Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir, María Araceli og Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifa 8. maí 2026 08:51 Leikskólamál í Hveragerði hafa tekið miklum framförum á síðustu misserum. Biðlistar hafa styst verulega og flest börn komast nú inn um 12 mánaða aldur. Leikskólagjöld eru jafnframt í hóflegu lágmarki. Þetta er mikilvægur árangur sem ber að fagna. Í dag taka heimgreiðslur við frá 12 mánaða aldri ef barn hefur ekki fengið leikskólapláss. Það hefur reynst mikilvægt öryggisnet fyrir fjölskyldur. En sífellt fleiri foreldrar kalla eftir meira en öryggi – þeir vilja raunverulegt val. Margir foreldrar vilja geta verið lengur heima með börnum sínum, jafnvel þótt leikskólapláss standi til boða. Í dag standa þeir frammi fyrir erfiðu vali: að snúa fyrr til vinnu en þeir kjósa eða taka á sig tekjutap með tilheyrandi áhrifum á atvinnuöryggi og stöðu á vinnumarkaði. S-listinn bregst við ákalli S-listinn í Hveragerði vill bregðast við þessu ákalli. Við leggjum til að foreldrar geti frestað leikskólaplássi tímabundið og fengið heimgreiðslur áfram upp að 24 mánaða aldri barns. Slík útfærsla þarf að vera einföld og skýr og tryggja að sveigjanleikinn komi ekki niður á aðgengi annarra barna eða nýtingu leikskólaplássa. Leikskólinn er lykilstofnun og mikilvægt fyrsta skólastig sem öll börn eiga að eiga kost á. Á sama tíma eru fyrstu tvö ár barns mótandi tími þar sem tengsl, öryggi og nærvera við foreldra skipta sköpum. Fyrir sumar fjölskyldur er besti kosturinn að hafa meiri tíma saman á þessum fyrstu árum og ætti það að vera raunhæfur valkostur. Heimgreiðslur eru ekki háar og skapa ekki verulegan fjárhagslegan ávinning. Þær skipta þó máli sem viðurkenning á vali foreldra og geta létt undir með fjölskyldum á viðkvæmum tíma. Hér erum við ekki aðeins að ræða kerfi, heldur fyrstu ár í lífi barns. Með þessari tillögu viljum við auka sveigjanleika, treysta foreldrum og stuðla að farsælli leikskólabyrjun barna í Hveragerði. Greinarhöfundar eru frambjóðendur á S-listanum í Hveragerði Birgitta Ragnarsdóttir er í 1. sætiMaría Araceli er í 3. sætiBerglind Ósk Guttormsdóttir er í 5. sæti Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Leikskólamál í Hveragerði hafa tekið miklum framförum á síðustu misserum. Biðlistar hafa styst verulega og flest börn komast nú inn um 12 mánaða aldur. Leikskólagjöld eru jafnframt í hóflegu lágmarki. Þetta er mikilvægur árangur sem ber að fagna. Í dag taka heimgreiðslur við frá 12 mánaða aldri ef barn hefur ekki fengið leikskólapláss. Það hefur reynst mikilvægt öryggisnet fyrir fjölskyldur. En sífellt fleiri foreldrar kalla eftir meira en öryggi – þeir vilja raunverulegt val. Margir foreldrar vilja geta verið lengur heima með börnum sínum, jafnvel þótt leikskólapláss standi til boða. Í dag standa þeir frammi fyrir erfiðu vali: að snúa fyrr til vinnu en þeir kjósa eða taka á sig tekjutap með tilheyrandi áhrifum á atvinnuöryggi og stöðu á vinnumarkaði. S-listinn bregst við ákalli S-listinn í Hveragerði vill bregðast við þessu ákalli. Við leggjum til að foreldrar geti frestað leikskólaplássi tímabundið og fengið heimgreiðslur áfram upp að 24 mánaða aldri barns. Slík útfærsla þarf að vera einföld og skýr og tryggja að sveigjanleikinn komi ekki niður á aðgengi annarra barna eða nýtingu leikskólaplássa. Leikskólinn er lykilstofnun og mikilvægt fyrsta skólastig sem öll börn eiga að eiga kost á. Á sama tíma eru fyrstu tvö ár barns mótandi tími þar sem tengsl, öryggi og nærvera við foreldra skipta sköpum. Fyrir sumar fjölskyldur er besti kosturinn að hafa meiri tíma saman á þessum fyrstu árum og ætti það að vera raunhæfur valkostur. Heimgreiðslur eru ekki háar og skapa ekki verulegan fjárhagslegan ávinning. Þær skipta þó máli sem viðurkenning á vali foreldra og geta létt undir með fjölskyldum á viðkvæmum tíma. Hér erum við ekki aðeins að ræða kerfi, heldur fyrstu ár í lífi barns. Með þessari tillögu viljum við auka sveigjanleika, treysta foreldrum og stuðla að farsælli leikskólabyrjun barna í Hveragerði. Greinarhöfundar eru frambjóðendur á S-listanum í Hveragerði Birgitta Ragnarsdóttir er í 1. sætiMaría Araceli er í 3. sætiBerglind Ósk Guttormsdóttir er í 5. sæti
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar