„Líttu upp Jóhann Páll“ Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar 8. maí 2026 12:45 Í tilefni að 100 árum David Attenborough Sæll Jóhann Páll, ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála. Í dag fagnar David Attenborough 100 ára afmæli sínu. Maðurinn sem hefur varið nær allri ævi sinni í að minna mannkynið á fegurð jarðarinnar og hversu hratt við erum að glata henni. Á fundi með þér í fyrra færðum við þér mynd af Seyðisfirði, áritaða af honum. Aðdragandinn var sá að fyrir tveimur árum sendum við Attenborough myndir af firðinum og plaköt úr baráttunni, ásamt bréfi um stöðu mála varðandi vernd fjarðarins. Mér til mikillar gleði, og aðallega undrunar, sendi hann myndirnar til baka, áritaðar. Það var stór stund fyrir okkur að maðurinn sem hefur verið ein virtasta rödd náttúruvísinda fyrir heilar kynslóðir skyldi senda litlum firði á Íslandi stuðning með þessum hætti. Síðan þá höfum við sagt að heilagur Davíð vaki yfir baráttunni og muni sigla þessu heim með okkur. Hér má líta myndina. Það sem Sir David Attenborough hefur reynt að fá okkur til að skilja er að við séum ekki ofar náttúrunni heldur hluti af henni. Ekki æðri öðrum lífverum sem deila þessari jörð með okkur. Samt hegðum við okkur oft eins og allt annað líf sé hér fyrst og fremst til að þjóna hagkerfinu, neyslunni og gamaldags hugmyndum um verðmætasköpun. Stærsta áskorun samtímans er þannig ekki aukin verðmætasköpun á kostnað náttúrunnar, heldur að vinda ofan af þeirri kerfislægu græðgi sem virðist alltaf þurfa meira, stærra og hraðara, nú þegar við sjáum hvert sú vegferð leiðir okkur. Kerfi sem aftengir fólk frá náttúrunni, frá hvort öðru og jafnvel frá sjálfu sér, þar sem sífellt fleiri keppast við að fylla innra tómarúm með veraldlegum verðmætum á meðan eitthvað miklu dýrmætara glatast. Það sem veldur mér og svo ótal mörgum áhyggjum er að þessi sami hugsunarháttur birtist svo skýrt í ákvörðunum sem við stöndum frammi fyrir núna. Ungæðingsháttur og skortur á varfærni í umgengni við náttúruna gæti orðið virkilega dýrkeypt, ekki aðeins fyrir okkur heldur kynslóðirnar sem á eftir koma. Kannski er það þess vegna sem okkur finnst áritaða myndin skipta máli. Ekki sem gjöf til að hanga uppi á vegg. Heldur sem raunveruleg áminning. Áminning um að það séu til mikilvægari hlutir en skammtímagróði. Að það séu til mörk sem við eigum ekki alltaf að fara yfir þó við getum það, tæknilega séð. Stundum felst mesta gæfan fyrir landið og náttúruna einfaldlega í því að staldra við. Við vonum að þú gefir þér tíma til að horfa á myndina í dag. Að þú íhugir skilaboð vitra öldungsins, hans David Attenborough ! Með vinsemd og virðingu, Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, náttúrubarn og formaður Vá, félags um vernd fjarðar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar