Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar 9. maí 2026 12:01 Ég reyni á síðustu stundu að lesa mér til en stend á gati með margar snúnar spurningar. Svo rifjast smám saman upp fyrir mér að ég á ekki sjálfur að finna út úr öllum sköpuðum hlutum heldur fyrst og fremst að velja fulltrúa til þess. Kosningapróf geta hjálpað okkur að finna rétta fólkið en til að þau nái tilgangi sínum þarf að hanna þau út frá raunhæfum hugmyndum um vitneskju og vilja kjósenda. Kosningapróf RÚV Nú síðast hefur kosningapróf RÚV um sveitastjórnarkosningarnar reynst mér sérstaklega vandasamt. Ef ég hugsa um það sem próf er óhætt að segja að ég sé í fallhættu. Hér á ég til dæmis sem Kópavogsbúi að standa skil á skoðunum á Lífsgæðakjarna sem ég var að heyra um í fyrsta skipti en er örugglega verkefni sem þarf að vanda. Það virðist vera umdeilt hvort kjarninn eigi að vera í landi Gunnarshólma, sem ég er ekki alveg viss um hvar er. Inn í ákvörðunina um kjarnann spila greinilega vatnsverndarsjónarmið – ugglaust mikilvæg – og einhvers konar skipulagsleg forsenda um vaxtarmörk Kópavogs sem ég var líka að heyra um í fyrsta sinn. Nú gæti ég örugglega mótað mér einhvers konar skoðun á þessu máli en þar væri sannarlega verk fyrir höndum. Ég mundi þurfa að finna texta þeirrar tillögu sem virðist vera á borðinu og leita sjónarmiða þeirra sem styðja hana og þeirra sem gagnrýna hana. Kannski fletta upp einhverjum gögnum sjálfur? Ef til vill mæta á staðinn og fara aðeins yfir aðstæður í landi Gunnarshólma? Ég væri samt ekki beint rétti maðurinn í þetta. Sleppa fullyrðingu Í prófinu fæ ég líka alls konar spurningar um samgöngumál og ég á erfitt með að svara þeim flestum. Það sem ég mundi vilja segja svona kosningaprófi er kannski að ég hef alla ævi notast mikið við strætó og reiðhjól og vil auðvitað gjarnan að kjörnir fulltrúar hugi að því að vel sé búið um hnútana í þeim efnum. En þessi almenna afstaða veitir mér enga innsýn í það hvort þau áform sem nú er unnið eftir um Borgarlínu séu þau bestu sem eru í boði, hvort það ætti að aðlaga þau verulega eða hvort það væri í raun best að byrja upp á nýtt með nýja hugmynd. Ég er aðeins nær því að hafa ígrundaða skoðun á Borgarlínu en Lífsgæðakjarnanum en samt í rauninni býsna fjarri því og ég smelli líka á 'Sleppa fullyrðingu' um þær spurningar. Mínir menn í spjaldtölvumálum Þegar líður á prófið birtist vonarglæta. Það mál sem mér finnst ég hafa bestu forsendurnar til að meta er hvort spjaldtölvuvæðing grunnskólanna í Kópavogi hafi heppnast farsællega. Mitt mat miðað við reynslu okkar fjölskyldu er að svo sé ekki og það vakna pínulítið heitar tilfinningar í mér þegar ég er spurður um þetta. Loksins eitthvað sem ég get haft skoðun á. Ég er 'mjög ósammála'. Ég vel rosalega fúla kallinn. Svo athuga ég hvernig flokkarnir hafa svarað þessu. Samfylkingin og Miðflokkurinn velja líka 'mjög ósammála' og Miðflokkurinn velur meira að segja að að þetta sé ‘Mjög mikilvæg fullyrðing’. Hér eru greinilega mínir menn komnir og ég vona að and-spjaldtölvustjörn Samfylkingarinnar og Miðflokksins muni leiða okkur Kópavogsbúa inn í bjartari tíma. Við vitum svo lítið – en við höfum hugsjónir Eða hvað? Það er eins og vanti eitthvað í þetta próf. Það virðist að stóru leyti samið út frá þeirri hugsjón að kjósendur séu 300 þúsund sérfræðingar sem útkljá alls konar teknókratísk vandamál saman með hárfínum skilningi. En það er ekki hægt að stjórna landi eins og húsfélagi og það geta ekki allir verið inni í ótal mörgum útfærsluatriðum. Við þurfum gott fólk til að finna út úr þessu öllu. Forsenda lýðræðisins er að við getum valið fulltrúa sem við treystum sem hafa gildi og áherslur í líkingu við okkar eigin. Gott kosningapróf ætti að hjálpa okkur að finna þessa frambjóðendur en prófið hjá RÚV gerir það erfiðara en það þyrfti að vera. Þar hefur greinilega verið ákveðið að forðast beinar spurningar um ýmis þau mál sem skapa mesta umræðu í samfélaginu og sem fólk skipar sér gjarnan í fylkingar eftir. Einhverjum hefur kannski þótt óþarft og jafnvel svolítið ódannað að spyrja um hvaða fánar eigi helst að blakta við grunnskóla eða leikskóla, svo að dæmi sé tekið um nýlegt hitamál. Kannski þykir þeim sem settu saman prófið, með hlýrri föðurlegri umhyggju, að við eigum að ræða minna um táknrænt pjatt og meira um alvarleg fullorðinsleg mál eins og nýbyggingar og vatnsvernd í landi Gunnarshólma. En augljóslega hafa margir djúpa sannfæringu um táknræn mál og við þurfum ekki að þykjast um neitt annað. Okkur finnst mikilvægt að vita hvar stjórnmálamenn standa í málum sem eru nátengd gildum okkar og sjálfsmynd. Það er þar sem við höfum innilega skoðun – í spurningum sem snúast um lífsgildi frekar en teknókratíska útfærslu. Það er gott að stjórnmálamenn tjái sig um grundvallarhugsjónir sínar og vönduð fjölmiðlaumfjöllun þarf líka að koma þeim vel til skila. Þannig getum við fundið það sem lýðræðið byggist á og það sem við leitum að í raun og veru. Fulltrúa sem við trúum á. Höfundur er málfræðingur og Kópavogsbúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun