Lið Tómasar vann gífurlega mikilvægan sigur Aron Guðmundsson skrifar 4. maí 2026 18:31 Tómas Bent fagnar mikilvægu marki sínu í kvöld Vísir/Getty Hearts vann gífurlega mikilvægan endurkomusigur gegn Rangers í toppbaráttu skosku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Lokatölur 2-1. Tómas Bent Magnússon og liðsfélagar hans í Hearts skrefi nær skoska meistaratitlinum.
Tómas Bent spilar ekki meira á tímabilinu eftir að hafa meiðst í síðasta mánuði en hann hafði stimplað sig inn sem lykilmaður á miðjunni hjá Hearts sem er á höttunum eftir sínum fyrsta meistaratitli í efstu deild Skotlands síðan árið 1960. Hearts hefur verið á toppi skosku úrvalsdeildarinnar lengst af á yfirstandandi tímabili en risarnir í Celtic og Rangers hafa verið að þjarma að liðinu eins og þeir geta. Liðsfélagar Tómasar lentu undir í leik dagsins þegar að Dujon Sterling kom Rangers yfir með marki á 23.mínútu. Heimamenn í liði Hearts létu hins vegar ekki deigann síga. Stephen Kingsley jafnaði metin fyrir Hearts snemma í seinni hálfleik og það var síðan Lawrence Shankland sem innsiglaði 2-1 sigur liðsins með marki á 71.mínútu. Lokatölur 2-1 sigur Hearts. Gífurlega mikilvægur endurkomusigur hjá Hearts því þegar að þrjár umferðir eru eftir af skosku úrvalsdeildinni situr liðið með þriggja stiga forskot á Celtic á toppi deildarinnar. Hearts og Celtic mætast í lokaumferð deildarinnar og því gæti farið svo að liðin mætist í hreinum úrslitaleik á Celtic Park þann 16.maí næstkomandi. Það verður hins vegar tíminn að leiða í ljós. Með þremur stigum meira og betri markatölu er Hearts í bílstjórasætinu, með örlögin í sínum eigin höndum þegar kemur að því að vinna skoska meistaratitilinn í fimmta sinn í sögu félagsins.
Skoski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira