Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. maí 2026 21:59 Bandarískur hermaður fylgist með Hormússundi. Myndin var tekin í apríl. Getty Íranski herinn sakar Bandaríkjaher um að hafa brotið gegn samkomulaginu um vopnahlé. Bandaríkjamenn segjast hafa skotið gegn Írönum í sjálfsvörn.
Í yfirlýsingu frá íranska hernum sem BBC greinir frá saka þeir Bandaríkjaher um að hafa skotið á íranskt olíuskip sem var á leiðinni í átt að Hormússundi. Þá hafi bandaríski herinn einnig ráðist á annað skip í nánd við sundið. Einnig segja Íranir að herinn hafi gert loftárásir við strendur Írans. Íranski herinn hafi svarað árásum Bandaríkjahers undir eins og valdið miklum skaða. Skömmu síðar barst tilkynning frá yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum þar sem hún segist hafa hafið skothríð til að verja sig gegn árásum Írana. Íranir hafi miðað flugskeytum, drónum og sent litla báta til að ráðast á þrjú bandarísk herskip. Þó hafi þeim ekki tekist að hæfa skipin. „Yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum eyddi yfirvofandi ógnum og beindi árásum að hernaðarmannvirkjum Írana sem báru ábyrgð á árásum á hersveitir Bandaríkjanna, þar á meðal skotpöllum fyrir flugskeyti og dróna, stjórnstöðvum og njósna-, eftirlits- og könnunarstöðvum,“ segir í yfirlýsingunni. Bandaríkjaher sækist ekki eftir stigmögnun átaka en sé áfram í viðbragðsstöðu. Ljóst er að bæði Íranir og Bandaríkjamenn gerðu árásir hvor á annan. Ríkisútvarp Írans Vopnahlé er í gildi eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í lok febrúar. Þá er einnig í gildi vopnahlé milli Ísraela og Líbanon en Ísraelar réðust samt sem áður á Beirút í gær á þeim forsendum að þeir væru að reyna drepa foringja innan Hezbollah-samtakanna.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira