Það er og verður gott að búa í Kópavogi Kristinn Jakobsson skrifar 8. maí 2026 22:01 Ég er hef lifað og starfað í Kópavogi nær alla mína hunds- og kattartíð og fylgst með þeim stakkaskiptum sem bæjarfélagið hefur tekið á þeim tíma. Það var ekki að ástæðulausu sem ég tók ákvörðun um að starta rekstri og byggja upp fyrirtækið mitt í bænum enda frábært reka fyrirtæki í Kópavogi. Ég vil leggja mitt af mörkum og gefa til baka. Einmitt þess vegna er ég í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum 16. maí. Það vill stundum gleymast að Kópavogur er í raun miðja höfuðborgarsvæðisins. Hér búa ríflega 40 þúsund manns, hér eru verslanir og þjónusta sem fólk treystir á daglega og mörg fyrirtæki horfa til þess möguleika að flytja starfsemi sína og höfuðstöðvar hingað. Til þess að halda þessum þrótti við þarf að styrkja atvinnulífið og laða að ný fyrirtæki, líkt og með lækkun álagningarhlutfalls fasteignagjalda á yfirstandandi kjörtímabili. Bæjarbúar hafa einnig getað fylgst með uppbyggingu nýrra perla á borð við Sky Lagoon, sem hefur nú þegar markað sér stöðu sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn og Íslendinga. Tækifæri eru til staðar til frekari uppbyggingar, t.a.m. með yndishöfn á Kársnesi, aðstöðu fyrir sjósund og uppbyggingu við Vatnsenda, sem aflað gæti Kópavogi frekari vinsælda í þessum geira. Til að tryggja blómlegt samfélag til framtíðar þurfum við einnig að hugsa um þá sem eru að hefja lífið. Stúdentaíbúðir á Kársnesinu eru skynsamleg og tímabær hugmynd, sérstaklega með tilliti til nýju brúarinnar yfir Fossvoginn sem opnar fyrir enn betri tengingu við háskólasvæðið. Þar er tækifæri sem þarf að grípa. Þess þarf jafnframt að gæta að nóg sé til staðar til að næra bæði andann og líkamann. Fyrirhugaðar bæjarhátíðir, jólamarkaðir og jólatorg við Hamraborgina munu síðan verða ferskur andblær inn í bæjarbraginn og einnig til að efla enn meira líflega menningu. Í bænum er íþróttastarfið í fremstu röð og ekki er útlit fyrir annað en að bætt aðstaða fyrir íþróttafélögin, t.a.m. með nýrri stúku fyrir HK, nýtt og betrumbætt svæði fyrir Ými, nýja gervigrasið hjá Breiðablik og nýrri aðstöðu fyrir Hestamannafélagið Sprett, verði enn frekari lyftistöng fyrir bæjarfélagið. Þá er fyrir löngu orðið ljóst að framboð af rástímum er ekki nægur til að anna golfþorsta landsmanna. Við viljum því skoða alvarlega hvort ekki sé unnt að finna nýjum níu holu golfvelli stað í bænum, hafa þá verið nefndir staðir eins og t.d.í Fossvogsdal eða í efri byggðum Kópavogs til að koma til móts við eftirspurnina. Það er og verður gott að búa í Kópavogi. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn er í forystu er öryggi í fjármálunum, þjónustan er til staðar og tekið á stjórnartaumunum af festu. Grunnurinn er tryggur og tækifæri til staðar til að byggja ofan á hann. Við treystum okkur í að halda sókninni áfram. Höfundur er framkvæmdastjóri, fyrrverandi knattspyrnudómari og skipar 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar