Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar 8. maí 2026 08:03 Ég hef unnið með börnum og ungmennum í tuttugu ár og síðustu ellefu árin í framhaldsskóla. Ég hef fundið hversu gríðarlega miklu máli það skiptir að ungmenni upplifi samstöðu, öryggi og viðurkenningu. Samfélag sem hefur pláss fyrir okkur öll er samfélag sem við viljum tilheyra. Ég hef þar af leiðandi líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst. Þegar þögn, ótti eða vanþekking fá að ráða för. Þá getur skaðinn orðið óafturkræfur, þá verður jaðarsetningin raunveruleg og börn og ungmenni upplifa óöryggi í sínu daglega lífi. Ef jafnrétti væri náð værum við ekki að ræða hvort það sé „viðeigandi“ að flagga hinsegin fána eða sinna hinsegin fræðslu. Ef raunverulegu jafnrétti væri náð myndin enginn taka slíka umræðu alvarlega. Fjölbreytileiki eðlilegur hluti af tilverunni Einmitt þess vegna skiptir hinsegin fræðsla máli. Hún snýst ekki um að „ýta einhverju upp á fólk“ eins og sumir halda fram heldur snýst hún um að byggja upp skilning, draga úr fáfræði og tryggja að börn og ungmenni alist upp í samfélagi þar sem fjölbreytileiki er eðlilegur hluti af tilveru okkar. Hún snýst um að segja: hér er pláss fyrir þig. Sýnileiki skiptir líka máli. Þegar við flöggum hinsegin fánanum eða öðrum táknum erum við að sýna viðurkenningu og samstöðu í verki. Við erum ekki að traðka á réttindum annarra eða ráðast á þá, heldur stöndum við vörð um mannréttindi og minnum á að þau eiga við um okkur öll. Við megum aldrei leyfa hatri að sigra ástina. Við megum aldrei leyfa röddum sem ala á fordómum og útskúfun að verða ráðandi. Saga hinsegin fólks sýnir okkur hvað gerist þegar þögnin fær að ríkja og hversu mikilvægt það er að standa upp, tala skýrt og verja réttinn til að vera til. Ekki róttæk krafa heldur einfaldlega réttlæti Tjáningarfrelsi er mikilvægt en það er ekki skilyrðislaust. Þitt tjáningarfrelsi stoppar þegar það fer að grafa undan mannréttindum annarra eða kynda undir hatursorðræðu. Þetta er einfaldlega grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi. Hinsegin fræðsla á ekki að vera jaðarmál. Hún á að vera sjálfsagður hluti af öllu samfélaginu. Í skólum, á vinnustöðum og í opinberri umræðu. Hún er verkfæri til að byggja réttlátara, opnara og mannúðlegra samfélag. Viðreisn hefur tekið skýra og mikilvæga afstöðu í þessum málaflokki. Það skiptir máli að stjórnmálaflokkar stígi fram og standi með mannréttindum, ekki bara þegar það er þægilegt, heldur líka þegar það skiptir raunverulega máli. Við getum byggt samfélag þar sem enginn þarf að efast um rétt sinn til að vera til, elska og tilheyra. Það er ekki róttæk krafa. Það er einfaldlega réttlæti. Höfundur skipar 6 sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar