin er hins vegar sú að foreldrar þurfa einnig að tryggja afkomu fjölskyldunnar og er mikilvægt að tekið mikið af raunveruleika fólks og ólíkum aðstæðum þess við skipulag þeirrar þjónustu sem því stendur til boða. Í Garðabæ er ekki starfrækt sumarfrístund líkt og víða er boðið upp á í nágrannasveitarfélögunum. Garðabæjarlistinn hefur frá upphafi beitt sér fyrir því að sumarfrístund á vegum frístundaheimila skólanna verði einn af þeim valkostum sem fjölskyldum býðst yfir sumartímann - til viðbótar við þau námskeið sem eru í boði á vegum félaganna í bænum. Á því kjörtímabili sem nú er að líða undir lok hefur Garðabæjarlistinn í nokkrum ræðum og fyrirspurnum í bæjarstjórn vakið athygli á málinu og lagt fram tillögur þess efnis að skipulögð verði sumarfrístund á vegum frístundaheimilanna við grunnskóla Garðabæjar. Bókun þess efnis var m.a. lögð fram á fundi bæjarstjórnar í september 2025. Garðabæjarlistinn hefur frá upphafi staðið með barnafjölskyldum og hefur ítrekað sýnt það í verki. Að mati Garðabæjarlistans ætti að vera sjálfsagt að litið sé á starf frístundaheimila bæjarins yfir sumartímann sem grunnþjónustu sem stendur þeim sem á þurfa að halda til boða. Garðabær á að vera fjölskylduvænt sveitarfélag þar sem málefni barna og fjölskyldna eru forgangsmál. Höfundur skipar 4. sæti á lista Garðabæjarlistans í Garðabæ
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar