Menningin er hjartað í Hafnarfirði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar 5. maí 2026 10:47 Hvað gefur góðu samfélagi sál? Hvað gerir bæjarfélag að lifandi og skemmtilegum bæ sem við elskum og þar sem við viljum helst verja öllum okkar stundum? Svarið liggur í líflegum bæjarbrag og fjölbreyttu og kraftmiklu mannlífi. Við sjálfstæðismenn í Hafnarfirði höfum lagt áherslu á að varðveita einstakan bæjarbrag okkar Hafnfirðinga og fjölga möguleikum til afþreyingar. Allt í því skyni að efla mannlíf og styrkja bæjarandann. Blómstrandi miðbær er hjarta hvers bæjarfélags, þar sem fólk kemur saman til að njóta alls sem þar er boðið upp á og ekki síst hitta mann og annan. Það felast mikil lífsgæði í því að við Hafnfirðingar getum sótt fjölbreytta verslun, þjónustu og iðandi lista- og menningarlíf í okkar heimabæ. Á undanförnum árum hefur bærinn tekið miklum stakkaskiptum í þeim efnum og áherslur okkar skilað árangri. Miðbærinn er orðinn raunverulegt hjarta bæjarfélagsins og hefur nú mikið aðdráttarafl fyrir íbúa og gesti. Slíkar breytingar gerast ekki að sjálfu sér. Mesta ánægja íbúa Hafnarfjarðar Og ánægja íbúanna lætur ekki á sér standa. Í nýlegri þjónustukönnun Gallup eykst enn ánægja íbúa og mælast Hafnfirðingar ánægðustu íbúar landsins með menningarlífið í sínum heimabæ. Á undanförnum árum hafa verið teknar ákvarðanir sem styðja við þessa stefnu okkar. Menningar- og viðburðastyrkir hafa verið auknir, framtíð bæjarhátíðarinnar „Hjarta Hafnarfjarðar“ hefur verið tryggð til 2030, sem og Víkingahátíðin næstu fimm árin með samstarfssamningi og gerður var samningur við Lúðrasveitina. Í sumar opnar nútímabókasafn í nýja Firði og menningarhúsin okkar, eins og Bæjarbíó og Hafnarborg laða til sín þúsundir gesta. Öflugt menningarlíf og fjölbreyttir viðburðir styðja við rekstur verslana og þjónustu eins og kaffihúsa og veitingastaða sem sífellt fjölgar í bænum okkar. Auk þess hefur mikið verið lagt upp úr aðlaðandi umhverfi með fegrun bæjarins og góðri umhirðu. Við viljum halda áfram að styrkja menningu, listir og afþreyingu í bænum okkar. Framundan er að setja upp sýningu á ferli Björgvins Halldórssonar og ákveðið hefur verið að breyta íþróttahúsinu á Strandgötu í nýtt og glæsilegt menningarhús og útvega meðal annars leiklistinni varanlegt húsnæði þar. Ég segi það oft: Bestu dagarnir mínir eru þeir þegar ég þarf ekki að fara út úr Hafnarfirði til að njóta og hafa gaman. Höldum áfram á þessari frábæru braut fyrir lifandi Hafnarfjörð! Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður menningar- og ferðamálanefndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar