Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2026 13:38 Pete Hegseth og Dan Caine í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. AP/Manuel Balce Ceneta Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segja vopnahlé við Íran enn í gildi. Það er þrátt fyrir árásir Írana á bandarísk herskip og Sameinuðu arabísku furstadæmin og að Bandaríkjamenn hafi sökkt að minnsta kosti sex bátum íranska byltingarvarðarins í gær.
Caine sagði á blaðamannafundi hans og Hegseths í dag að þeir teldu vopnahléið enn í gildi. Hegseth tók þó fram að bandarískir hermenn væru klárir í slaginn með stuttum fyrirvara, ef vopnahléið brestur, eins og mörgum hefur þótt og þykir mögulegt. Hann sagði að Íranir hefðu skotið níu sinnum á flutningaskip frá því vopnahléið tók gildi og tekið stjórn á tveimur til viðbótar. Þá hefðu Íranir skotið að minnsta kosti tíu sinnum á bandaríska hermenn. Þrátt fyrir það teldu Bandaríkjamenn að vopnahléið væri enn í gildi. Vopnahléið hefur verið notað af Donald Trump, forseta, og ráðherrum hans, sem átyllu þess að ríkisstjórnin þurfi ekki að fá leyfi frá bandaríska þinginu fyrir áframhaldandi stríðsrekstri gegn Íran, eins og lög Bandaríkjanna segja til um að Trump hefði þurft að gera innan sextíu daga eftir að átök hófust. Sjá einnig: Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Til að undirstika það hélt Hegseth því fram á blaðamannafundinum að hernaðaraðgerðin sem snýst um að opna Hormússund væri í raun ný hernaðaraðgerð, ótengd árásunum á Íran. .@SECWAR "President Trump has directed @CENTCOM to restart the free flow of commerce through the Strait of Hormuz under the umbrella of PROJECT FREEDOM.To be clear, this operation is separate and distinct from Operation Epic Fury.PROJECT FREEDOM is defensive in nature,… pic.twitter.com/gU9lB0sVGA— DOW Rapid Response (@DOWResponse) May 5, 2026 Í gær hitnaði í kolunum við Hormússund, þegar Íranir skutu á bandarísk herskip sem verið var að sigla inn á Persaflóa. Einnig voru gerðar árásir á furstadæmin en Bandaríkjamenn svöruðu fyrir sig með því að sökkva að minnsta kosti sex bátum byltingarvarðarins. Árásirnar á furstadæmin í gær voru þær fyrstu frá því vopnahlé náðist snemma í apríl. Íranir hafa lokað Hormússundi frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran fyrir rúmum tveimur mánuðum. Með árásum á flutningaskip og hótunum um árásir hafa siglingar gegnum sundið nánast alfarið verið stöðvaðar en við hefðbundnar kringumstæður fer um fimmtungur af olíu heimsins um sundið, auk annarra mikilvægra afurða og aðfanga. Caine sagði á blaðamannafundinum að talið væri að um 22.500 sjómenn sætu fastir á Persaflóa um borð í rúmlega 1.500 skipum og bátum vegna lokunar Hormússunds. Hegseth sagði á blaðamannafundinum að siglingarnar í gær sýndu að sundið væri opið en að minnsta kosti tvö flutningaskip urðu fyrir árásum á svæðinu í gær. .@SECWAR "Two U.S. commercial ships, along with American destroyers, have already safely transited the strait—showing the lane is clear.We know the Iranians are embarrassed by this fact. They said they controlled the strait... THEY DO NOT." pic.twitter.com/kIhGz7Gg4w— DOW Rapid Response (@DOWResponse) May 5, 2026 Samningar eða hernaður einu lausnirnar Greinandi sem ræddi við AP fréttaveituna segir mikla óreiðu ríkja um málefni Hormússunds. Íranar séu enn staðráðnir í að ráðast á skip sem reynt er að sigla um sundið, nema þau fari Íransmegin þar um og gegn greiðslu. Bandaríkjamenn hafa kallað eftir því að fleiri reyni að sigla gegnum sundið sunnanmegin, undan ströndum Óman, en fáir hafa verið tilbúnir til að reyna það. Torbjorn Soltvedt, áðurnefndur greinandi, segir að í rauninni séu bara tvær leiðir til að opna Hormússund á nýjan leik. Önnur sé að Bandaríkjamenn og Íranir geri einhvers konar samkomulag. Hin sé að Bandaríkjamenn dragi verulega úr getu Írana til að nota dróna, eldflaugar, báta eða tundurdufl til að ráðast á flutningaskip á svæðinu. Slíkt myndi þurfa umfangsmikla beitingu hernaðarvalds.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Skipaflutningar Bensín og olía Hernaður Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Fleiri fréttir Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Sjá meira