Húsnæði er mannréttindi – Húsnæði fyrst. Enginn á heima á götunni Harpa HIldiberg Böðvarsdóttir skrifar 8. maí 2026 13:12 Þegar við horfum til framtíðar í okkar ástkæru borg, þurfum við að spyrja okkur: Fyrir hvern er borgin? Frambjóðendur koma fram með ýmsa kosti og loforð, en raunverulegt gildi borgarsamfélagsins mælist í því hvernig við hlúum að þeim sem standa höllum fæti. Borgin okkar er fjölbreytt. Við viljum fallega byggð, blómleg úthverfi og öflugt skólakerfi fyrir börnin okkar. En borg er ekki bara steinsteypa og skipulag; hún er fólkið sem þar býr.Mér er mjög hugleikið hvernig við nálgumst velferðarmálin. Það á enginn að þurfa að bíða eftir nauðsynlegri þjónustu. Þar sem hjarta mitt slær harðast eru þó málefni þeirra sem glíma við fíknivanda og húsnæðisleysi. Álag á heilu fjölskyldurnar Það vantar almennileg og varanleg búsetuúrræði í okkar borg fyrir fólk í langvarandi fíknivanda og heimilislausa. Það er ekkert eðlilegt við það að foreldrar þurfi að veita fullorðnum einstaklingi athvarf á heimilinu vegna þess að ekkert annað en gatan bíður.Þetta skapar gríðarlegt álag á alla fjölskylduna; foreldra, systkini og alla sem koma að. Þetta ástand er hreinlega óviðunandi. Housing First: Virðing í verki Við vitum hvað þarf að gera. Aðferðafræðin Housing First, eða Húsnæði fyrst, er dýrmæt vegna þess að hún mætir fólki þar sem það er statt. Fólki er tryggt öruggt skjól sem grunnur að öðru með félagslegum stuðningi og viðhaldsmeðferð eftir þörfum hvers og eins.Reykjavíkurborg er byrjuð að innleiða þetta með stuðningi frá ríkinu en það gerist allt of hægt. Það þarf meiri kraft, meira fjármagn og skýrari pólitískan vilja í þessa uppbyggingu núna. Kjóstu fólk, ekki bara flokk Ég hvet alla íbúa, og sérstaklega þá sem þekkja þessa baráttu af eigin raun, til að kynna sér málin vel fyrir kosningar. Ekki kjósa bara flokk af vananum eða af því að fjölskyldan hefur alltaf gert það.Kynntu þér frambjóðendur og finndu frambjóðanda sem þekkir þessi mál út og inn.Ég hef fundið þann frambjóðanda en hann hefur starfað í eldlínunni á þessum vettvangi og mitt atkvæði fer að öllum líkindum til hans og ég vona auðvitað að sá frambjóðandi láti verkin tala í þessum málaflokki.Það er nefnilega mikilvægara að velja fólk sem maður hefur trú á að geti knúið fram breytingar en að fylgja flokksmerkjum í blindni. Ákall til þeirra sem vilja stjórna Kæru frambjóðendur, hvernig ætlið þið að tryggja að velferðarkerfið okkar grípi þau sem veikast standa?Ég skrifa sem sjálfskipaður talsmaður þeirra sem hafa fáar raddir í þessu kerfi; foreldra, barna og fjölskyldna sem hafa mátt bíða áratugum saman eftir sjálfsögðu öryggi. Hugsum um framtíðina og þá foreldra sem eiga eftir að standa í þessum sporum; foreldra sem þurfa endalaust að minna á veikustu aðstandendur sína til að reyna að fá fullnægjandi aðstoð.Tryggjum að þeir foreldrar og þeirra veikustu aðstandendur fái meiri hjálp í framtíðinni en við höfum fengið. Gerum kröfu um borg sem er skjól fyrir alla þar sem manngæska, skilningur og raunverulegar lausnir ráða för.Borgin á að vera fyrir okkur öll, ekki síst okkar veikustu bræður og systur. Höfundur er móðir einstaklings með fíknisjúkdóm. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar