Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar 5. maí 2026 15:18 Þeir sem bjóða sig fram til bæjarstjórnar Akureyrar eru að bjóða sig fram til forystu. Þegar meirihluti er myndaður að afloknum kosningum er það gert á grundvelli meirihlutasamnings, sem meirihlutinn hyggst hafa forystu um að koma í verk fyrir almenning á Akureyri. Í tilfelli Akureyrar er það reyndar þannig að sem lang stærsta sveitarfélagið á Norð- Austurlandi gegnir bærinn jafnframt forystuhlutverki í landshlutanum öllum, sbr. nýlega samþykkt á Alþingi um borgarstefnu fyrir Akureyri. Það skiptir því miklu máli að meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar á hverjum tíma taki þetta forystuhlutverk alvarlega og sé stöðugt að sinna hagsmunum Akureyrar og landshlutans alls. Á kjörtímabilinu hefur hins vegar sífellt meiri þungi færst í umræðu meðal bæjarbúa um að á þessa nauðsynlegu forystu hafi mjög skort. Það er auðvelt að nefna mörg dæmi um að meirihlutinn hafi í besta falli haldið í humátt á eftir þeim sem hafa leitt umræðu um brýn hagsmunamál, t.d. varðandi Akureyrarflugvöll, Sjúkrahúsið á Akureyri eða Háskólann á Akureyri, að ógleymdum sparnaðarleiðangri menntamálaráðherra síðustu ríkisstjórnar með misheppnaðri atlögu að framhaldsskólunum, MA og VMA. Í þessum tilfellum hefur bæjarstjórn Akureyrar vart verið sýnileg í umræðunni, eða í besta falli fengið til sín gesti til að fá upplýsingar, en lítið orðið úr verki í kjölfarið. Ýmis önnur mál virðist bæjarstjórn varla telja á sínu borði. Þar eru kannski skýrustu dæmin um styttingu á hringveginum fram hjá Blönduósi og afskipti af forgangsröðun í gangagerð. Ef bæjarstjórn hefði haft áhuga á að kynna sér málavöxtu varðandi gangagerð á Eyjafjarðarsvæðinu hefði hún ekki síst í ljósi nýrrar borgarstefnu barist fyrir því að næstu göng yrðu undir Öxnadalsheiði í stað Fljótaganga. Með því að gera göng undir Öxnadalsheiði mundi margt vinnast í senn. Samgöngur að vetri yrðu mun öruggari og ekki þyrfti að fara um Siglufjörð þegar heiðin er lokuð. Tenging yfir í Skagafjörð yrði mun betri og Eyjafjörður yrði sannarlega eitt atvinnusvæði allt til Siglufjarðar með göngum milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, sem eru framarlega á samgönguáætlun. Með því að berjast fyrir álíka endurskoðun á samgönguáætlun og á Austurlandi mundi Eyjafjarðarsvæðið styrkjast til muna, þar sem horft væri til svæðisins í heild frekar en að einblína á eitt vandamál í einu og eina lausn eins og varðandi veginn um Almenninga milli Siglufjarðar og Fljóta. Það verður að gera bragarbót á hagsmunagæslu Akureyrarbæjar á næsta kjörtímabili, en til þess að svo verði þurfa að koma til ný og betri vinnubrögð og meiri áhugi með nýjum meirihluta. Það er ekki nóg að bregðast við, heldur þarf Akureyri að vera í forystu. Það hefur sýnt sig að slíkt skilar árangri eins og Vaðlaheiðargöng eru gott dæmi um, sem væru ekki komin enn nema fyrir frumkvæði og baráttu Akureyrarbæjar og fyrirtækja á svæðinu. Slík forysta hefur ekki verið sýnileg á líðandi kjörtímabili. Bæjarstjórn Akureyrar þarf að stunda virka hagsmunagæslu fyrir bæinn, íbúa hans og atvinnulíf. Samfylkingin á Akureyri setjur hagsmuni bæjarbúa í fyrsta sætið í allri sinni nálgun. Höfundur er í 16. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar