Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar 7. maí 2026 14:47 Það eru tækifæri til þess að koma í veg fyrir að íbúar Urriðaholts verði sviknir um almennilega sundlaug og það vill Miðflokkurinn gera með því að skoða möguleika til stækkunar útisvæðis, sem gerir okkur kleift að bæta við öðrum heitum potti, köldum potti, saunuklefa úti og lítilli rennibraut fyrir börn við aðstöðuna svo hún nýtist öllum íbúum svæðisins. Íbúum Urriðaholts var ávallt lofað að sundlaug kæmi í hverfið, enda er hverfið það stærsta í Garðabæ og á pari við allt Seltjarnarnes í íbúafjölda. Sundlaug við Urriðaholtsskóla er vissulega í byggingu og á lokametrunum en sú sundlaug er aðallega hugsuð fyrir skólasund. Laugin samanstendur af 16,7m kaldri innilaug, lítilli vaðlaug, infrarauðri sauna og einum heitum potti á útisvæði. Laugin er mun minni en íbúar áttu von á. Núverandi bæjarstjórn fullyrðir að íbúum verði kleift að nota heita pottinn og infrarauðu saununa utan opnunartíma, en við drögum í efa að átt sé við hefðbundinn opnunartíma um kvöld og helgar. Ólíklegt er að bærinn haldi lauginni opinni fyrir þá örfáu gesti sem laugin rúmar. Það er í raun óþolandi að bæjaryfirvöld hafi ekki nýtt það einstaka tækifæri við uppbyggingu sundlaugarinnar til að gera hlutina vel og samkvæmt óskum íbúa. Það hefði ekki verið mikil fyrirhöfn að hafa útisvæði stærra og gefa okkur íbúum, á öllum aldri, góðan samanstað allan ársins hring. Er það kannski ekki of seint? Á teikningum og myndum má sjá að það er enginn skortur á svæði til stækkunar. Það eru klárlega möguleikar til að bæta við útisvæði laugarinnar. Við í Miðflokknum viljum skoða möguleika til stækkunar laugarinnar og aukinnar hagnýtingar hennar fyrir alla íbúa hverfisins með því að stækka útisvæðið og auðvitað leyfa útsýninu frá lauginni að njóta sín. Höfundur er verkfræðingur og í 2. sæti á lista Miðflokksins í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Það eru tækifæri til þess að koma í veg fyrir að íbúar Urriðaholts verði sviknir um almennilega sundlaug og það vill Miðflokkurinn gera með því að skoða möguleika til stækkunar útisvæðis, sem gerir okkur kleift að bæta við öðrum heitum potti, köldum potti, saunuklefa úti og lítilli rennibraut fyrir börn við aðstöðuna svo hún nýtist öllum íbúum svæðisins. Íbúum Urriðaholts var ávallt lofað að sundlaug kæmi í hverfið, enda er hverfið það stærsta í Garðabæ og á pari við allt Seltjarnarnes í íbúafjölda. Sundlaug við Urriðaholtsskóla er vissulega í byggingu og á lokametrunum en sú sundlaug er aðallega hugsuð fyrir skólasund. Laugin samanstendur af 16,7m kaldri innilaug, lítilli vaðlaug, infrarauðri sauna og einum heitum potti á útisvæði. Laugin er mun minni en íbúar áttu von á. Núverandi bæjarstjórn fullyrðir að íbúum verði kleift að nota heita pottinn og infrarauðu saununa utan opnunartíma, en við drögum í efa að átt sé við hefðbundinn opnunartíma um kvöld og helgar. Ólíklegt er að bærinn haldi lauginni opinni fyrir þá örfáu gesti sem laugin rúmar. Það er í raun óþolandi að bæjaryfirvöld hafi ekki nýtt það einstaka tækifæri við uppbyggingu sundlaugarinnar til að gera hlutina vel og samkvæmt óskum íbúa. Það hefði ekki verið mikil fyrirhöfn að hafa útisvæði stærra og gefa okkur íbúum, á öllum aldri, góðan samanstað allan ársins hring. Er það kannski ekki of seint? Á teikningum og myndum má sjá að það er enginn skortur á svæði til stækkunar. Það eru klárlega möguleikar til að bæta við útisvæði laugarinnar. Við í Miðflokknum viljum skoða möguleika til stækkunar laugarinnar og aukinnar hagnýtingar hennar fyrir alla íbúa hverfisins með því að stækka útisvæðið og auðvitað leyfa útsýninu frá lauginni að njóta sín. Höfundur er verkfræðingur og í 2. sæti á lista Miðflokksins í Garðabæ.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar