Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir skrifar 4. maí 2026 08:17 Við Íslendingar erum góð í að redda hlutum en við erum ekkert sérstök í því að búa til langtímaáætlanir. Okkur hefur samt af og til tekist það. Árið 2019 kom forystufólk á höfuðborgarsvæðinu saman; fimm bæjarstjórar, einn borgarstjóri og þrír ráðherrar. Öll voru þau mætt til að undirrita Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þetta tímamótaplagg datt augljóslega ekki af himnum ofan heldur var niðurstaða þúsunda funda, áætlanagerðar, málamiðlana en fyrst og fremst vilja allra til þess að höggva á eitt stærsta vandamál höfuðborgarsvæðisins: umferðina. Niðurstaðan var að búa til sáttmála þar sem ríkið stígur myndarlega inn og fjárfestir til jafns fyrir bíla og almenningssamgöngur. Árið 2024 var þessi sáttmáli uppfærður. Rósa Guðbjartsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson voru þau einu sem skrifuðu undir sáttmálann í bæði skiptin. Viðreisn hefur stutt Samgöngusáttmálann frá upphafi bæði innan sveitarfélaga og ríkisins. Hvers vegna? Vegna þess að hann er betri framtíð fyrir borg sem er að kafna úr umferð. Stærsta samgöngufjárfesting í sögu Reykjavíkur Og hvað er Samgöngusáttmálinn? Hann er fjármagnaður samningur milli ríkis og allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um hvað verður gert á næstu árum til að vinna okkur út úr eilífum röðum í umferðinni. Heildarútgjöldin til 2040 eru 311 milljarðar. Þar af fara 42% í stofnvegi, meðal annars í gatnamót Bústaðarvegar og Sæbrautar og Miklubraut í jarðgöng, og 42% fer í betri almenningssamgöngur. Sáttmálinn gerir ráð fyrir fjárfestingu í snjallýsingu og hjóla- og göngustígar fá sinn skerf. Ríkið borgar 87,5% af öllum þessum samgöngubótum fyrir höfuðborgarsvæðið. Svik við Reykvíkinga Einhverra hluta vegna eru þó til þeir flokkar hér í Reykjavík sem ekki vilja sjá þessa fjárfestingu. Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn leggja það nú til að Reykjavík endurskoði Samgöngusáttmálann frá grunni. Lítið hefur heyrst af því hvers vegna þessir flokkar vilja afþakka tröllvaxna fjárfestingu í samgöngum í þágu borgarbúa og höfuðborgarsvæðisins alls. Hvað myndi þetta þýða fyrir Reykvíkinga? Það eru sjö ár síðan fyrst var skrifað undir. Endurskoðun frá grunni þýðir mörg ár í viðbót af kyrrstöðu og á meðan nýtir ríkið peningana í samgönguúrbætur annars staðar á landinu. Segi borgin upp samningnum og afþakki fjárfestingu frá ríkinu sem þar er tryggð mun það stúta mestu framkvæmdum í sögu Reykjavíkur fyrir bíla jafnt sem almenningssamgöngur. Endurskoðun frá grunni þýðir áframhaldandi tafir í umferðinni meðan bílalestirnar halda áfram að lengjast. Hugmyndir Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins eru þar af leiðandi ekki bara óábyrgar og vanhugsaðar heldur eru þær beinlínis svik við Reykvíkinga sem beðið hafa nógu lengi eftir samgönguúrbótum í sínu sveitarfélagi. Og ef við tökum þetta enn lengra þá virðast flokkarnir tveir ætla sér að hafa áhrif á samgönguumbætur í sveitarfélögum utan Reykjavíkur, því sáttmálinn varðar höfuðborgarsvæðið allt. Framtíðarsýn, gjörðu svo vel Samgöngusáttmálinn er ekki fullkomið plagg frekar en nokkuð annað í þessum heimi. Hann er hins vegar stærsta fjárfesting í stofnvegum í sögu Reykjavíkur og byggir á umfangsmiklum greiningum á hvaða leiðir séu bestar til að greiða úr samgönguáskorunum höfuðborgarsvæðisins. Afstaða Viðreisnar er skýr: Við viljum þessar samgöngubætur fyrir Reykjavík og við viljum þær án frekari tafa. Að ætla að byrja aftur og frá grunni er fráleitt tilboð til Reykvíkinga sem jafnan sitja eftir þegar kemur að fjárfestingu í samgöngum. Að ætla að byrja á byrjunarreit passar líka illa við kosningaloforð sem gengur út á að gera hluti strax. Hvað varðar Miðflokkinn má spyrja sig hvort það hafi alltaf verið planið; að tryggja að fjármagn til samgönguframkvæmda renni annað en til Reykvíkinga. Kosningarnar 16. maí snúast um framtíð Reykjavíkur. Þær snúast um hagsmuni fólksins í Reykjavík. Viðreisn mun ekki hika þar - heldur standa með borgarbúum og samgönguframkvæmdum í þeirra þágu. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Magnúsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar