Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2026 22:31 Hið eina sanna Akureyrareinvígi er fram undan á laugardaginn, loksins í efstu deild. vísir/Diego Akureyringar hafa beðið lengi eftir því að sjá Þór og KA mætast í efstu deild karla í fótbolta og á laugardaginn er loksins komið að því. Uppselt er á leikinn.
Þórsarar vígðu nýjan heimavöll sinn, VÍS-völlinn, þegar þeir unnu Fram í síðustu viku og tilkynntu í dag að nú þegar væri orðið uppselt á næsta heimaleik, gegn KA á laugardaginn klukkan 16. Leikurinn er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2 og síðar um kvöldið er svo annar grannaslagur á dagskrá þegar Valur og KR mætast. View this post on Instagram A post shared by Þór Akureyri (@thor_fotbolti) KA og Þór höfðu samtals spilað 16 leiktíðir í efstu deild á þessari öld, fyrir þessa leiktíð, en aðeins eitt árið verið í deildinni á sama tíma, eða árið 2002. KA er á sínu tíunda tímabili í röð í efstu deild og var einnig þar frá 2002-04 en Þórsarar eru nú á sínu fimmta tímabili í efstu deild á þessari öld, eftir að hafa verið þar árið 2002, 2011 og svo 2013-14. Liðin mættust því síðast í efstu deild í ágúst árið 2002, þar sem KA-menn fögnuðu 1-0 sigri á Akureyrarvellinum í heimaleik Þórs. Samkvæmt frétt DV frá þeim tíma voru 2.116 áhorfendur á þeim leik en ekki eru svo mörg sæti í boði á laugardaginn. KA vann raunar báða leikina við Þór þetta sumar, 1-0, en það voru jafnframt fyrstu og einu sigrar KA gegn Þór í efstu deild hingað til. Áður höfðu liðin mæst 14 sinnum í efstu deild og Þórsarar unnið sex sinnum en liðin gert átta jafntefli.
Besta deild karla KA Þór Akureyri Mest lesið Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Sjá meira