„Nú er það bara kassinn út á fimmtudaginn“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. maí 2026 22:45 Róbert Aron Hostert í leik kvöldsins. Vísir/Anton Brink „Mér fannst augnablikið vera með okkur þegar við vorum komnir í seinni framlenginguna,“ sagði Róbert Aron Hostert eftir súrt tap Vals gegn FH í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.
Róbert og félagar þurftu að sætta sig við eins marks tap, 37-36, í tvíframlengdum leik þar sem liðið misnotaði vítakast á lokasekúndunum. „Við náum að koma þessu í framlengingu og svo fannst mér við bara vera að fara að taka þetta. Það er erfitt að segja, við bara verðum svolítið litlir í okkur sóknarlega og þetta verður svolítið stirt. Við hefðum átt að vera klókari og það vantaði meiri kraft. Við hefðum þurft sama kraft og þegar við náðum þeim undir lok leiks. En nú er bara að læra af þessu og oddaleikur á fimmtudaginn. Er það ekki það sem þið vilduð?“ bætti Róbert við. Hann segir að liðið geti vel kyngt tapi sem þessu. „Það er ekkert erfitt. Þetta er bara partur af þessu og við viljum vera í þessu. Auðvitað hefði ég viljað taka þetta í kvöld, það er ekki það, en nú er bara leikur á fimmtudaginn og við megum alveg vera smá fúlir í kvöld og gagnrýna aðeins sjálfa okkur,“ sagði Róbert. „Við vorum ekki alveg nógu klókir fannst mér og eigum að geta gert betur. Nú þurfum við bara að fara yfir þetta og svo er það bara kassinn út á fimmtudaginn.“ Hann viðurkennir þó að það sé skrýtin tilfinning að hafa verið undir langstærstan hluta þessa langa leiks, en vera samt með hálfgert óbragð í munninum yfir að hafa ekki unnið leikinn. „Já klárlega, af því að við komumst þarna tveimur mörkum yfir í seinni framlengingunni. Við náum að loka skoti þarna og hefðum getað gert þetta aðeins betur þegar við vorum með yfirhöndina í seinni framlenginunni.“ Þá viðurkennir hann að mögulega hafi þreyta spilað inn í hjá Valsliðinu, sem vantar menn á borð við Magnús Óla Magnússon. Hann vildi þó ekki nota það sem einhverskonar afsökun fyrir tapinu. „Það segir sitt líka að okkur vantar reynslumikinn leikmann hérna og þurftum að spila svolítið á sömu mönnunum. En við erum með fullt af gaurum hérna sem eru tilbúnir. Nú er bara leikur fimm og maður er ekkert þreyttur í þessu. Þetta er bara gaman. Við erum að æfa allt árið fyrir þetta.“ Að lokum segir Róbert að það sé líka skemmtilegra að vinna Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. „Já er það ekki? Það er bara gamla klisjan. Við vildum þetta,“ sagði nokkuð léttur Róbert Aron að lokum.
Olís-deild karla Valur FH Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira