Jöfnuður mælist ekki í orðum – heldur í því hvernig við mætum fólki Steinunn Ósk Óskarsdóttir skrifar 7. maí 2026 07:50 Ég vinn á hverjum degi með fólki sem hefur fallið út úr kerfinu. Fólki sem hefur glímt við fíkn, áföll og brotakennda þjónustu, þar sem úrræðin tala ekki saman og enginn ber ábyrgð á ferlinu í heild. Veruleikinn er sá að kerfið okkar er ekki nægilega samþætt. Afeitrun á einum stað, meðferð á öðrum, húsnæði annars staðar. Fólk dettur á milli úrræða. Þetta er raunveruleikinn sem margir búa við. Í mínu starfi sé ég þetta skýrt, sérstaklega hjá konum sem hafa oft upplifað meiri áföll og standa frammi fyrir enn fleiri hindrunum í kerfinu. Þar kemur þessi vandi hvað skýrast fram. Á síðustu vikum hefur SÁÁ gert samkomulag við Krýsuvík og Hlaðgerðarkot um að þeir sem eru á leið í langtímameðferð þar fái forgang í afeitrun. Þetta er mikilvægt skref í að tryggja samfellu í meðferð, eykur líkur á að einstaklingar nái bata og er stórt skref í átt að bættri þjónustu. Á síðasta ári fékk ein af okkar konum bakslag á meðan hún var í okkar úrræði. Við slepptum ekki takinu. Með samstilltu átaki og stuðningi sjálfboðaliða tókst að grípa hana og færa hana úr neysluumhverfi, þangað sem hún gat náð jafnvægi á ný. Í framhaldinu gat hún haldið áfram í meðferð hjá Krýsuvík og er í dag á góðum stað. Áður og á meðan hún var hjá okkur hafði verið lögð mikil vinna og fjármunir í hennar bata, vinna sem hefði getað tapast ef hún hefði misst fótanna aftur og ekki fengið stuðning á réttum tíma. Þetta er ekki sjálfgefið. Hefði hún verið sett á biðlista er alls óvíst hvar hún væri í dag. Samstarf Batahúsanna við Krýsuvík skiptir þar lykilmáli. Þegar upp koma bakslög er hægt að grípa okkar fólkið okkar hratt og tryggja að bataferlið haldi áfram. Þannig næst raunveruleg samfella í bataferlinu. Nú þegar þetta samkomulag er komið á aukast líkurnar á að fólk fái afeitrun strax og haldi áfram í meðferð án þess að detta á milli úrræða. Þetta snýst ekki bara um meðferð við fíkn. Sama mynstur sést víða í heilbrigðiskerfinu, til dæmis þegar kemur að áhættuhegðun barna og í geðheilbrigðisþjónustu. Þar skiptir samfella og samvinna milli úrræða ekki síður sköpum. Við vitum hvað virkar. Þegar fólk fær samfellu í þjónustu, faglegan stuðning og raunverulegt tækifæri, getur líf þeirra breyst til hins betra. Spurningin er einföld: Ætlum við að byggja kerfi sem virkar fyrir alla – eða bara suma? Samfylkingin vill byggja upp velferðarkerfi sem virkar í heild – þar sem þjónusta er tengd saman og manneskjan er í forgrunni. Það er sú stefna sem ég stend fyrir í mínu starfi á hverjum degi. Höfundur er forstöðukona Batahúss og skipar 13. sæti á lista Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar