Í straff vegna skilaboða til ólögráða stúlku Sindri Sverrisson skrifar 8. maí 2026 13:52 Álex Jiménez fær ekki að spila með Bournemouth um helgina. Getty/Robin Jones Hinn 21 árs gamli Álex Jiménez, varnarmaður enska knattspyrnufélagsins Bournemouth, hefur verið tekinn út úr leikmannahópi félagsins en hann er sakaður um að hafa sent grunnskólastelpu óviðeigandi skilaboð.
Samkvæmt frétt The Sun eru skjáskot í dreifingu sem sýna samtal Jiménez við 15 ára stúlku og sjálfsmynd sem hann tók í bílnum sínum, með tvíræðum myndatexta. Bournemouth sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins í dag þar sem sagði: „AFC Bournemouth er kunnugt um færslur sem eru í dreifingu á samfélagsmiðlum og varða hægri bakvörðinn Alex Jimenez. Félagið skilur alvarleika málsins og það er nú til rannsóknar. Af þessum sökum verður Alex ekki í leikmannahópnum fyrir leikinn á morgun í ensku úrvalsdeildinni gegn Fulham og félagið mun ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu.“ Jimenez, sem er Spánverji, kom til Englands frá AC Milan síðasta sumar. Hann kom upphaflega að láni en skrifaði undir langtímasamning í febrúar sem gildir til ársins 2031. Jiménez hefur komið við sögu í 32 leikjum fyrir Bournemouth í vetur og skorað eitt mark, í 3-2 sigri gegn Liverpool. Bournemouth er sem stendur í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og það sæti gæti dugað til að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð, ef og aðeins ef Aston Villa endar í 5. sæti og vinnur úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Fótbolti „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Körfubolti „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Íslenski boltinn Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Enski boltinn Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Körfubolti Fleiri fréttir Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Sjá meira