Hin leiðin í umferðarmálum Gunnar Einarsson skrifar 3. maí 2026 17:33 Ég dvaldi í Ástralíu tvö ár fyrir 50 árum síðan. Ég fór nokkrum sinnum eftir veginum frá Bláufjöllum, sem eru vestan við Sydney inn í miðborgina. Það var oftast þung umferð og oft miklar tafir. Gatnakerfið réð ekki við umferðina. Ég fór aftur þessa sömu leið fyrir skömmu síðan. Íbúum hefur fjölgað mikið, en núna er komin hraðbraut, með þremur til fjórum akgreinum í hvora átt, engin ljós, samfeldur straumur umferðarinnar á góðum hraða, engin stopp, engar tafir. Þegar við nálguðumst miðborgina fórum við niður í göng. Þaðan greindist umferðin í allar áttir. Hraðbrautin heldur síðan áfram og tengist annarri hraðbraut sem liggur sunnar og í sömu átt. Þessar tvær hraðbrautir sameinast síðan aftur nokkru vestan við miðborgina. Þær mynda þannig hring. Það geta án efa orðið tafir, en umferðarmannvirkin ráða við mjög mikla umferð. Í Sydney eru líka neðanjarðarlestir og sporvagnar fyrir utan strætisvagna enda er Sydney milljónaborg. Það var greinilegt að strætó notar göngin. Það eru merktar útgönguleiðir, sem eru aðeins fyrir strætó. Ofanjarðar eru langar göngugötur í miðbænum. Sydney er geðþekk borg þó hún sé stórborg. Það er búið að staðsetja Landspítalann, stærsta vinnustað landsins og þrjá háskóla fyrir utan allt hitt í miðbænum. Ef við hugsum til lengri tíma þurfum við áætlun, sem gerði Hringbraut, Miklubraut og síðar alla leiðina í Mosfellsbæ að hraðbraut. Vitanlega þarf líka Sundabraut. Sæbrautin og í framhaldi hennar, gegnum Hafnafjörð, til Keflavíkur yrði hraðbraut eða ígildi hennar. Þessar tvær leiðir yrðu að tengjast fyrir vestan miðbæinn og mynduðu hring. Það er líklegt að það verði að byrja nálægt miðbænum til að kerfið þar geti melt umferðina nógu hratt, þegar fólk streymir í bæinn. Það yrði vitanlega að gera eitthvað af göngum og bílastæðahúsum. Áætlunin yrði til 40 ára. Það er nauðsynlegt strax í upphafi að hafa heildarsýn og ef byrjað er á réttum enda, létti hver áfangi álagið og umferðin getur orðið þokkalega greið, löngu áður en öll áætlunin verður orðin að veruleika. Flæði umferðarinnar yrði stöðugt batnandi og að lokum mjög gott. Þessar framkvæmdir yrðu ekki síður góðar fyrir strætó og gerðu hann að góðum kosti fyrir marga. Það væri sjálfsagt að hafa bílastæðahús meðfram hraðbrautunum. Það er víða þannig erlendis að fólk hjólar eða keyrir að stoppustöðum almenningssamgangna og tekur svo lest eða í þessu tilfelli hraðbússinn í bæinn. Það eru sífellt fleiri farnir að sjá að borgarlínan er hugsuð frá vitlausum enda. Það þarf allt aðra hugsun, en að leitast við tefja fyrir almennri umferð og skapa skort á bílastæðum til reyna að neyða fólk í strætó. Að ímynda sér að það leysi umferðarvanda Stór Reykjavíkur er afar sérkennilegt. Mig undrar að engin stjórnmálaflokkur berjist fyrir raunhæfri langtíma sýn fyrir umferðina í Reykjavík og nágrenni. Einhver gæti bent á að þetta kostaði nú eitthvað. Ríkisstjórnin ætlar okkur að borga 70 milljarða í herinn á ári og enn meira til að fá að vera með í ESB. Við eigum að hætta við þessi og ýmis önnur útgjöld, og byggja upp innviði í staðin. Hvað skyldu tafirnar kosta íbúana? Höfundur er fyrrverandi bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umferð Reykjavík Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar