Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson skrifar 6. maí 2026 10:15 Landeyjahöfn er ein besta samgöngubót sem Vestmannaeyjar hafa fengið - en aðeins þegar hún er opin! Nú, tæpum 16 árum eftir opnun, er staðan sú að höfnin lokast reglulega mánuðum saman vegna sandfyllingar eða sjólags. Á hverju ári er hún ófær í 2–4 mánuði, stundum lengur með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa og atvinnulíf. Eftir sex mánaða lokun er nú loks stefnt að því að opna höfnina á ný, en slíkt ástand sýnir svo ekki verður um villst að hún þjónar ekki hlutverki sínu sem áreiðanleg samgönguleið allt árið. Munurinn á siglingaleiðunum tveimur Landeyjahöfn og Þorlákshöfn er augljós: Landeyjahöfn er frábær þegar hún virkar, en hún gerir það ekki nægilega oft. Ástæðan er einföld eðlisfræði: Höfnin er sandgildra. Sandur berst frá nærliggjandi sandfjöru og Markarfljóti og fyllir jafnharðan upp í þá rás sem dýpkuð er, sérstaklega á veturnar þegar veður versnar. Við sáum t.d. Reynisfjöru færast til í vetur. Baráttan við sandinn hefur staðið yfir í 16 ár og ljóst er að dýpkunarframkvæmdir einar og sér munu aldrei leysa vandann til frambúðar. Í stað þess að berjast við náttúruöflin með ærnum tilkostnaði er hægt að vinna með þeim og nýta styrkleika beggja hafna með tvískiptu leiðarkerfi: Þorlákshöfn sem örugg flutningsleið Þorlákshöfn gæti orðið fastur áfangastaður fyrir þungaflutninga – fisk, vörur og þá sem þurfa að taka bíl með sér. Til að lágmarka kostnað yrði aðeins siglt ein ferð að morgni og önnur til baka seinni part dags. Þessi leið er áreiðanleg allt árið og tryggir grunnöryggi samgangna milli lands og Eyja óháð sandburðinum á suðurströndinni. Herjólfur annar þessu hlutverki ágætlega. Landeyjahöfn sem nútímaleg samgöngumiðstöð Á sama tíma gæti Landeyjahöfn þróast í hreinræktaða farþegamiðstöð fyrir minni og hraðskreiðari farþegaferjur. Slík skip rista grynnra og þurfa ekki sama dýpi og stærri skip eins og Herjólfur. Með þessu mætti halda höfninni opinni nánast allt árið og leggja áherslu á: Örugg bílastæði: Fólk leggur bílnum og fer beint um borð í stutta og hraða siglingu. Öflugar almenningssamgöngur: Hraðar rútur og deilibílar bíða farþega við komu á land. Samþætta þjónustu: Einn miði sem gildir fyrir alla leiðina, bæði í skip og landsamgöngur. Þessi breyting myndi opna fyrir hraðari og tíðari samgöngu fyrir íbúa en einnig fyrir ferðamenn. Siglingaleiðin í Landeyjahöfn er stutt og áreiðanleg og tengir Vestmannaeyjar betur við höfuðborgarsvæðið og ferðaþjónustu Suðurstrandarinnar (South Coast). Slíkt tvískipt leið myndi einnig auka öryggi og halda opnum möguleika á opnun ef önnur leiðin er ófær. Á móti gætu sparast verulegar fjárhæðir sem nú fara í dýpkun og viðhald. Fjármununum væri betur varið í að bæta þjónustuna og tryggja að fólk og vörur komist alltaf leiðar sinna. Landeyjahöfn er ekki mistök, en ljóst er að með núverandi fyrirkomulagi þjónar hún ekki hlutverki sínu, meðan höfnin er lokuð og ónothæf. Er kannski kominn tími til að breyta því hvernig við ferðumst? Hættum að berjast við náttúruna og reynum frekar að aðlagast henni. Höfundur er sérfræðingur í upplýsingatækni og áhugamaður um bættar samgöngur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landeyjahöfn Herjólfur Samgöngur Mest lesið Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Sjá meira
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun