Borgin skapi hlutastörf Stefán Pálsson skrifar 5. maí 2026 12:15 Í tíð síðustu ríkisstjórnar voru gríðarmiklar breytingar gerðar almannatryggingakerfinu. Grunnhugmyndin á bak við þær er að auka atvinnuþátttöku öryrkja og er leiðin að því marki mikil áhersla á endurhæfingu og starfsþjálfun. Tilgangurinn er margþættur. Í fyrsta lagi að auka tekjur og bæta lífskjör öryrkja. Í öðru lagi að gera öryrkja virkari þátttakendur í samfélaginu. Vinnan er stór þáttur í sjálfsmynd flestra, hún eflir sjálfsvirðingu og stuðlar að tengslamyndun sem dregur úr einangrun og einmannaleika. Og í þriðja lagi skapar aukin vinna öryrkja og fatlaðs fólks miklar samfélagslegar tekjur og eykur hagvöxt. Lykilþáttur í nýja kerfinu er hlutaörorkulífeyrir sem miðast við að fólk sem metið er með tiltekna starfsgetu geti sinnt allt að hálfu starfi. En þótt markmið þessa nýja kerfis sé góð og skynsamleg, þá eru þau til lítils ef hlutastörf eru ekki í boði. Atvinnulífið þarf að standa sig í að bjóða upp á störf fyrir fólk með ólíka starfsgetu, en því miður virðist sú ekki vera raunin. Þess í stað leitast vinnuveitendur við að steypa öll störf í sama mót hins fasta, staðlaða stöðugildis. Staðreyndin er sú að það er kostnaðarsamara að hafa tvo starfsmenn í hálfu starfi en einn í fullu starfi. Hér eru hins vegar sveitarfélög í kjörstöðu til að stíga inní og reyna að mæta þessum þörfum. Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins og þar sinnir fólk alls konar störfum sem eru fjarri því öll þess eðlis að þau verði aðeins leyst með fullri hefðbundinni vinnuviku. Með einföldum skipulagsbreytingum mætti útbúa fjölda hlutastarfa á flestum sviðum borgarinnar. Því miður hefur þróunin fremur verið á hinn veginn. Útvistun starfa og eilíf áhersla á tæknilausnir sem miða að því að fækka starfsfólki vinna í raun gegn þessum markmiðum. Vinstrið vill fjölga hlutastörfum í Reykjavík og að borgin marki sér stefnu og geri framkvæmdaáætlun um hvernig því markmiði verði náð. Höfundur er sagnfræðingur og skipar 3. sætið á lista Vinstrisins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Pálsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í tíð síðustu ríkisstjórnar voru gríðarmiklar breytingar gerðar almannatryggingakerfinu. Grunnhugmyndin á bak við þær er að auka atvinnuþátttöku öryrkja og er leiðin að því marki mikil áhersla á endurhæfingu og starfsþjálfun. Tilgangurinn er margþættur. Í fyrsta lagi að auka tekjur og bæta lífskjör öryrkja. Í öðru lagi að gera öryrkja virkari þátttakendur í samfélaginu. Vinnan er stór þáttur í sjálfsmynd flestra, hún eflir sjálfsvirðingu og stuðlar að tengslamyndun sem dregur úr einangrun og einmannaleika. Og í þriðja lagi skapar aukin vinna öryrkja og fatlaðs fólks miklar samfélagslegar tekjur og eykur hagvöxt. Lykilþáttur í nýja kerfinu er hlutaörorkulífeyrir sem miðast við að fólk sem metið er með tiltekna starfsgetu geti sinnt allt að hálfu starfi. En þótt markmið þessa nýja kerfis sé góð og skynsamleg, þá eru þau til lítils ef hlutastörf eru ekki í boði. Atvinnulífið þarf að standa sig í að bjóða upp á störf fyrir fólk með ólíka starfsgetu, en því miður virðist sú ekki vera raunin. Þess í stað leitast vinnuveitendur við að steypa öll störf í sama mót hins fasta, staðlaða stöðugildis. Staðreyndin er sú að það er kostnaðarsamara að hafa tvo starfsmenn í hálfu starfi en einn í fullu starfi. Hér eru hins vegar sveitarfélög í kjörstöðu til að stíga inní og reyna að mæta þessum þörfum. Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins og þar sinnir fólk alls konar störfum sem eru fjarri því öll þess eðlis að þau verði aðeins leyst með fullri hefðbundinni vinnuviku. Með einföldum skipulagsbreytingum mætti útbúa fjölda hlutastarfa á flestum sviðum borgarinnar. Því miður hefur þróunin fremur verið á hinn veginn. Útvistun starfa og eilíf áhersla á tæknilausnir sem miða að því að fækka starfsfólki vinna í raun gegn þessum markmiðum. Vinstrið vill fjölga hlutastörfum í Reykjavík og að borgin marki sér stefnu og geri framkvæmdaáætlun um hvernig því markmiði verði náð. Höfundur er sagnfræðingur og skipar 3. sætið á lista Vinstrisins í Reykjavík.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar