Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Lovísa Arnardóttir skrifar 6. maí 2026 23:41 Epstein er talinn hafa svipt sig lífi í fangelsi árið 2019. AP/Jon Elswick Alríkisdómari í New York í Bandaríkjunum samþykkti í dag að birta opinberlega bréf sem Jeffrey Epstein á að hafa skrifað í fangelsi. Klefafélagi hans sagðist hafa fundið bréfið í myndasögu. Í frétt New York Times segir að þau hafi ekki staðfest rithönd Epstein í bréfinu. Í fréttinni segir að fjölmiðillinn hafi óskað þess í síðustu viku að bréfið yrði birt opinberlega eftir að þau birtu viðtal við Tartaglione sem var klefafélagi Epstein en Kenneth M. Karas er dómarinn í máli hans. Í viðtalinu lýsti hann því hvernig hann fann bréfið og hvar. Bréfið má sjá að neðan en þar segir: „Þeir rannsökuðu mig í marga mánuði. Fundu EKKERT!! Það eru forréttindi að geta valið sér tíma til að kveðja. Hvað viltu að ég geri – fari að grenja!! EKKI GAMAN – EKKI ÞESS VIRÐI!!“ 🚨 Epstein's apparent suicide note, unsealed today at the request of @nytimes."They investigated me for months. Found NOTHING!! It is a treat to be able to choose one's time to say goodbye.Watcha want me to do- Bust out cryin!!NO FUN--NOT WORTH IT!!" https://t.co/LS5z1AnCFV pic.twitter.com/5ysv3OIjN1— David Enrich (@davidenrich) May 6, 2026 Í frétt þeirra segir enn fremur að þrátt fyrir að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafi birt þúsundir Epstein-skjala hafi þessu bréfi verið haldið leyndu og að fjölmiðillinn hafi gert ítarlega leit í skjölunum að þessu bréfi. Leitin hafi aðeins skilað tveggja blaðsíðna tímalínu þar sem kom fram hvernig bréfið snerti mál Tartaglione og að lögmenn hans hafi staðfest uppruna bréfsins án þess þó að taka fram hvernig það var gert. Fyrrverandi lögreglur dæmdur fyrir morð Í frétt NY Times segir að Tartaglione, fyrrverandi lögreglumaður í Briarcliff Manor í New York, hafi deilt klefa með Epstein á meðan hann beið réttarhalda í fjórföldu morðmáli. Hann sagði The Times í nýlegum símaviðtölum úr fangelsi í Kaliforníu að hann hefði fundið miðann í myndasögu eftir að Epstein var fluttur úr klefa þeirra eftir meinta sjálfsvígstilraun. „Ég opnaði bókina til að lesa og þar var hann,“ sagði Tartaglione. Hann sagði að miðinn hefði verið skrifaður á gult blað sem rifið var úr skrifblokk. Réttarmeinafræðingur New York-borgar úrskurðaði 2019 að dauði Epsteins hefði verið sjálfsvíg. Frá þeim tíma hafa komið fram alls konar kenningar um að andlát hans hafi borið að með öðrum hætti. Mánuði áður en hann lést hafði hann fundist hálfmeðvitundarlaus í klefa sínum og með áverka. Talið var að þá hefði hann reynt að fyrirfara sér. Í frétt NY Times segir að þegar hann hafi verið spurður um áverkana hafi hann fyrst sagt að Tartaglione hefði ráðist á sig og að hann væri ekki með sjálfsvígshugsanir. Í fréttinni segir að Tartaglione hafi alltaf neitað að hafa ráðist á Epstein. Tartaglione sagðist hafa gefið lögfræðingum sínum miðann þar sem hann taldi að hann gæti hafa komið að gagni ef Epstein hefði haldið áfram að halda því fram að hann hefði reynt að meiða sig. Tartaglione var sakfelldur árið 2023 og afplánar nú fjórfaldan lífstíðardóm. Hann hefur haldið fram sakleysi sínu og áfrýjað dómnum. Í frétt NY Times segir einnig að bréf Epstein hafi orðið hluti af langdreginni lagadeilu milli lögfræðinga Tartagliones. Skjöl sem tengjast deilunni voru innsigluð af dómstólum til að vernda trúnað milli lögmanns og skjólstæðings, samkvæmt dómsskjölum. Mótmæltu ekki birtingu bréfsins Áður en Karas dómari aflétti innsiglinu af miðanum bað hann málsaðila um að koma á framfæri skoðunum sínum á beiðni The Times um að efnin yrðu gerð opinber. Skrifstofa ríkissaksóknara á Manhattan, sem sótti Tartaglione til saka, mótmælti ekki birtingu miðans. Í bréfi til dómarans skrifuðu saksóknararnir að „mikill almannahagur virðist vera af aðstæðum í kringum dauða Epsteins.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Dómsmál Fjölmiðlar Tengdar fréttir Þvertekur fyrir nokkur tengsl Líkt og fjölmargir aðrir hefur Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, verið bendluð við hin svokölluðu Epstein-skjöl. Hún tók sig til í dag og boðaði alla fréttamenn Hvíta hússins á fund en þar tilkynnti forsetafrúin að hvers kyns lygum sem tengdu hana við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein „yrði að linna í dag“. 9. apríl 2026 21:43 Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi úr embætti dómsmálaráðherra. Todd Blanche, staðgengill hennar, tekur við af henni. 2. apríl 2026 18:19 Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ „Við erum fjölskylda sem hefur verið í afar krefjandi aðstæðum síðustu vikurnar,“ segir Mette-Marit, krónprinsessa Noregs. „Ég er móðir ungs manns sem hefur verið í afar krefjandi aðstæðum. Auk þess bý ég við heilsu sem krefst mikillar hvíldar. Og hún hefur versnað,“ segir hún. 20. mars 2026 08:07 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira
Í fréttinni segir að fjölmiðillinn hafi óskað þess í síðustu viku að bréfið yrði birt opinberlega eftir að þau birtu viðtal við Tartaglione sem var klefafélagi Epstein en Kenneth M. Karas er dómarinn í máli hans. Í viðtalinu lýsti hann því hvernig hann fann bréfið og hvar. Bréfið má sjá að neðan en þar segir: „Þeir rannsökuðu mig í marga mánuði. Fundu EKKERT!! Það eru forréttindi að geta valið sér tíma til að kveðja. Hvað viltu að ég geri – fari að grenja!! EKKI GAMAN – EKKI ÞESS VIRÐI!!“ 🚨 Epstein's apparent suicide note, unsealed today at the request of @nytimes."They investigated me for months. Found NOTHING!! It is a treat to be able to choose one's time to say goodbye.Watcha want me to do- Bust out cryin!!NO FUN--NOT WORTH IT!!" https://t.co/LS5z1AnCFV pic.twitter.com/5ysv3OIjN1— David Enrich (@davidenrich) May 6, 2026 Í frétt þeirra segir enn fremur að þrátt fyrir að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafi birt þúsundir Epstein-skjala hafi þessu bréfi verið haldið leyndu og að fjölmiðillinn hafi gert ítarlega leit í skjölunum að þessu bréfi. Leitin hafi aðeins skilað tveggja blaðsíðna tímalínu þar sem kom fram hvernig bréfið snerti mál Tartaglione og að lögmenn hans hafi staðfest uppruna bréfsins án þess þó að taka fram hvernig það var gert. Fyrrverandi lögreglur dæmdur fyrir morð Í frétt NY Times segir að Tartaglione, fyrrverandi lögreglumaður í Briarcliff Manor í New York, hafi deilt klefa með Epstein á meðan hann beið réttarhalda í fjórföldu morðmáli. Hann sagði The Times í nýlegum símaviðtölum úr fangelsi í Kaliforníu að hann hefði fundið miðann í myndasögu eftir að Epstein var fluttur úr klefa þeirra eftir meinta sjálfsvígstilraun. „Ég opnaði bókina til að lesa og þar var hann,“ sagði Tartaglione. Hann sagði að miðinn hefði verið skrifaður á gult blað sem rifið var úr skrifblokk. Réttarmeinafræðingur New York-borgar úrskurðaði 2019 að dauði Epsteins hefði verið sjálfsvíg. Frá þeim tíma hafa komið fram alls konar kenningar um að andlát hans hafi borið að með öðrum hætti. Mánuði áður en hann lést hafði hann fundist hálfmeðvitundarlaus í klefa sínum og með áverka. Talið var að þá hefði hann reynt að fyrirfara sér. Í frétt NY Times segir að þegar hann hafi verið spurður um áverkana hafi hann fyrst sagt að Tartaglione hefði ráðist á sig og að hann væri ekki með sjálfsvígshugsanir. Í fréttinni segir að Tartaglione hafi alltaf neitað að hafa ráðist á Epstein. Tartaglione sagðist hafa gefið lögfræðingum sínum miðann þar sem hann taldi að hann gæti hafa komið að gagni ef Epstein hefði haldið áfram að halda því fram að hann hefði reynt að meiða sig. Tartaglione var sakfelldur árið 2023 og afplánar nú fjórfaldan lífstíðardóm. Hann hefur haldið fram sakleysi sínu og áfrýjað dómnum. Í frétt NY Times segir einnig að bréf Epstein hafi orðið hluti af langdreginni lagadeilu milli lögfræðinga Tartagliones. Skjöl sem tengjast deilunni voru innsigluð af dómstólum til að vernda trúnað milli lögmanns og skjólstæðings, samkvæmt dómsskjölum. Mótmæltu ekki birtingu bréfsins Áður en Karas dómari aflétti innsiglinu af miðanum bað hann málsaðila um að koma á framfæri skoðunum sínum á beiðni The Times um að efnin yrðu gerð opinber. Skrifstofa ríkissaksóknara á Manhattan, sem sótti Tartaglione til saka, mótmælti ekki birtingu miðans. Í bréfi til dómarans skrifuðu saksóknararnir að „mikill almannahagur virðist vera af aðstæðum í kringum dauða Epsteins.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Dómsmál Fjölmiðlar Tengdar fréttir Þvertekur fyrir nokkur tengsl Líkt og fjölmargir aðrir hefur Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, verið bendluð við hin svokölluðu Epstein-skjöl. Hún tók sig til í dag og boðaði alla fréttamenn Hvíta hússins á fund en þar tilkynnti forsetafrúin að hvers kyns lygum sem tengdu hana við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein „yrði að linna í dag“. 9. apríl 2026 21:43 Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi úr embætti dómsmálaráðherra. Todd Blanche, staðgengill hennar, tekur við af henni. 2. apríl 2026 18:19 Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ „Við erum fjölskylda sem hefur verið í afar krefjandi aðstæðum síðustu vikurnar,“ segir Mette-Marit, krónprinsessa Noregs. „Ég er móðir ungs manns sem hefur verið í afar krefjandi aðstæðum. Auk þess bý ég við heilsu sem krefst mikillar hvíldar. Og hún hefur versnað,“ segir hún. 20. mars 2026 08:07 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira
Þvertekur fyrir nokkur tengsl Líkt og fjölmargir aðrir hefur Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, verið bendluð við hin svokölluðu Epstein-skjöl. Hún tók sig til í dag og boðaði alla fréttamenn Hvíta hússins á fund en þar tilkynnti forsetafrúin að hvers kyns lygum sem tengdu hana við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein „yrði að linna í dag“. 9. apríl 2026 21:43
Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi úr embætti dómsmálaráðherra. Todd Blanche, staðgengill hennar, tekur við af henni. 2. apríl 2026 18:19
Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ „Við erum fjölskylda sem hefur verið í afar krefjandi aðstæðum síðustu vikurnar,“ segir Mette-Marit, krónprinsessa Noregs. „Ég er móðir ungs manns sem hefur verið í afar krefjandi aðstæðum. Auk þess bý ég við heilsu sem krefst mikillar hvíldar. Og hún hefur versnað,“ segir hún. 20. mars 2026 08:07