Þið eruð kosin til að vinna saman, ekki forðast hvort annað Frosti Heimisson skrifar 6. maí 2026 14:02 „Framsókn útilokar samstarf við Samfylkingu.“ „Miðflokkur sér hindranir í samstarfi við Viðreisn.“ „Þessi flokkur gæti aldrei unnið með hinum.“ Stundum er eins og íslensk stjórnmál séu ekki vettvangur fullorðins fólks heldur framhald af félagslífinu í menntaskóla. Eins og stjórnmálafólk sé að velja sér næstu klíku sem ætlar að eigna sér besta borðið í matsalnum í stað þess að vera að sækja um starf hjá almenningi landsins. Þetta fólk er kosið til að stjórna samfélagi fyrir kjósendur. Ekki bara þann hóp sem klappar þeim hæst á kosninganótt. Maður fær eiginlega kjánahroll þegar fullorðið fólk á ofurlaunum lýsir því yfir að það geti ekki unnið með öðrum vegna skoðanaágreinings eða ólíkrar stefnu. Hvernig væri einfaldlega að vinna fyrir laununum? Hvernig væri að sýna þann þroska sem felst í því að geta unnið með fólki sem maður er ósammála? Það ætti ekki að vera merki um veikleika að vinna með pólitískum andstæðingum. Þvert á móti. Hlutverk stjórnmálafólks ætti að vera að greina styrkleika annarra flokka og nýta þá þar sem þeir geta skilað árangri fyrir samfélagið. Telur Sjálfstæðisflokkurinn sig vera sterkan í rekstri og fjármálum? Gott og vel. Leyfið þeim þá að takast á við efnahagsmálin. Ekki væri nú leiðinlegt að fá góðar upphæðir í kassann þegar eignir okkar eru seldar. Telur Samfylkingin sig hafa skýra sýn á velferðarkerfið? Frábært. Gefið þeim svigrúm til að móta þá stefnu. Telur Miðflokkurinn sig hafa lausnir til að vernda íslenska tungu og menningu? Flott, leyfið þeim að nýta þann kraft á menningarsviðinu. Telur Vinstrið sig hafa trúverðugar hugmyndir í umhverfismálum? Þá á að láta þær hugmyndir reyna á sig. Telja Sósíalistar sig hafa lausnir sem gagnast bæði einkabílnum og fólkinu í strætó? Þá eiga þeir líka að fá sæti við borðið eða tvö þegar samgöngumál eru rædd og ákvarðanir teknar. Telur einhver oddviti sig vera frábæran leiðtoga og kláran í að leysa erfiða ágreininga og miðla málum? Til hamingju. Þið funduð borgar-/bæjar-/sveitarstjórann ykkar. Þetta snýst einfaldlega ekki um að ein skoðun „vinni“ kosningar. Þetta snýst um að landinu sé stjórnað af fólki sem getur unnið saman þrátt fyrir ágreining. Og ef maður skoðar kosningaúrslit, skoðanakannanir og pólitíska þróun síðustu ára virðist eitt liggja nokkuð ljóst fyrir: Íslendingar dreifast tiltölulega jafnt yfir pólitíska rófið. Um það bil helmingur þjóðarinnar hallar til vinstri eða miðju-vinstri. Hinn helmingurinn hallar til hægri eða miðju-hægri. Hvað þýðir það? Það þýðir að þegar sveitarstjórn er mynduð eingöngu úr flokkum af sömu pólitísku línu, þá stendur gríðarlega stór hluti kjósenda eftir án raunverulegrar raddar við sveitarstjórnarborðið. Það er ekki heilbrigt lýðræði. Í mínum huga ætti hver einn og einasti Íslendingur að geta séð að minnsta kosti einn fulltrúa í stjórn sem endurspeglar einhverjar af hans eigin áherslum eða gildum. Annars verður stjórnin ekki sameiginlegt verkefni samfélagsþegna heldur sigur einnar fylkingar yfir annarri. Kannski er kominn tími á að taka aðra stefnu heldur en að sundra. Því með hverri fyrirsögn um að einhver geti „alls ekki unnið með“ einhverjum öðrum verður sífellt augljósara að stjórnmálin sjálf eru orðin ein stærsta uppspretta klofnings í samfélaginu. Nú þarf annað hugarfar. Nú er tíminn til að snúa blaðinu við. Sameinast sem eitt. Í lok dags erum við öll bara fólk. Við erum öll fær um að elska, mistakast, standa upp aftur og reyna betur. Við viljum öll öryggi, tækifæri og gott líf fyrir okkur og okkar nánustu. Kannski ættu stjórnmálin bara að endurspegla það aðeins betur? Höfundur er forritari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar