Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson skrifar 5. maí 2026 08:45 Ég ólst upp í Kópavogi og elskaði það. Spilaði fótbolta með HK í Fossvogsdalnum og hef fylgst með bænum stækka og samfélaginu með. Sá Kópavogur sem ég þekki, hefur alltaf verið samhent og öflugt samfélag. Kosningarnar 16. maí snúast um hvernig við viljum sjá samfélagið í Kópavogi þróast. Viljum við litríkt samfélag eða litlaust? Samhentari og sterkari Kópavog en í dag eða sundraðan bæ þar sem náungakærleikur er skilyrtur við tiltekin mannleg einkenni? Svarthvítur veruleiki Orðræða síðustu daga og vikur frá Miðflokknum hefur verið orðræða gamalla og lokaðra tíma. Tíma þar sem hlutskipti voru ójöfn og lífið svarthvítt. Ekki bara fyrir hinsegin einstaklinga heldur okkur öll. Konur, karla og kvár. Stúlkur, drengi og stálp. Þetta er ekki ný orðræða frá Miðflokknum, flokkurinn hefur alla tíð daðrað við hana. Alið á hræðslu við það sem ekki fellur í normið. Fyrst var trans fólk tekið fyrir og nú á koma samkynhneigðum aftur inn skápinn og konum aftur tekjulausum á bakvið eldavélina í nafni valfrelsis. Þetta byrjar nefnilega allt einhvers staðar.Ef við byrjum á því að fjarlægja fána mannréttinda og frelsis - hvað er þá næst? Á að hætta allri fræðslu eða samtölum um fjölbreytileika? Á að þegja um tilveru hinsegin fólks af því að hún passar ekki inn í svarthvítan og litlausan heim Miðflokksmanna, heim þar sem við ættum öll helst að vera steypt í sama mót? Ærandi þögn Þögn Sjálfstæðismanna í Kópavogi um regnbogafánann hefur einnig verið eftirtektarverð. Nú hefur bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðisflokksins deilt við oddvita Miðflokksins um hvort Kópavogsbær hafi gert samning við Samtökin ’78 um mannréttinda- og fjölbreytileikafræðslu. Í stað þess að standa keik með mikilvægri fræðslu virðist áherslan hafa farið í að fjarlægja sig frá henni. Ég vona að um sé að ræða hliðarspor hjá flokki sem hefur kennt sig við frelsi einstaklingsins. Mannréttindi eru ekki tískuvara eða eitthvað sem hægt er að taka upp og leggja frá sér eftir því hvernig vindar blása. Í nafni einfaldleikans Þau sem helst tala gegn hinseginleikanum og valfrelsi kvenna eru þeir sem beita fyrir sig einfaldleikanum: Það var allt einfaldara og þægilegra í gamla daga. Þetta var ekki svona flókið. Öllum leið betur. Mæður voru meira heima, hommar voru bara á vissum stöðum og allir sem voru öðruvísi voru stimplaðir geðsjúkir. Mjög þægilegt. Fyrir alla nema þá sem um ræðir. Frelsi, fjölbreytileiki og fræðsla eru lykilatriði í þeirri framtíðarsýn sem Viðreisn í Kópavogi stendur fyrir. Við viljum að börn og ungmenni viti að lífið sé allskonar og að þau megi haga því eins og þeim sýnist. Við viljum senda ungum konum í fæðingarorlofi þau skilaboð að endurkoma þeirra út á atvinnumarkaðinn skipti jafn miklu máli og endurkoma maka þeirra. Þá sendum við ungum feðrum þau skilaboð að við sjáum og fögnum ávinningnum af því að þeir taki virkan þátt í lífi og uppeldi ungra barna sinna. Og þeir sem vilja halda áfram að beita sér fyrir einfaldleikanum geta auðveldlega gert það - fljótlegast er að hætta að skipta sér að lífi annarra og öðlast þannig einfaldara líf. Sterkt samfélag stendur þétt á bak við hvern og einn einstakling og fagnar fjölbreytileika sinna íbúa.Fyrir það stendur Viðreisn! Höfundur er varaþingmaður og 2. sæti lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Björgvin Sveinsson Viðreisn Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar