Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar 7. maí 2026 13:32 Nú þegar hinir og þessir flokkar vilja lofa ýmsu um leikskólamál er mikilvægt að stoppa og skoða aðeins hverju er í raun verið að lofa? 8 tíma krísan Nú vilja aðrir flokkar lofa að setja þak á hámark leikskólagjalda. Gott og vel, en við skulum skoða þetta frekar. Átta tíma vistun fyrir eitt barn í leikskólum Kópavogs kostar 57.517 kr. svo að setja þak á 50 þúsund krónurnar gerir líklega lítið fyrir stærstan hluta hópsins. Í Kópavogi eru 34% barna í 8 tíma vistun eða lengri. Foreldrar 28% barna velja að hafa börn sín í gjaldfrjálsum leikskóla í 6 tíma á dag. Það þýðir að stærstur hluti foreldra eða um 38% eru með börn sín í leikskólanum í milli 6 og 8 tíma á dag og eru því að borga undir 50 þúsund á mánuði fyrir dvöl í leikskólum bæjarins. Börnin í aftursætið Okkar stefna hefur verið að setja börnin í fyrsta sætið í leikskólamálum, þ.e. að þeirra dagur í þeirra námsumhverfi sé eins góður og hann getur orðið. Við leggjum áherslu á að leikskólarnir séu mannaðir af fagfólki sem líður vel í vinnunni og getur þar af leiðandi veitt börnum þá hlýju, umhyggju og kennslu sem við öll viljum. Með Kópavogsmódelinu hefur okkur tekist þetta, og ég vitna í opið bréf sem stjórnendur leikskóla í bænum sendu hingað á Vísi í vetur: „Kópavogsmódelið er alls ekki hagræðing í rekstri sveitarfélags, né er verið að velta kostnaði yfir á foreldra eða draga úr þjónustunni. Kópavogsmódelið er svar við neyðarkalli okkar sem höldum úti afar mikilvægri samfélagslegri þjónustu og menntun ungra barna og hefur stórbætt starfsemi og líðan þeirra sem lifa og hrærast í leikskólum bæjarins.“ Með breyttri gjaldskrá kom hvati til breytinga; breytinga sem atvinnulífið verður að styðja. Kennarar og sérfræðingar sem ausa Kópavogsmódelið lofi verða að fá meiri meðbyr því Kópavogsmódelið er komið til að vera, barnanna vegna. Nú verðum við að aðlaga vinnumarkaðinn að börnunum í fyrsta skipti, en ekki leikskólana að vinnumarkaðnum. Með því að taka hvatann til að stytta daginn í burtu þá munu leikskólar Kópavogs fara aftur í sama far og áður, svo kosningaloforðið ætti kannski frekar að vera: „Börn í Kópavogi send heim vegna manneklu einu sinni í viku“ því það er það sem mun gerast verði Kópavogsmódelið þurrkað út. Mætum foreldrum Yfirleitt er rými til breytinga og bætinga. Við í Framsókn viljum koma til móts við þann hóp foreldra sem vill sannarlega að nýta sér í kringum 6 tíma leikskóladag. Við ætlum að lækka gjaldið á fyrsta hálftímanum eftir 6 tímana um 50%. Við trúum á Kópavogsmódelið, og meira að segja lofuðum því í síðustu kosningum. Við viljum halda áfram að styðja það, enda horfir flest fagfólk til Kópavogs þegar kemur að breytingum í leikskólamálum. Þar sem við sjáum bætt starfsumhverfi bæði barna og starfsfólks. Þar sem við setjum barnið alltaf í fyrsta sætið. Höfundur er formaður leikskólanefndar Kópavogs og situr í 5. sæti á lista Framsóknar í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar