Félagsmiðstöðvar skipta máli Arndís Bára Pétursdóttir skrifar 8. maí 2026 11:01 Á Eskifirði er hæð sem Eskfirðingar kalla Klifið. Í Klifinu segja bækur og eldra fólk að þar hafi verið buna sem þótti alveg einstaklega góð og svalandi. Ég man samt ekki eftir Bununni, þótt þarna hafi vissulega verið smá spræna þegar ég var að alast upp en ekki nógu kraftmikil til þess að svala þorstanum. En ég hugsa stundum um hana, þetta svæði og allt það sem var þar áður. Árið 1910 var ráðist í framkvæmdir á nýrri skólabyggingu í Klifinu sem í dag er gjarnan kallaður gamli Barnaskólinn. Árið 2026 eru annars konar framkvæmdir í húsinu en þar hefur verið mikil endurnýjun síðustu ár og húsið bíður spennt eftir nýju hlutverki. Húsið á Klifinu hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum árin og flestir frá plássinu eiga minningar um svæðið, húsið og starfsemina þar. Hvort sem það var skóli, samkomustaður og/eða félagsmiðstöð. Félagsmiðstöðin Knellan var lengi þar til húsa. Ég man eftir henni þar: tónlistinni, lyktinni, namminu og draugunum. Nú er Félagsmiðstöðin Knellan til húsa á gömlu bæjarskrifstofunum fyrir ofan Valhöll. Félagsmiðstöðin Knellan var stofnuð árið 1985 og er ein elsta félagsmiðstöð landsins. Félagsmiðstöðin heitir eftir verslun og íbúðarhúsi langalangafa míns, sem stóð í Klifinu fyrir neðan gamla skólann á síðustu öld, en þar seldi Langi langi knall(h)ettur eða knellur. Orðið knella er tökuorð úr dönsku „knallhetta” sem þýðir: lítill hluti sem sér um að kveikja í hleðslu með snöggum hvelli eða neista þegar högg kemur á hana. Kveikjum aftur knelluna í Fjarðabyggð Félagsmiðstöðvar í Fjarðabyggð skortir í dag þann neista, þá knellu sem áður kveikti líf í tómstundastarfi ungs fólks. Samfylkingin og annað félagshyggjufólk vill leggja áherslu á að efla félagsmiðstöðvar í sveitarfélaginu, endurskoða opnunartíma og búa til öflugri vettvang fyrir unga fólkið. Við þurfum að halda áfram að efla faglegt starf félagsmiðstöðva og gera endurbætur á húsnæði. Til þess þurfum við skýra framtíðarsýn fyrir allt félagsmiðstöðvastarf í Fjarðabyggð. Við viljum leggja áherslu á fjölbreyttara starf og samstarf á milli byggðakjarna. Þar gegna samgöngur lykilhlutverki þannig að börn og ungmenni geti sótt viðburði óháð staðsetningu. Félagsmiðstöðvar eiga ekki að mæta afgangi hjá sveitarfélaginu. Félagsmiðstöðvar eiga að vera öruggur staður fyrir ungmenni á kvöldin, því að þegar uppi er staðið eru félagsmiðstöðvar og föstudagsopnanir besta forvörnin. Höfundur skipar 5. sætið á framboðslista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð og er fyrrverandi forstöðumaður Knellunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjarðabyggð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar