Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar 7. maí 2026 20:47 Stækkun bæjarins með tilheyrandi lengri vegalengdum innanbæjar hefur haft í för með sér mikla fjölgun bíla á Akureyri undanfarin ár. Nú eru fleiri einkabílar á mann á Akureyri en á höfuðborgarsvæðinu. Skipulagið og stopular ferðir strætisvagna gera það að verkum að flest heimili komast varla af án tveggja bíla. Þetta eykur umferð og nú er farið að bera á töfum í umferðinni á Akureyri. Einkum á þetta við um gatnamót Hörgárbrautar, Glerárgötu, Borgarbrautar og Tryggvabrautar, en einnig myndst langar raðir á Hlíðarbraut í lok vinnudags og víðar. Að sama skapi hefur nýting á bílastæðum miðsvæðis aukist. Fjölgun bíla og aukinni umferð fylgja ókostir eins og lengri ferðatími, færri laus bílastæði og aukið svifryk. Viðbrögð við þessu voru að hefja gjaldtöku á bílastæðum í miðbænum, sem hefur losað um þau til bóta fyrir þjónustuaðila í miðbænum. Gjaldtakan er hófleg og hefur skilað tilætluðum árangri. Einhverjir tala fyrir byggingu bílastæðahúss í miðbænum, en það er mjög dýr framkvæmd og ekki tímabær. En hvað er til ráða til að stuðla að greiðri umferð og góðu aðgengi að bílastæðum? Það er hægt að bregðast við með ýmsum hætti. Besta lausnin væri að bæta mjög strætókerfið á Akureyri, laga leiðaferfið og auka tíðni þannig að strætó nái yfir allan bæinn. Hann þarf að aka í Krossanes, út á flugvöll og inn í Kjarnaskóg. Og strætó þarf að verða raunhæfur valkostur við að eiga bíl, eða alla vega þannig að það mætti fækka um annan bílinn á heimilinu. Það mundi í senn minnka umferð og skutl, minnka svifryk og spara háar fjárhæðir í heimilisrekstrinum. Þar er eftir miklu að slægjast, því samkvæmt vef FÍB kostar um 155 þúsund krónur á mánuði að reka bíl sem er ekið 15.000 km á ári. Stígakerfið á Akureyri hefur verið í þróun undanfarin ár og það þarf að halda áfram á þeirri leið til að hvetja íbúa til að ganga og hjóla meira. En með rafhjólunum er “Akureyri orðin flöt” eins og einhver benti á. Með því að Akureyrarbær taki upp samgöngustyrki fyrir sitt starfsfólk, eins og sum fyrirtæki eru að gera nú þegar , væri með betra strætókerfi og “flatneskjunni” á Akureyri kominn góður hvati fyrir fólk að skipta yfir í rafhjól og aðra umhverfisvænni ferðamáta. Samhliða þarf að gera átak í að byggja vönduð hjólaskýli fyrir stækkandi flota rafmagnshjóla við fyrirtæki og stofnanir í bænum. Einhverjir kunna að óttast kostnað við að auka við rekstur strætó, veita samgöngustyrki og byggja fjöldann allan af hjólaskýlum. En það er miklu, miklu dýrara að bæta sífellt í innviði fyrir aukinn fjölda einkabíla, götur og bílastæði. Þó að einkabíllinn verði áfram aðal samgöngutækið er það bæði hagkvæmara og bætir lýðheilsu að stækka þann hóp sem notar aðra ferðamáta. Með fjárhagslegum hvötum til einstaklinga er því bæði verið að gera rekstur Akureyrarbæjar betri og gera bæjarbúim mögulegt að draga úr mikilvægi einkabílsins og spara verulega í heimilisrekstrinum. Höfundur skipar 16. sætið á lista Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar