Keldnaland steinsteypt excelskjal Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar 8. maí 2026 14:30 Keldnaland á að verða stærsta og glæsilegasta skipulagsverkefni Reykjavíkur, það er,ef maður trúir glærukynningunum, tölvuteikningunum og stikkorðunum „vistvænt“ og „sjálfbært“ Ekki bara hverfi heldur lífstíll. Fólk á að geta búið, unnið, verslað, drukkið latté og líklega farið í jóga án þess að fara út fyrir hverfismörkin. Hverfi með takmarkað magn á bílastæðum. Álíka vinsæl og díselbíll á loftslagsráðstefnu Meirihlutinn í borgarstjórn virðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að fólk vilji helst búa mjög þétt. Svo þétt að nágranninn getur líklega kryddað kvöldmat nágrannans út um gluggann. Hugmyndin um þétting byggðað virðist nefnilega vera álíka vinsæl og díselbíll á loftslagsráðstefnu. En kannski mætti leyfa smá fjölbreytni? Kannski gæti einhver fengið lóð fyrir einbýlishús án þess að þurfa að vinna í bitcoin eða erfa auðugan frænda. Kannski mætti byggja raðhús, parhús og litlar blokkir í bland, svona eins og fólk hefur búið í siðmenntuðum borgum árum saman. Það þarf nefnilega ekki allt að líta út eins og steinsteypt Excel-skjal með hámarksnýtingu á fermetrum. Á gönguskíðum eftir mjólk í febrúar Keldnaland er nefnilega ekki miðbær Reykjavíkur. Það er fyrir ofan Ártúnsbrekkuna og hluti af úthverfi. Þar af leiðandi ætti uppbyggingin líka að vera í anda Grafarvogs,fjölskylduvæn, lágbyggð og mannvæn. Ekki einhver tilraun til að troða „lítilli miðborg“ ofan í úthverfi þar sem fólk þarf að fara á gönguskíðum eftir mjólk í febrúar. Lóðaskortur orðinn að viðskiptamódeli Það merkilegasta er þó að lóðaskorturinn virðist orðinn eins konar viðskiptamódel. Hugmyndafræðin virðist vera sú að halda lóðaframboðinu í höndum fárra útvaldra aðila sem síðan braska sín á milli með kaup og sölur, með fyrirsjáanlegri niðurstöðu: síhækkandi íbúðaverði fyrir almenning. Þetta er auðvitað stórkostlegt kerfi, sérstaklega ef markmiðið er að tryggja að ungt fólk búi hjá foreldrum sínum langt fram yfir þrítugt. Ef áformin ganga eftir gæti íbúafjöldi Grafarvogs tvöfaldast. Lausnin virðist helst vera sú að byggja mjög þétt og treysta á Borgarlínuna. Keldnaland á samkvæmt hugmyndunum að verða þéttur og vistvænn borgarhluti byggður í kringum Borgarlínu, hjólastíga og göngustíga. Það hljómar auðvitað stórkostlega á skipulagsráðstefnu í Kaupmannahöfn. En Ísland er samt ennþá Ísland. Við búum í nyrstu höfuðborg heims þar sem veðrið getur farið úr sól í snjókomu og lárétta rigningu á korteri. Bílastæðaskipulagið tekur einfaldlega ekki mið af íslenskum aðstæðum. Ísland er bíldrifin menning ekki af því að Íslendingar elski sérstaklega að sitja í umferð heldur vegna þess að veðrið er óstöðugt og borgin dreifð. Við getum ekki alltaf borið okkur saman við Evrópuborgir þar sem fólk getur rölt um í stuttbuxum og strigaskóm hálft árið. Steinsteypu klúður fyrir skipulagsfræðinga Keldnaland þarf ekki að verða annað steinsteypu klúður fyrir skipulagsfræðinga sem hata bíla. Það gæti orðið fallegt miðlungsþétt fjölskylduhverfi með blöndu af raðhúsum, parhúsum, tvíbýlum, einbýlum og litlum fjölbýlum. Byggð þar sem fólk hefur aðgang að bílastæðum við húsin sín, bílageymslum þar sem við á og raunhæfum samgöngum í stað þess að allt standi og falli með einni Borgarlínu. Keldnaland á ekki að vera hverfi sem er hannað til að redda þrýstingi á fasteignamarkaði eða hámarka lóðatekjur borgarinnar. Það á að vera vandað, fallegt og lágreist hverfi þar sem fólk vill raunverulega búa ekki bara sofa á milli vinnu og Borgarlínuferða. Borg verður nefnilega ekki sjálfkrafa mannvæn bara af því að það sé kaffihús á jarðhæðinni og hjólastígur á teikningunni. Höfundar eru í framboði á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar