Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifa 2. maí 2026 08:02 Íþróttaiðkun barna er eitt öflugasta forvarnartæki sem við höfum. Engu að síður horfum við upp á kerfi þar sem sífellt fleiri börn sitja eftir. Á sama tíma og við vitum að hreyfing, þátttaka og félagslegt umhverfi í íþróttum styrkir bæði líkamlega og andlega heilsu barna, hefur kostnaður við íþróttaiðkun rokið upp. Þetta á ekki bara við um hefðbundnar boltaíþróttir. Börn finna sig í ólíkum greinum, hvort sem það eru fimleikar, sund, dans, bardagaíþróttir eða aðrar tómstundir. Fjölbreytni skiptir máli, því áhugi barna er mismunandi og aðgengið þarf að taka mið af því. Snúum þessu við Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur auðveldlega hlaupið á hundruðum þúsunda á ári og í sumum tilfellum farið yfir milljón. Æfingagjöld, búnaður og keppnisferðir leggjast saman og verða einfaldlega of þung byrði fyrir fjölskyldur. Fyrir marga foreldra snýst þetta ekki um hvort barnið æfi það sem það vill, heldur hvort þau hafi efni á að æfa yfirhöfuð. Þetta er því miður raunveruleiki fjölmargra fjölskyldna í Reykjavík. Við ætlum að snúa þessari þróun við. Þegar börn hætta eða byrja aldrei í íþróttum vegna kostnaðar er það ekki einkamál fjölskyldunnar, það er samfélagslegt vandamál. Við vitum að íþróttir draga úr líkum á kvíða, þunglyndi og áhættuhegðun. Við vitum að þær styrkja sjálfsmynd, tengsl og lífsgæði. Við vitum líka að hver króna sem fer í forvarnir skilar sér margfalt til baka í lægri kostnaði fyrir heilbrigðis- og velferðarkerfið og sterkara samfélagi til lengri tíma. Jöfnum leikinn Frístundastyrkurinn hjá Reykjavíkurborg er í dag 75 þúsund krónur á ári. Sú upphæð dugar aftur á móti skammt þegar raunverulegur kostnaður er margfalt hærri. Lausnin felst ekki í því að hækka styrkinn flatt fyrir alla. Við eigum að nýta fjármagnið betur og beina auknum stuðningi sérstaklega til þeirra barna og fjölskyldna sem raunverulega þurfa á honum að halda. Við ætlum að færa milljarð úr stjórnsýslu og beint í þjónustu við börn og fjölskyldur. Til að ná þessu fram þurfum við að taka skýr skref. Í fyrsta lagi viljum við innleiða tekjutengdan frístundastyrk, þar sem fjölskyldur með lægri tekjur fá hærri stuðning en þær sem standa betur fjárhagslega. Þannig nýtist fjármagnið þar sem þörfin er mest og tryggir raunverulegan jöfnuð hvað varðar aðgengi. Tekjutengingin þarf að vera einföld og fyrirsjáanleg. Frístundastyrkur fylgir áfram hverju barni en viðbótarstuðningur bætist við fyrir tekjulægri heimili. Kerfið þarf að vera sjálfvirkt og byggt á fyrirliggjandi tekjuupplýsingum, þannig að fjölskyldur þurfi ekki að sækja sérstaklega um eða fara í gegnum flókið matsferli. Þannig getum við bæði einfaldað kerfið og tryggt að stuðningurinn skili sér þangað sem hann skiptir mestu máli. Markvissari stuðningur, einfaldara kerfi og ábyrg fjármálastjórn Í öðru lagi viljum við tryggja að börn hafi raunverulegt aðgengi að íþróttum óháð efnahag, meðal annars með því að styðja betur við grunnstarf íþróttafélaga þannig að æfingagjöld haldist í hófi. Markmiðið er að lækka þröskuldinn inn í íþróttir, ekki bara bregðast við þegar kostnaðurinn er orðinn of hár. Í þriðja lagi viljum við vinna með íþróttafélögum að því að stemma stigu við síhækkandi kostnaði, með auknu gagnsæi og skýrari ramma um gjaldtöku. Með þessum aðgerðum getum við tryggt að stuðningurinn sé bæði markviss og réttlátur, og að hann skili raunverulegum árangri fyrir börn og fjölskyldur í Reykjavík. Að mati okkar í Viðreisn á það ekki að ráðast af fjárhag foreldra hvort barn geti æft íþróttir og við viljum tryggja að ekkert barn sitji eftir vegna þess. Það þýðir markvissari stuðning, einfaldara kerfi og raunverulegt aðgengi. Það þýðir að styðja sérstaklega við þau sem standa höllum fæti, án þess að setja óþarfa fjármuni í almenna niðurgreiðslu fyrir alla. Þannig náum við bæði fram jöfnuði og ábyrgri fjármálastjórn. Höfundar skipa 3. og 6.sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þorvaldur Davíð Kristjánsson Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar